Fréttablaðið - 20.04.2006, Síða 28

Fréttablaðið - 20.04.2006, Síða 28
 20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Pétur Gunnarsson og Trausti Hafliðason. RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Hrokafull þjóð John Vinecour, fastur pistlahöfundur í International Herald Tribune, er á því að mishljómun sé í fregnum frá Íslandi. Grein hans í blaðinu í fyrradag hefst á því að liðið hafi þrjár vikur frá því að stjórn Bush tilkynnti að Bandaríkjaher væri á förum frá Íslandi þar til hún færði þjóðinni 200 bækur um öryggis- og varnarmál sem tákn um að hún yrði ekki skilin eftir varnarlaus. Eftir mikið hagvaxtarskeið beri efnahagslífið nú merki uppdráttarsýki með verð- bólgu og gengisfalli krónunnar. Þetta sé sagan um það þegar vondir-hlutir-gerast- hjá-góðu-fólki. Þótt brotthvarf hersins og niðurstreymið í efnahagslífinu séu óskyld fyrirbrigði leyni sér ekki dulinn skyldleiki þeirra. Hrokinn hafi náð til Íslands. Vansæl þjóð John Vinecour heldur áfram og telur íslensku einkennin vera víti til varnaðar. Þau séu raunveruleg. Íslenski utanrík- isráðherrann hafi sagt sér að hann hafi rætt við ráðamenn á Norðurlöndum, Frakklandi og Þýskalandi um einhvers konar vernd eða varnir. Þess utan virðist sem Ísland verði jafnvel að þreifa fyrir sér með að innleiða evru í stað krón- unnar. „Fyrir þjóð sem lengi hefur haft þá mynd af sér að búa við þægindi og kosti þess að hafa tengsl bæði við Evrópu og Bandaríkin, en haldið báðum í hæfilegri fjarlægð, er þetta ekki sú framtíð sem hún óskaði sér: Banda- ríkjamenn farnir og horfur um áframhaldandi sjálfstæði verði fólgnar í bænarskjali um aðild að Evrópusambandinu sem minnsta og óhamingjusamasta aðildarþjóðin.“ Verðbólga með vilja? Hátt húsnæðisverð og ört hækkandi eldsneytisverð ræður mestu um vaxandi verðbólgu og rýrnandi kjör landsmanna sem stendur. Hvort tveggja er nokkuð sem stjórnvöld geta haft áhrif á. Annars vegar með því að fella brott verð á fasteignum þegar lagður er kvarði á verðbólguna. Hins vegar hafa stjórnvöld í hendi sér að hafa skatta á eldsneyti breytilega sem sveiflujafnandi stýritæki. Ekkert er sjálfsagt við það að tekjur rík- issjóðs hækki um tíu milljarða úr vösum almennings bara fyrir vopnaglamur Bush gagnvart Íran og vaxandi eftirspurn eftir olíu í Kína. johannh@frettabladid.isUmræður um stöðugleika í efnahagsmálum hafa eðlilega tekið mið af þeim óróleika sem verið hefur á fjármála-markaði síðustu vikur. Lækkun á gengi krónunnar hefur eðlilega vakið upp spurningar um framhaldið. Því verður ekki haldið fram að þessar hræringar hafi verið ófyrirsjáanlegar. Það sem meira er: Þær eru fullkomlega eðli- legar og nauðsynlegar. Sannleikurinn er sá að það ástand sem var fyrir hræringarn- ar var óeðlilegt. Það var dæmi um ójafnvægi sem ekki gat stað- ist til lengdar. Sú lækkun sem orðið hefur á gengi krónunar er að færa efnahagslífið nær eðlilegu jafnvægi. Kaupmáttur launa hefur aukist meir en í samkeppnislöndun- um og umfram það sem leiða má af aukinni verðmætasköpun. Ástæðurnar eru margvíslegar og ábyrgðin liggur víða. Að hluta til má jafnvel tengja hana áhættuleikurum á erlendum fjár- málamörkuðum. En afleiðingin var ójafnvægi sem hlaut að leiðréttast fyrr en síðar. Einn maður hefur öðrum fremur verið iðinn við kolann að benda stjórnvöldum á hvað betur megi fara varðandi ýmsa þætti er til þeirra friðar heyrir að þessu leyti. Slík aðvörunar- orð eru sjaldan til stundarvinsælda fallin. Það er meðal annars vegna þess að þau fela í sér andmæli við launahækkunum sem jafnan má finna réttlætingu fyrir. Þessi maður er Einar Oddur Kristjánsson. Hann var á sínum tíma höfuðsmiður svonefndrar þjóðarsáttar í kjarasamningum árið 1990 ásamt Guðmundi J. Guðmundssyni. Það samkomulag var grundvöllur sjö ára pólitískrar stöðugleikastefnu í efna- hagsmálum. Árið 1986 var fyrsta tilraunin gerð síðan 1963 til þríhliða samkomulags af þessu tagi milli ríkisvaldsins og beggja aðila vinnumarkaðarins með skattalækkunum. Sú tilraun tókst ekki sem skyldi, einkum vegna þess að skattar á bílum voru lækkað- ir of mikið. Það leiddi til þenslu og óraunhæfs gengis krónunn- ar. Nokkuð fráhvarf varð frá stöðugleikastefnunni árið 1997. Þá voru gerðir opinberir kjarasamningar sem ekki var full inni- stæða fyrir og gengi krónunnar var í framhaldinu haldið uppi með handafli um nokkurn tíma. Það leiddi til óhjákvæmilegra leiðréttinga síðar. Síðan var gengi krónunnar látið fljóta og Seðlabankanum falið að halda niðri verðbólgu með peningamarkaðsaðgerðum. Það þýðir vaxtahækkunum. Í alþjóðlega opnu hagkerfi er það mikil áraun. Þess var ekki að vænta að þetta eitt nægði til þess að halda jafnvægi. Ríkissjóður hefur sannarlega verið rekinn með meiri afgangi en ríkissjóðir samkeppnislandanna. Í því samhengi verður hins vegar að hafa í huga að sá tekjuafgangur á fyrst og fremst rætur í viðskiptahallanum, en hann er ekki alfarið raunhæfur tekjugrundvöllur til framtíðar. Næstum þrír hlutar af hverjum fjórum í útgjöldum ríkis- sjóðs eru laun. Einar Oddur hefur sennilega lært það af sam- eiginlegri reynslu með Guðmundi J. Guðmundssyni að launa- hækkanir sem ekki eru reistar á krónum sem raunveruleg verðmætasköpun stendur að baki þjóna ekki hagsmunum þeirra sem lægst hafa launin þegar til lengdar lætur. Þessi næmi skilningur á forsendum stöðugleikastefnunnar og náin kynni við þá sem eldurinn brennur heitast á eru ugg- laust hvatinn að aðvörunarræðum þingmannsins. Bæði reynsla og rök sýna að þær eru gildar. SJÓNARMIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON Stöðugleiki í efnahagsmálum: Einar Oddur Vinur minn einn sagði mér fyrir mörgum árum söguna af því, þegar hann var úti í garði einu sinni sem oftar að leika sér barn að aldri og mamma hans stóð yfir pottunum inni í eldhúsi að útbúa hádegisverðinn handa þeim. Nema þá sá hann skyndilega skærbjart- an blossa, svo bjartan, að hann sá ekki handa sinna skil, og heyrði síðan háan hvell, svo háan, að hann hefur æ síðan búið við skerta heyrn á öðru eyra. Þetta var í Varsjá, árið var 1944. Þýzk herflugvél hafði varpað sprengju á húsið, eitt brotið hæfði móður drengsins og dró hana til dauða. Faðir drengsins var gyð- ingur, en hafði tekið kaþólska trú móðurinnar og meira að segja skipt um nafn til enn frekara öryggis. Heimilisfaðirinn reyndi að skýla fjölskyldunni með því að búa sjálfur í öðrum borgarhluta. Móðir og sonur höfðu komið fáein- um sinnum að heimsækja föður- inn; syninum var uppálagt að þéra pabba sinn til að vekja ekki grun- semdir hnýsinna nágranna um blóðbönd. Fjölskyldan átti það samt á hættu, að upp kæmist um gyðinglegan uppruna föðurins. Þá hefðu þau öll verið send til Auschwitz. Og nú stóð drengurinn uppi móðurlaus. Hann var átta ára. Faðirinn komst ekki frá Pól- landi, landið var lokað, en hann lét smygla drengnum norður yfir Eystrasaltið til Svíþjóðar, og þar var honum fyrst um sinn komið fyrir á munaðarleysingjahæli og síðan í heimavistarskóla hjá kaþólskum nunnum í Stokkhólmi. Fyrsta daginn í skólanum var drengurinn leiddur inn í átta ára bekk, mállaus og nær lamaður af angist: augu allra barnanna í bekknum hvíldu á honum. Hann greip hönd kennslukonunnar í hjálparlausu fáti og þrýsti að vörum sér og kyssti hana. Þetta var pólsk kurteisi. Börnin sprungu úr hlátri. Umkomuleys- inginn átti þá ósk heitasta, að gólfið - nei, jörðin! - gleypti hann. Á þeirri stundu tók hann ákvörð- un: hann einsetti hann sér, að hann skyldi læra mál hinna, sænsku - svo vel, að enginn skyldi hlæja að honum. Sex eða sjö árum síðar skrifaði hann ritgerð um reynslu sína, rit- gerð, sem hann átti í einu snjáðu vélrituðu handriti og sýndi nánum vinum sínum, ef tilefni gafst. Rit- gerðin heitir Hvers vegna? Hún er neyðaróp fimmtán ára unglings frammi fyrir vonzku heimsins og lýsir níðingsverkum nasista í Pól- landi og öðrum hörmungum af sjaldgæfum sjónarhóli. Ritgerðin er skrifuð á fegurri sænsku en flestir innfæddir Svíar hafa á valdi sínu. Höfundurinn heitir Marian Radetzki og er einn helzti hagfræð- ingur Svía. Hann hefur nú sent frá sér sjálfsævisögu (Sverige, Sverige! Fosterland?, 2005). Þar raðar hann saman sögunum úr for- tíð sinni og fjölskyldu sinnar eins og perlum á band og birtir nú í fyrsta skipti bernskuritgerð sína. Hún er ekki síður áhrifamikil á prenti nú en hún var fyrir mörgum árum í fölnuðu handriti höfundarins. En fortíðin er samt ekki aðalefni bókarinnar eða helzta áhugamál höfundarins, heldur framtíðin. Hann útmálar fyrir lesendum sínum mikilvægustu ákvörðun ævi sinnar: að ná valdi á tungu fóstur- landsins nýja og semja sig að siðum þess til að eiga það síður á hættu að hafna utan garðs í samfélaginu. Þessi boðskapur Radetzkis á brýnt erindi við marga nýbúa Sví- þjóðar og annarra Evrópulanda, því að margir þeirra lifa eins og í eigin heimi, einangraðir að kalla frá heimamönnum. Evrópa er bræðslupottur ekki síður en Bandaríkin: hlutfall nýbúa í íbúa- fjöldanum er nú orðið svipað á báðum stöðum. Munurinn er sá, að Bandaríkin hafa verið bræðslu- pottur frá fyrstu tíð. Evrópa er annað mál: þar búa ólíkar þjóðir hver á sínum stað og hafa gert um aldir og árþúsundir, og þær hafa ekki langa reynslu af því að taka við nýbúum víðs vegar að. Evrópu er að því skapi meiri vandi á hönd- um en Bandaríkjunum í samskipt- um við nýbúa. Þeim mun brýnni er boðskapur Radetzkis til nýbúanna: Lærið málið! Temjið ykkur siði heimamanna! When in Rome, do as the Romans do! Radetzki tekur í rauninni undir með Snorra Hjartarsyni, þar sem skáldið segir: „Land þjóð og tunga, þrenning sönn og ein, þér var ég gefinn barn á móðurkné.“ En móðurmissir og föðurlands þarf ekki að dæma menn úr leik á nýjum stað, ef þeir skilja nauðsyn þess að breiða út faðminn á móti nýju landi, nýrri þjóð, nýrri tungu. Einmitt þetta er höfuðstyrkur Bandaríkjanna. Af þessu getur Evrópa lært. Og Ísland. Við öll. Land, þjóð og tunga Í DAG AÐLÖGUN INNFLYTJENDA ÞORVALDUR GYLFASON Evrópa er bræðslupottur ekki síður en Bandaríkin: hlutfall nýbúa í íbúafjöldanum er nú orðið svipað á báðum stöðum. Munurinn er sá, að Bandarík- in hafa verið bræðslupottur frá fyrstu tíð. Skeifan 4 S. 588 1818 Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.