Fréttablaðið - 20.04.2006, Síða 39

Fréttablaðið - 20.04.2006, Síða 39
FIMMTUDAGUR 20. apríl 2006 3 Bindistískan í sumar er mjög litrík og frjálsleg. En hún er einnig karlmannleg. Helgi Njálsson í Iðunni segir að með sumrinu komi litirnir. „Það er mikið líf og litir í þessu, og meira að segja slaufur eru að verða vinsælar aftur,“ segir Helgi. Bindin eru flest í sterkum litum og munstrið áberandi. Skárendurnar lifa enn góðu lífi þrátt fyrir hrakspár sérfræð- inga í jólavertíðinni. „Jú, þær gera það. Annars er mikil- vægast að velja bara rétt bindi. Það setur punktinn yfir i-ið og setur réttan svip á skemmtilegan klæðnað,“ segir Helgi. Í Sævari Karli er sama uppi á teningnum. „Litirnir breytast þegar sumrið kemur. Þeir verða skærari og ekki jafn mattir og um vetur- inn,“ segir Sævar Karl. „Þetta á jafnt við um jakka, skyrtur og bindi.“ Það vekur einnig athygli að aldrei eru fleiri en tvö bindi eins í verslun Sævars Karls. „Bindin eru sniðin á móti hvort öðru og aðeins hægt að panta þau í slétt- um tölum, 2 eða 4 og svo fram- vegis,“ segir Sævar Karl. „Við viljum ekki kaupa mörg eins því það er hallærislegt að vera með eins bindi og ein- hver annar.“ Sævar Karl kannast ekki við að þverslaufur séu að kom- ast aftur í tísku. „Nei, þvert á móti. Mér finnst hins vegar mjög flott þegar menn eru með slaufur og við verðum sjálfsögðu við því þegar menn biðja um slík hálstau,“ segi hann. Indriði klæðskeri er á öndverð- um meiði enda mikill aðdáandi þverslaufunnar. „Þverslaufan hefur ekki verið jafn vinsæl síðan Michael Douglas skartaði einni slíkri í Wall Street árið 1987,“ segir Indriði. „Hvern hefði grun- að að hún myndi koma aftur?“ Indriði hefur einnig örlítið aðrar meiningar í bindistískunni en kollegar sínir. „Herratískan er að verða herralegri og klass- ískari. Bindin eru að verða ein- lit og mjó. Munstrin ganga ennþá upp en einungis ef þau eru íhaldssöm.“ tryggvi@frettabladid.is Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Nýtt útlit, ný íbúð, nýtt líf! Í eina tíð þótti það duga að fara í litgreiningu til þess að hressa upp á „lookið“ og koma í veg fyrir stórkostleg umhverfisslys. „Ertu greind? Fórstu til Heiðars?“ voru sígildar spurningar. En nú er öldin önnur og dugir ekkert minna en að fara í gagngerar útlitsbreytingar, „relooking“. Ekki bara til að skipta um liti í fata- skápnum, heldur til að læra að velja rétt snið svo að líkamsbygg- ingin njóti sín og draga úr göllum, skipta um hárgreiðslu og hárlit og læra réttu handtökin við förðun. Til að gera stórt nef fínna hjálpar til dæmis að setja dekkri farða á miðjuna á nefinu, þá sýn- ist það mjórra. Lítinn munn má gera stærri algjörlega án þess að sprauta silikoni í varir, bara með réttu varalitatækninni, enda gott kyssutau löngum þótt kynþokkafullt. Hér í borg er núorðið lítill vandi að leita sér aðstoðar við að skipta um stíl, fyrir þá sem ekki eru vissir um hvernig þeir eigi að klæða sig eða greiða. Tískuþættir í sjónvarpi bjóða áhorfendum að hitta tískufræðing sem leiðbeinir um klæðnað og hár og fer jafnvel í innkaupaleið- angur með viðkomandi. Í því útlitsdýrkunarþjóðfélagi sem við lifum í getur það skipt sköpum fyrir atvinnuviðtal eða jafnvel á rómantísku stefnumóti að vera þokkalega til fara. En útlitshönnuðum dugir nú ekki lengur að einbeita sér að ein- staklingnum heldur eru þeir farnir að bjóða upp á leiðbeiningar um hvernig eigi að endurskipuleggja íbúðir eða hús. Nú tala karl- menn og unglingar um innanhússkreytingar eins og um fótbolta og nýjustu iPod-græjuna því umhverfið innivið hefur fengið meira vægi, hvort sem það er vegna þess að fólk eyðir meiri tíma innivið sökum lengri frítíma eða af hryðjuverkahræðslu og ferða- kostnaði. Íbúðir eru oft á tíðum litlar í stórborginni og því þarf að nota plássið sem best og hvað er betra en að fá sérfræðing til að bjóða uppá nýjar lausnir sem venjulegt fólk lætur sér ekki detta í hug? Til dæmis að breyta gagnslausum gangi í fataherbergi eða opna eldhúsið og stækka þannig stofuna. Innanhússkreytingamaður getur gefið nokkur góð ráð um liti, hvernig megi auka birtu eða blanda saman gömlum og nýjum húsgögnum. Í dag er það sama reglan og í tískunni sem gildir í innanhússkreytingum, allt í góðu að blanda saman Ikea og antík. Skreytingamaðurinn fer jafnvel í verslunarferð en tekur 1500 evrur fyrir daginn! Svo er hreinlega hægt að fá arkitekt sem leggur línurnar um róttækar breytingar svo sem að breyta baðherberginu í eldhús, leitar tilboða og semur jafnvel við iðnaðarmenn. Nýjasta starfsheitið hér í landi er „heimilisrelooker“. bergthor.bjarnason@wanadoo.fr Litir og aftur litir Munstrin er frjálsleg í sumar. Bæði skyrtan og bindið eru frá Sævari Karli. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Sævar Karl segir það lykilatriði að bindi endur- spegli annan klæðnað og bindi hann saman. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Indriði klæðskeri heldur því fram að slaufur séu komnar aftur í tísku. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ralph Lauren sér fram á litríkt sumar. Þetta bindi fæst í Iðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Gleðilegt sumar brúðkaup 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.