Fréttablaðið - 25.04.2006, Síða 6

Fréttablaðið - 25.04.2006, Síða 6
6 25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR LAGERSALA 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLU ! OPIÐ 11-19 FELLSMÚLA 28 (GAMLA WORLD CLASS HÚSINU) KJÖRKASSINN Vilt þú sjá gjaldfrjálsan leikskóla? Já 55% Nei 45% SPURNING DAGSINS Í DAG Var rétt að selja grunnnetið með Símanum? Segðu þína skoðun á visir.is FRAKKLAND, AP Leiðtogi hægrisinn- aðs flokks í Frakklandi, Philippe de Villiers, lýsti því yfir í útvarpsvið- tali í gær að franskir múslimar hefðu laumast inn á viðkvæm svæði á helsta flugvelli Parísar, Roissy- Charles de Gaulle, og gætu sprengt hann í loft upp hvenær sem er. Á fimmtudag kemur út bókin Moskur Roissy eftir de Villiers, þar sem hann heldur því fram að lítið sé fylgst með starfsmönnum flugvallarins, að 25 leynilegar moskur sé að finna í göngum undir flugbrautunum og að með- limir í Bræðralagi múslima starfi við farangursflutning á vellinum. De Villiers segist hafa leitað heimilda í leynilegum skýrslum frönsku leyniþjónustunnar en lög- regla segir skjölin fölsuð. Hafa stjórnmálamenn brugðist harka- lega við og saka de Villiers um að hvetja til kynþáttahaturs. Nicolas Sarkozy innanríkisráð- herra heimsótti flugvöllinn í síð- ustu viku og sagði allar öryggis- ráðstafanir vera afar góðar þar. De Villiers, sem þekktur er fyrir andstöðu sína gegn innflytj- endum, hyggst bjóða sig fram til forseta í haust. Telja stjórnmála- skýrendur að hann muni ekki hljóta mörg atkvæði. Um 53 milljónir manna ferðast um flugvöllinn á ári hverju. - smk Tilvonandi forsetaframbjóðandi í Frakklandi sagður hvetja til kynþáttahaturs: Segir hættu stafa af múslimum NICOLAS SARKOZY Innanríkisráðherra Frakklands heimsótti Roissy-flugvöllinn í síðustu viku og sagði hann eins öruggan og unnt væri. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FÆREYJAR Færeyingar „þjófstört- uðu“ um helgina opnun nýju veg- ganganna sem verið er að leggja lokahönd á milli Austureyjar og Borðeyjar, en þessi göng munu opna akleið til Klakksvíkur, ann- ars stærsta bæjar Færeyja. Þúsundir Færeyinga fóru á sunnudag fótgangandi í gegnum göngin undir Leirvíkurfjörð, sem eru 6,2 km löng, um hálfum kíló- metra lengri en Hvalfjarðargöng- in. Göngin hafa fengið nafnið Norðureyjagöng, enda tengja þau kjarnahluta Færeyja við Norður- eyjarnar. Göngin verða formlega vígð 29. apríl, að því er fréttavef- ur Politiken greinir frá. - aa Samgöngubót í Færeyjum: Norðureyja- göng fullgerð ÍRAN, AP Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, gaf í skyn í gær að Íranar kynnu að segja sig frá alþjóðasamningnum gegn útbreiðslu kjarnorkuvopna, svo- nefndum NPT-sáttmála, og spáði því að ekki yrði neitt úr hótunum um að öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna ákveddi að beita Íran þving- unaraðgerðum. „Þeir sem tala um refsiaðgerð- ir myndu verða fyrir meira tjóni (en Íran),“ sagði forsetinn á blaða- mannafundi í Teheran. „En það mun ekkert sérstakt gerast, sjáiði til.“ Ahmadinejad sagði jafnframt að Íranar myndu endurskoða afstöðu sína til þess að hlíta NPT- sáttmálanum og aðildarinnar að Alþjóðakjarnorkumálastofnun- inni, IAEA, ef aðildin skilaði Írön- um engu. Talsmenn IAEA hafa sakað Írana um að svara ekki sem skyldi öllum spurningum stofnunarinnar um kjarnorkuáætlun þeirra og því vísaði stjórn stofnunarinnar mál- inu til öryggisráðs SÞ. Öryggis- ráðið gaf írönskum stjórnvöldum frest sem rennur út nú í vikulokin til að hætta auðgun úrans, en með því ferli er hægt að framleiða eldsneyti til friðsamlegrar raf- orkuframleiðslu í kjarnorkuver- um, en einnig efni í kjarnorku- sprengjur. Íranar hafa hafnað kröfunni með þeim rökum að þeim sé fyllilega heimilt, sem aðilum að NPT-sáttmálanum, að nýta kjarn- orku í friðsamlegum tilgangi. - aa Mahmoud Ahmadinejad hélt blaðamannfund í Teheran: Forseti Írans hefur í hótunum SPARAR EKKI STÓRU ORÐIN Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti á blaðamanna- fundi í Teheran í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP RÍKISÚTVARPIÐ „Ég fæ ekki séð að hægt sé að verða við því að fresta afgreiðslu frumvarpsins um Ríkisútvarpið til haustsins, eins og óskað hafði verið eftir,“ segir Sigurður Kári Kristjánsson, for- maður menntamálanefndar Alþingis. „Þá væru menn aðeins að slá viðfangsefninu og vandan- um á frest.“ Frumvarpið var afgreitt til þriðju umræðu og menntamála- nefndar á nýjan leik á þingfundi í gær. Sigurður Kári segir að óskað hafi verið eftir að fulltrúar Ríkis- endurskoðunar, Samkeppniseftir- litsins, verkalýðshreyfingarinnar og fleiri yrðu kallaðir fyrir menntamálanefnd. „Ég mun gera allt sem ég get til þess að verða við þeim óskum stjórnarandstæð- inga og ræða málin frekar eftir því sem við verður komið,“ segir Sigurður Kári, en fundir verða í menntamálanefnd þegar í dag. Mörður Árnason, Samfylking- unni, á sæti í menntamálanefnd, en minnihluti nefndarinnar hefur lagt fram tilboð um framvindu og meðferð málsins sem meðal ann- ars felst í því að fresta afgreiðslu þess til haustsins. „Ég hef ekki fengið nein formleg viðbrögð frá meirihluta nefndarinnar nema ein- hver andvörp í fjölmiðlum. Tilboð okkar er sett fram í alvöru og geng- ur út á það að við reynum að ná samstöðu og búum til frumvarp sem unnt verður að afgreiða fyrir áramót. Ég hef trú á því að það geti gengið ef menn vilja láta af kredd- um og skammtíma pólitískum metnaði í málinu,“ segir Mörður. Meðal þess sem stjórnarand- stæðingar vilja ræða er að Ríkis- útvarpið verði gert að sjálfseign- arstofnun í atvinnurekstri en þess gætt að halda sem allra flestum kostum hlutafélagsformsins. Í atkvæðagreiðslu um frum- varpið í gær greiddi Kristinn H. Gunnarsson, Framsóknarflokki, atkvæði gegn ákvæði um að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag, en stjórnarandstaðan sat hjá í nafni þess að frumvarpið færi aftur til meðferðar í menntamálanefnd. Pétur H. Blöndal gerði grein fyrir atkvæði sínu og kvaðst greiða atkvæði með frumvarpinu þar sem það væri skref í þá átt að einkavæða Ríkisútvarpið. Jafn fráleitt þætti mönnum eftir fimmt- án ár að ríkið ræki fjölmiðil eins og mönnum þætti fráleitt nú að bankamenn hefðu eitt sinn verið opinberir starfsmenn. johannh@frettabladid.is Hafnar frestun á RÚV-frumvarpinu Formaður menntamálanefndar hafnar tilboði stjórnarandstöðunnar um að fresta afgeiðslu frumvarpsins um Ríkisútvarpið. Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðis- flokki, er fylgjandi frumvarpinu enda sé það skref í átt til einkavæðingar RÚV. PÉTUR H. BLÖNDAL SJÁLFSTÆÐISFLOKKI Frumvarpið er skref í þá átt að einkavæða Ríkisútvarpið og því leggur Pétur blessun sína yfir það. MÖRÐUR ÁRNASON SAMFYLKNGUNNI „Ég hef trú á því að hægt sé að ná samstöðu ef menn vilja láta af kreddum og skammtíma pólitískum metnaði í málinu.“ SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON SJÁLF- STÆÐISFLOKKI Sigurður Kári segir ekki hægt að verða við óskum um að fresta afgreiðslu frumvarpsins um að breyta RÚV í hlutafélag.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.