Fréttablaðið - 25.04.2006, Side 8
8 25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR
VEISTU SVARIÐ
1 Hvað heita þríburarnir sem eru jafn-gamlir Fréttablaðinu?
2 Elísabet II Bretadrottning fagnar afmæli um þessar mundir. Hvað er
hún gömul?
3 Hvað heitir konungur Nepals?
SVÖR Á BLS. 46
Rekstrarvörustyrkir
RV 2006
RV veitir árlega styrki til félaga og samtaka sem
sinna þörfum samfélagsverkefnum og leggja alúð
við umhverfi sitt. Styrkirnir eru í formi vöruúttekta
hjá RV sem styrkþegar geta nýtt vegna reksturs
eða til fjáröflunar.
Í ár verða veittir fjórir rekstrarvörustyrkir og þurfa umsóknir
um þá að berast á netfangið styrkir@rv.is fyrir 5. maí nk.
Í umsókn skal gerð grein fyrir þeim félögum sem sækja um
styrk og verkefnum sem njóta eiga góðs af styrkveitingu.
Tilkynnt verður um val á styrkþegum
2. júní nk. á heimasíðu RV.
Nánari upplýsingar á heimasíðu RV:
www.rv.is
RV er sérhæft dreifingarfyritæki sem
sinnir þörfum fyrirtækja og stofnana
fyrir almennar rekstrar og hreinlætis-
vörur. RV leggur sérstaka áherslu á
heildarlausn hreinlætis og öryggismála,
svo og hjúkrunarvörur fyrir stofnanir
og einstaklinga.
R
V
62
07
BORGARMÁL Skipulagsráð Reykja-
víkur gerir ekki kröfu til þess að
þak hússins að Vesturgötu 3,
Hlaðvarpanum eins og húsið er
yfirleitt kallað, verði lækkað en
það mælist þrjátíu sentimetrum
hærra en deiliskipulagsáætlun
gerði ráð fyrir. Rökstuðningur
skipulagsráðs er sá að aukinn
skuggi sem falli á næsta nágrenni
„sé óverulegur og nánast ómæl-
anlegur“, eins og segir í fundar-
gerð 51. fundar skipulagsráðs frá
12. apríl síðastliðnum. Það sama
er talið eiga við um yfirbragð
hússins á nágrennið, breytingin
sé óveruleg.
Eins og Fréttablaðið hefur
greint frá þá ríkir mikil óánægja
á meðal íbúa Grjótaþorpsins með
breytingar á Hlaðvarpanum. Sú
óánægja er ekki síst komin til
vegna þess að húsið reyndist,
samkvæmt mælingum bygging-
arfulltrúa, töluvert hærra en
deiliskipulag breytinganna segir
til um. Leit svo út um tíma að
byggingarleyfishafi þyrfti að
gera miklar leiðréttingar á þeim
framkvæmdum sem þegar höfðu
verið gerðar.
Í minnisblaði byggingar- og
skipulagssviðs, dagsett 9. apríl
síðastliðinn, segir jafnframt að
almennt hafi verið góð sátt um
heimild til hækkunar hússins og
ekki talið að hækkunin sem um
ræðir geti haft áhrif á það. - shá
Breytingar á Vesturgötu 3, Hlaðvarpanum:
Þakið fær að standa óbreytt
HLAÐVARPINN Húsið var hækkað þrjátíu
sentimetrum meira en leyfi voru fyrir. Þrátt
fyrir það gerir skipulagsráð ekki kröfu um
að þakið verði lækkað. Áhrif skekkjunnar
eru talin óveruleg. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
ALMANNATRYGGINGAR Tekjutrygg-
ing almannatryggingabóta verður
óbreytt, að minnsta kosti þar til
niðurstöður
nefndar sem
fjallar um þann
málaflokk liggja
fyrir.
Þetta kom
fram í svari
Sivjar Friðleifs-
dóttur, ráðherra
heilbrigðis- og
tryggingamála,
við fyrirspurn
Jóns Kr. Óskarssonar alþingis-
manns um hvort ráðherra hygðist
beita sér fyrir því að fella niður
eða draga úr tekjutengingu bóta
frá Tryggingastofnun ríkisins.
Í nefndinni sem um ræðir sitja
fulltrúar fjögurra ráðuneyta og
Landssambands eldri borgara.
Hún hefur það hlutverk að skoða
fyrirkomulag tekjutenginga bóta
með hliðsjón af skerðingu bóta líf-
eyrisþega vegna tekjuöflunar þar
en jafnframt verði þó horft til
tekjujöfnunarhlutverks tekju-
tengingar bóta. Áætlað er að
nefndin ljúki störfum í haust.
Í svari ráðherra kom fram að
ekki stæði til „að draga úr þeim
jöfnuði sem felst í því að hafa
bætur tekjutengdar. Ef einstakl-
ingar hafa aðrar tekjur en bætur
almannatrygginga og geta fram-
fært sig án tilstuðlan ríkisins er
gert ráð fyrir að þeir geri
það.“ - jss
TRYGGINGASTOFNUN Nefnd athugar nú
fyrirkomulag á tekjutengingu bóta frá
Tryggingastofnun ríkisins.
Heilbrigðisráðherra svarar fyrirspurn um almannatryggingabætur:
Tekjutenging verður óbreytt
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
SKAFTÁRHLAUP „Gróðureyðingin í
kjölfar Skaftárhlaupa er gríðar-
leg,“ segir Elín Heiða Valsdótt-
ir, héraðsfulltrúi Landgræðslu rík-
isins í Skaftarfellssýslum. Hlaupið
nú hafi farið yfir fjögur nýupp-
grædda sandgeira út frá Skaftá,
þar sem Landgræðslan hefur sáð.
„Í Skaftárhlaupum ber áin svo
mikið af framburði með sér. Þegar
vatnið í ánni sjatnar situr eftir leir
og sandur á landinu, sem svo fýkur
yfir gróið land og eyðir,“ segir Elín
Heiða og bætir við að þrátt fyrir að
eyðileggingin sé mikil sé helsta
hættan sem menn hafi orðið varir
við að búfénaður festi sig í eðjunni
og drepist.
Vatnsmagnið sem streymdi
niður um Eldvatn við Ása nam rétt
rúmum fjögur hundruð rúmmetr-
um um fimmleytið í gær. Mest náði
það rúmum 628 rúmmetrum á
hádegi í fyrradag. Hver rúmmetri
vegur eitt tonn. Snorri Zóphónías-
son, sérfræðingur á vatnamælinga-
sviði Orkustofnunar, segir enn ekki
ljóst hve mikið vatn hafi runnið úr
katlinum, þar sem ekki náist síma-
samband við vatnsmælinn við Seið-
stind. „Þar til við fáum gögnin
getum við aðeins sagt hvað mælst
hefur í Eldvatni og Skaftá við
Kirkjubæjarklaustur og Stapaál,
en hlaupið kvíslast hér út um allt.“
Snorri segir þá vatnamælinga-
menn telja hlaupið úr eystri katlin-
um. „Hann er stærri og lengra
síðan kom úr honum, en það var í
október 2003. Það þykir langur tími
síðan síðast hljóp úr honum,“ segir
Snorri. Á síðustu fimmtíu árum
hafi um fjörutíu sinnum hlaupið úr
kötlunum.
Elín Heiða segir að hvert nýtt
hlaup brjóti hraðar á árbökkunum.
Þau beri einnig með sér meira af
jarðefnum og erfitt sé að bregðast
við og græða upp landið á milli
hlaupanna. Hún segir að þegar
hlaupið réni verði hægt að leggja
mat á tjónið og hefja landgræðslu á
svæðinu að nýju. gag@frettabladid.is
Gróðureyðing Skaft-
árhlaupa gríðarleg
Mikil gróðureyðing er út frá Skaftá af völdum Skaftárhlaupa. Vatnið úr jökul-
katlinum ber með sér sand og eðju. Hlaupið nú náði yfir fjóra nýuppgrædda
sandgeira við ána. Bændur hafa misst búfénað sem festist í drullunni og drapst.
ELDVATN VIÐ ÁSA Hér má sjá rennsli
hlaupsins í rúmmetrum frá miðnætti 23.
apríl til klukkan sex síðdegis í gær.
EITT STÆRSTA SKAFTÁRHLAUPIÐ Sérfræðingur á Vatnamælingasviði segir enn ekki hægt að segja til um stærð Skaftárhlaupsins að þessu
sinni. Það kvíslist um allt svæðið og ekki náist samband við mælinn sem gefi heildarupplýsingarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/NFS
12.00 00.0000.00 12.00
23. apríl 24. apríl
600
400
250
m3/s
DÓMSMÁL Maður missir ökuleyfi
sitt í fjóra mánuði og situr í fang-
elsi í ellefu daga greiði hann ekki
fimmtíu þúsund króna sekt á næstu
fjórum vikum. Hann var stöðvaður
á bifreið undir svo miklum áhrif-
um amfetamíns að hann var ófær
um að stjórna henni örugglega.
Hann hlaut ekki dóm fyrir að hafa
orðið sér úti um fíkniefnin.
Maðurinn neitaði því að hafa
ekki haft stjórn á bifreiðinni þrátt
fyrir að amfetamínmagið í blóði
hans hafi mældist 375 ng/ml, en
við allra stærstu skammta af amf-
etamíni sem gefnir eru í lækn-
ingaskyni er þéttni þess um 150
ng/ml, samkvæmt dómnum. - gag
Óökufær af amfetamíni:
Slapp við dóm
fyrir fíkniefnin