Fréttablaðið - 25.04.2006, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 25. apríl 2006 13
BARIST VIÐ ELD Í KÍNA Slökkviliðsmenn
í kínversku iðnaðarborginni Harbin
berjast við eldsvoða í verksmiðju sem
braust út er sprenging varð í olíugeymi
á sunnudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HEILBRIGÐISMÁL Flogin voru 148
sjúkraflug með flugvélum á árinu
2001 en 381 árið 2004. Sjúkraflug
með þyrlu voru 85 árið 2001 en 80
árið 2004. Þetta er meðal þess
sem fram kemur í svari Sivjar
Friðleifsdóttur, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, við
fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórð-
arsonar, Sjálfstæðisflokki, um
sjúkraflutninga innanlands með
flugvélum annars vegar og
þyrlum hins vegar.
Sjúkraflugin voru í langflest-
um tilfellum utan af landi til
sjúkrastofnana í Reykjavík; 169
af 278 árið 2002, 251 af 365 árið
2003 og 267 af 381 árið 2004. Við-
bragðstími á sjúkraflugi til
Reykjavíkur, frá því kallað er
eftir vél og þangað til hún fer í
loftið með sjúkling, er áþekkur
árin 2002 til 2004; tæp ein og hálf
klukkustund. Stysti tími var 18 til
24 mínútur en lengstur var við-
bragðstíminn fjórar klukkustund-
ir og fjórtán mínútur. Haft skal í
huga að sjúkraflugvél þarf oft að
koma um lengri veg til að sækja
sjúkling og eins geta verið tafir á
flugvelli.
Sambærilegur viðbragðstími
þyrlu Landhelgisgæslunnar er
talinn vera 30 til 45 mínútur þegar
slysstaður er nálægt Reykjavík
en getur verið yfir fjórar klukku-
stundir þegar aðstæður eru erfið-
ar eða þegar millilenda þarf
vegna eldsneytistöku. - shá
Heilbrigðisráðuneytið birtir tölur um sjúkraflug á Íslandi árin 2001 til 2004:
Sjúkraflug eflist ár frá ári
KOMIÐ TIL BJARGAR Sjúkraflug á Íslandi
eflist ár frá ári eins og kemur fram í tölum
frá heilbrigðisráðuneytinu.
ATVINNA Jón Kristjánsson félags-
málaráðherra mælti fyrir helgi
fyrir frumvarpi um frjálsa för
launafólks frá tíu löndum í austan-
verðri Evrópu sem fengu aðild að
Evrópusambandinu fyrir tveimur
árum. Nýjar reglur verða að taka
gildi 1. maí næstkomandi en þá
rennur út eldri samningur um
aðlögun.
Með nýjum lögum verður borg-
urum þessara tíu landa heimilt að
leita sér að vinnu hér á landi og
ráða sig til starfa án sérstakra
dvalar- eða atvinnuleyfa.
Stjórnarandstæðingar gagn-
rýndu hversu seint frumvarpið
kæmi fram og borin von væri að
það fengi fullnægjandi meðferð á
þingi. - jh
Ferðafrelsi til atvinnuleitar:
Alþingi hraðar
meðferð máls
HEIMSÓKN Opinber heimsókn for-
seta Íslands, Ólafs Ragnars
Grímssonar, og eiginkonu hans,
Dorrit Moussaieff, í Austur-
Skaftafellssýslu hefst í dag, 25.
apríl.
Forsetahjónin lenda á Horna-
fjarðarflugvelli klukkan níu og
heimsækja skóla, fyrirtæki og
stofnanir á Höfn en deginum lýkur
með fjölskylduhátíð til heiðurs
forsetahjónunum í íþróttahúsinu.
Á morgun aka forsetahjónin í
Lón um Almannaskarðsgöngin og
síðan að Seljavöllum í Nesjum.
Endapunkturinn í vestri er þjóð-
garðurinn í Skaftafelli. - shá
Forsetahjónin á faraldsfæti:
Heimsækja
íbúa á Höfn
Á FARALDSFÆTI Herra Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, og eiginkona hans,
Dorrit Moussaieff.
LEIÐRÉTTING
Í viðtali við Höskuld Kristvinsson þrí-
þrautarmann nýlega kom fram að hann
væri líklega fyrstur Íslendinga til að ljúka
keppni í Ironman en það er ekki rétt.
Einar Jóhannsson þríþrautarmaður lauk
keppni í Ironman í kringum 1990.
BRUSSEL Alls bárust tæplega fjög-
ur þúsund kvartanir til Umboðs-
manns þegna Evrópusambandsins
á liðnu ári vegna erfiðleika í sam-
skiptum við stjórnsýsluna í
Brussel og hafa þær aldrei verið
fleiri.
Geta allir íbúar aðildarland-
anna lagt fram kvörtun en umboðs-
maðurinn tekur aðeins á hluta
þeirra sem berast; 627 kvörtunum
árið 2005. Bárust þær flestar frá
Spáni og Þýskalandi og megin-
þorri þeirra var vegna ógegnsæis
í stjórnsýslu sambandsins, sem
mörgum þykir enn fremur þung í
vöfum og er ruglingsleg fyrir
meginþorra borgara. - aöe
Tíðar kvartanir íbúa ESB:
Stjórnsýslan
þung í vöfum
JÓN KRISTJÁNSSON Félagsmálaráðherra var
gagnrýndur fyrir seinagang.
Er í boði
Þú gætir m.a. unnið miða á úrslitaleik Meistaradeildarinnar í París, 100.000 kr.
ferðaávísun og margt fleira. Nánari upplýsingar á atlaskort.is og í síma 550 1500.
Skráðu þig í
ATLAS hópinn
á atlaskort.is