Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.04.2006, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 25.04.2006, Qupperneq 22
 25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR4 Það eru svo ótal margar rang- hugmyndir í umferð, bæði hjá almenningi og einnig í fjölmiðl- um, varðandi hreyfingu og nær- ingu. Við þurfum að muna að nota skynsemina og hætta að láta plata okkur með alls konar vit- leysu. Förum yfir nokkur atriði. 10 kíló farin á 4 vikum! Ef það er satt að einhver hafi lést um 8-10 kíló á 4 vikum er líklegt að viðkomandi hafi verið í mik- illi yfirvigt og því ekki um mikla fitu að ræða heldur eðlilega vatnslosun og hreinsun líkamans eftir að hafa byrjað á nýju mataræði. Annars er það mjög óheilsusamlegt og ekki til eftir- breytni að léttast svo mikið á svo skömmum tíma, því við skulum aldrei gleyma að það sem við viljum missa er fita. Vigtin er því oft villandi. Settu þér því raunhæf mark- mið (þessi vísa er aldrei of oft kveðin) og miðaðu við að léttast ekki meira en um hálft kíló á viku eða missa um 2 prósent af fitu á mánuði. Fallegar umbúðir Ekki blekkjast af fallegum umbúðum sem líta „heilsusam- lega“ út. Vendu þig á að afla þér upplýsinga um vöruna sem þú kaupir, rétt eins og þú gerir þegar þú kaupir þér rafmagns- tæki eða bíl sem á að endast. Lestu innihaldslýsinguna á umbúðunum og ef hún er ekki til staðar, ekki kaupa vöruna. Það er í íslenskum lögum að matvara skuli hafa innihaldslýsingu sem sýnir innihald próteins, kolvetn- is og fitu. Helmingi minni fita en áður Ekki láta plata þig þegar skrifað er framan á umbúðir eða í aug- lýsingum: „55 prósent minni fita en áður“ eða „enginn sykur“. Það segir okkur ekkert til um fituinnihald vörunnar, það er að segja hversu mikið af fitunni er mettuð fita (slæma fitan) eða hvort varan sé hitaeiningasnauð eða næringarrík þó það sé eng- inn sykur. Margar sykurlausar vörur eru fituríkar. Athugaðu líka að innihaldslýsingar evr- ópskra matvara byggja á 100 g en bandarískar við einn skammt sem er tilgreindur sérstaklega. Offita er í ættinni! Ekki plata sjálfan þig og gefast upp, vegna þess að offita er algeng í ættinni. Með léttum lyft- ingum og þar með meiri vöðvum, góðri brennslu 2–3 sinnum í viku og heilsusamlegu mataræði get- urðu sannarlega breytt líkama þínum, hvernig sem líkamsbygg- ing fjölskyldunnar er. Mundu að þú berð ábyrgð á þínum líkama og þinni heilsu, en erfðamengi fjölskyldunnar ekki. Að svelta sig Of lítil næring (undir 1.200 hita- einingar fyrir konur) skemmir efnaskipti líkamans (brennsluna). Með svelti fer líkaminn að nota vöðvana sem orkugjafa og þá er voðinn vís. Margar konur hafa til dæmis skemmt efnaskiptin sín með of mörgum megrunarkúrum á yngri árum og það getur leitt til þess að þær eigi auðveldara með að fitna á efri árum. Þarf ekki að fara í líkamsrækt Það þurfa allir að hreyfa sig reglulega, feitir, mjóir, litlir og stórir. Að lyfta lóðum og fá hjart- að til að slá hraðar er ekki bara til að létta sig. Með því dregur þú úr líkum á hjarta- og æðasjúkdóm- um, krabbameini og sykursýki. Það styrkir beinin, bætir líkams- stöðu, húð og frísklegt útlit. Að auki bætir það árum og lífsgleði við lífið. Og þetta er bara brot af kostum reglulegrar hreyfingar. Ég verð því að viðurkenna að það sló mig að sjá tilvitnun bókagagn- rýnanda bókarinnar „Franskar konur fitna ekki“ í auglýsingu bókaforlagsins, sem sagði að nú þyrfti hún ekki að fara í líkams- ræktina. Bókin er örugglega fín, en ákveðið mataræði getur aldrei komið í staðinn fyrir hreyfingu. Ekkert kemur í staðinn fyrir hreyfingu. Að lokum segi ég þetta: Ef eitt- hvað hljómar of gott til að vera satt, þá er það oftast raunin. Kær kveðja, Borghildur Ekki láta plata þig! Morgunverðarfundur um áfeng- ismeðferð á afplánunartíma fanga verður haldinn 27. apríl kl. 8-10. Á fundinum, sem haldinn verður á Grand Hóteli í Reykjavík, munu Sigurður Karlsson vímuefnaráð- gjafi og Guðrún M. Einarsdóttir lýsa reynslu Samhjálpar af því að hafa fanga í meðferð. Afeitrun og niðurtröppun vímuefnaneytenda við upphaf afplánunar og eftir- fylgni er annað efni fundarins. Þar kemur fram Óskar Arnórsson vímuefnaráðgjafi og psykoterap- eut og Guðrún Þ. Ágústsdóttir félagsráðgjafanemi mun kynna rannsókn sína á því hvaða úrræði fangar eru að nýta sér og hvað þeim finnst vanta. Að lokum verða umræður og fyrirspurnir. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst í netfangið hall- dorp@tmd.is. Þátttökugjald er kr. 1500 og greiðist við inngang. Inni- falið er morgunverður, kaffi/te og dagskrárgögn. Áfengismeð- ferð fanga Fangar eiga að geta nota afplánunartímann í fangelsinu til að fara í afvötnun. Heilbrigð sál BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR EINKAÞJÁLFARI OG B.A. Í SÁLFRÆÐI Orkudrykkir blandaðir áfengi hafa verið í umræðunni síðustu vikur. Orkudrykkir í bland við áfengi leiða til brenglaðrar skynjunar neytandans. Vinsæll drykkur á börum og í teitum er blanda áfengis og orku- drykkjar. Niðurstöður nýlegrar brasilískrar rannsóknar benda til að slík blanda hafi slæm áhrif á skynjun og raunveruleikaskyn neytandans. Í rannsókninni sögðust flestir þátttakenda finna fyrir minni þreytu og auk- inni ánægju þegar orku- drykkjum var blandað við áfengið. Hins vegar upplifðu þeir einnig að hæfni þeirra skertist til muna. Neytandinn upp- lifir meiri vímu og einnig meiri ein- beitingu þegar drukkið er áfengi blandað orkudrykk. Þetta getur leitt til slæmra ákvarðana, eins og að setjast undir stýri, þar sem víman virðist minni og einbeit- ingin meiri. Í sömu rannsókn kemur einnig fram að þeir sem blandi áfengi við orkudrykki finni fyrir minni timburmönnum daginn eftir neyslu. Þó svo að höfðuverkur- inn, munnþurrkurinn og slapp- leikinn virðist ekki angra drykkju- manninn daginn eftir er hann engu að síður með jafn skerta samhæfingargetu og jafn við- bragðsseinn og sá sem blandaði sitt áfengi með öðru en orkudrykk. Fólk á það því til að draga þá álykt- un að þynnkan sé liðin hjá og ákveðið að setjast undir stýri löngu áður en líkami og hugur ráða við það. Varist orkudrykki í bland við áfengi Orkudrykkir og áfengi eru ekki góð blanda. Líkaminn er gerður til að lifa í 120 ár segja vísindamenn. Maður lifandi stendur fyrir fyrir- lestri milli 18.00 og 19.30 í kvöld. Þar svarar Örn Jónsson sjúkra- nuddari áleitnum spurningum og stiklar á stóru á því helsta sem þarf að sinna til að ná og viðhalda góðri heilsu því eins og bent er á í fréttatilkynningu frá Maður lif- andi hafa vísindamenn komist að þeirri niðurstöðu að líkaminn sé gerður til að lifa í 120 ár. Nokkrar af þeim spurningum sem Örn reynir að svara eru: Ráðum við yfir heilsunni eða er hún fyrirfram ákveðin? Er góð heilsa sjálfsögð? Liggur galdurinn í að næra okkur meira andlega? Fyrirlesturinn verður haldinn í Borgartúni 24 og kostar 1.000 krónur inn. Frekari upplýsingar á www.madurlifandi.is Heilsan í fyrirrúmi Sá sem ekki hefur tíma fyrir heilsuna í dag hefur ekki heilsu fyrir tímann á morgun. Bailine vaxtarmótunarmeðferð NÝTT á Íslandi Eru línurnar vandamál ? Við bjóðum þér upp á ÓKEYPIS PRUFUTÍMA í tölvustýrðu þjálfunartæki á meðan þú liggur og slakar á í notalegu umhverfi. Viltu grenna þig og minnka ummálið, nú hefur þú tækifærið. Hringdu núna í síma 568 0510 og kynntu þér málið. Þú hefur engu að tapa nema sentimetrum. Vegmúli 2 108 Reykjavík sími 568 0510 www.bailine.is Fyrir konur 18 ára og eldri. Reiki Heilunar- og sjálfsstyrkingarnámskeið RVK Kvöld- og helgarnámskeið í boði, næstu námskeið eru: I. stig helgarnámskeið 29. og 30. apríl. II. stig kvöldnámskeið 9. – 11. maí. Fyrir bætta líðan og betri stjórn á lífi þínu. Pantanir í síma 553 3934 milli kl. 10 og 13 virka daga. Guðrún Óladóttir reikimeistari Þeir sem hafa áhuga á framhaldsnám- skeiði í sjálfsstyrkingu hafi samband. Þú nærð árangri hjá okkur Losum þig við appelsínuhúð Grennum, stinnum, afeitrum og brúnkum Velkomin í prufutíma Pantaðu tíma í síma 587-3750 Englakroppar.is Stórhöfða 17 F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.