Fréttablaðið - 25.04.2006, Qupperneq 38
25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR26
Álit dómnefndar:
Kristján Bjarki Jónasson:
Sambandsslit sett í algerlega nýtt og magnað samhengi.
Frumleiki, kraftur og fyndnir taktar.
Ragnheiður Eiríksdóttir:
Eins og súrrealísk bíómynd, eða manneskja á barmi sturl-
unar. Það tvennt er bæði mjög spennandi og þetta ljóð er
það líka. Fær mig til að hugsa um eldrauðan varalit.
Þórarinn Þórarinsson:
Það er eitthvað eitthvað ómótstæðilegt við skapahár í
ljóðum. Erótík og dauði er svo auðvitað sígildur dúett
þannig að þetta kveikir vel í manni.
Æðar Japans
Meðan þú bróderar dreka í dúnúlpuna
þína, plokka ég af mér píkuhár til þess að
þú verðir ekki uppiskroppa með tvinna.
Þú gerir lítið úr fórn minni og segir frá því
hvernig fyrrverandi kærasta þín frá Japan
hafi eytt fjórum klukkutímum á dag í að
plokka æðarnar úr rækjunum sem hún hafi
vandlega valið í rækjusalatið þitt. Ólýsan-
legur glæsibragur hafi verið yfir agaðri beit-
ingu hennar á flísatönginni sem hún hafði
sjálf steypt úr skartgripum ömmu sinnar.
Þegar þú sefur stelst ég til að strengja tippa-
hárin þín í litla hörpu og spila á þau lag sem
ég hef samið um þig. Svo dansa ég í takt
við andardrátt þinn. Þú vaknar meðan ég er
að slamma við þungarokkshroturnar í þér.
Þú hlærð einsog freðinn risarostungur og
eftir hálftíma af óbærilega sársaukafullum
þrumuhlátri, hjóla ég rakleiðis á barinn og
þamba að botninum á viskíflösku.
Þú finnur mig næsta morgun þar sem ég
ligg dauð á framrúðunni á bláum Volvo. Þú
starir inní blóðhlaupin augu eftir hamfara-
flóð af áfengum tárum.
Þú segist vilja slíta sambandinu því þú sért
eiginlega meira fyrir japanskar konur.
Það er eins og í sálinni
svamli óragrúi tilfinninga.
Straumþungt stórfljót
sem streymir í átt að ljóði.
Ekki bara hvaða ljóði sem er
heldur
innihaldsríku og djúpu.
En þar liggur vandinn
ég er bara stelpugopi.
Ég er hvorki ástfangin
né í ástarsorg.
Ég hef ekki skoðanir á varnarliði
eða vatnalögum.
Ég hef enga sérstaka innsýn
í mannlegt eðli.
Eða get skrifað á hnyttinn hátt
um hátterni fólks.
En ég veit að Marissa skaut Trey,
í ðe ósí.
Og Rory Gilmore svaf hjá Dean,
þó hann væri giftur.
Bara.
Bara ef ég væri alvöru.
Alvarleg með skoðanir á hreinu.
Þá gæti ég kannski túlkað
þessar tilfinningar sem krauma
innra með mér.
Í dag mætast ungskáldin Ásta Heiðrún Elísabet Péturs-
dóttir og Unnur Andrea Einarsdóttir í úrslitaviðureign
Sigurskáldsins 2006, ljóðakeppni Eddu og Fréttablaðs-
ins. Dómnefnd valdi átta ljóð af um 400 innsendum ljóð-
um í aðalkeppnina og nú standa Æðar Japans og nafn-
laust ljóð Ástu tvö eftir. Unnur hafði betur en Atli
Bollason í fjögurra ljóða úrslitum og Ásta komst í úrslit-
in eftir sigur á Hildi Lilliendahl Viggósdóttur í gær.
Lesendur fá því nú tækifæri til þess að velja Sigur-
skáldið með því að kjósa það ljóð sem þeim hugnast
betur í SMS-kosningu. Sigurvegarinn verður svo kynnt-
ur í blaðinu á miðvikudag.
Úrslitaviðureign
SigurskáldsinsEf þú kýst ljóð Ástu sendir þú SMS-skeytið JA L2 í núm-erið 1900*.Ef þú kýst ljóð Unnar sendir þú SMS-skeytið JA L6 í
númerið 1900*.
* Hvert skeyti kostar 99 krónur.
HVERNIG VELUR ÞÚ LJÓÐ?
Til að kjósa þitt ljóð sendir þú einfaldlega SMS-skeyti,
eitt eða fleiri.
Dregið verður úr innsendum SMS-skeytum á hverjum degi. Vinningshafi dagsins
fær bókina Minningar um döpru hórurnar mínar eftir Gabriel Garcia Marquez.
Álit dómnefndar:
Kristján Bjarki Jónasson:
Sannleikurinn um okkur öll, sagður á umbúðalausan og
glæsilegan hátt. Flott ljóð.
Ragnheiður Eiríksdóttir:
Raunsæi ungra kvenna í dag, þar sem raunverulegasti
hlutur lífs þeirra er bandarískur sjónvarpsþáttur. Þráin
eftir frekari dýpt verður sjálf dýptin.
Þórarinn Þórarinsson:
Afskaplega „ljóðalegt“ ljóð sem fangar vel angistina sem
fylgir því að vera hugsandi manneskja í
neyslusamfélagi.
ÁSTA HEIÐRÚN ELÍSABET PÉTURSDÓTTIR Fædd 1984. UNNUR ANDREA EINARSDÓTTIR Fædd 1981.
Kínverski herinn hefur gripið til
sterkra meðala til að skilja hafr-
ana frá sauðunum. Héðan í frá
verður engum með húðflúr hleypt
í herskóla landsins, allir umsækj-
endur þurfa að gangast undir sál-
fræðimat og lyfjapróf og mega
ekki hrjóta ofan í kaupið.
Frelsisher lýðveldisins gaf út
hin nýju inntökuskilyrði á sunnu-
dag og þar segir að þar sem húð-
flúr séu til þess fallin að gengis-
fella ímynd hersins verði þau
bönnuð og jafnvel þeir sem bera ör
eftir að hafa látið fjarlægja húð-
flúr af sér fá ekki inngöngu.
Undantekning verður þó gerð fyrir
þá sem bera húðflúr sem er ein-
kennandi fyrir sinn ættbálk, svo
lengi sem það sjáist ekki þegar
þeir eru í stuttbuxum. Þar til bærir
sérfræðingar verða látnir meta
andlegt ástand umsækjandanna
auk þess sem þeir verða látnir gefa
þvagsýni fyrir lyfjapróf svo hægt
sé að ganga úr skugga um að þeir
hafi ekki neytt ólöglegra vímu-
gjafa. Ekki hefur verið greint frá
hvernig sannreynt verður hvort
umsækjendur hrjóti hátt eða ekki.
Talsmenn hersins segja að með
þessu móti vilji þeir í senn sporna
óreglu meðal ungs fólks, en vímu-
efnavandi er vaxandi vandamál í
Kína, og tryggja að aðeins úrvals-
fólk veljist í herinn. Þannig verði
herinn eftirsóknarverður kostur
fyrir ungmenni sem muni hvetja
þau til að breyta rétt til að eiga
möguleika á inngöngu.
Bannað að hrjóta í kínverska hernum
KÍNVERSKIR HERMENN Ekki verður ráðið af myndinni hvort þessir hrjóti hátt.
NORDICPHOTOS/AFP
2 fyrir 1 á sérstakar MasterCard forsýningar á einni
fyndnustu mynd ársins — Rauðhetta eins og þú hefur
aldrei séð hana áður! Þú vilt ekki missa af þessari!
MasterCard korthafar fá 2 miða á verði eins á neðan-
greindar sýningar, greiði þeir með kortinu.
Myndin verður frumsýnd með íslensku og ensku tali
28. apríl í Smárabíói, Regnboganum, Laugarásbíói,
Borgarbíói Akureyri og Selfossbíói.
2 fyrir 1 á þessar sýningar
25. apríl kl. 20.00 - enskt tal
26. apríl kl. 18.00 - íslenskt tal
27. apríl kl. 18.00 - íslenskt tal
Bíóklúbbur MasterCard
- góða skemmtun!
Nánar á www.kreditkort.is/klubbar
Raudhetta_dagblod.ai 24.4.2006 10:25:48