Fréttablaðið - 25.04.2006, Page 42

Fréttablaðið - 25.04.2006, Page 42
30 25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? APRÍL 22 23 24 25 26 27 28 Þriðjudagur ■ ■ LEIKIR  19.15 Valur og Haukar mætast í deildarbikar kvenna í handbolta í Laugardalshöllinni.  19.15 ÍBV og Stjarnan mætast í deildarbikar kvenna í handbolta í Vestmannaeyjum. ■ ■ SJÓNVARP  17.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn. Fjallað verður um HM í sumar.  18.30 Meistaradeildin á Sýn. Bein útsending frá leik Villarreal og Arsenal. ÍSHOKKÍ Þó að íshokkí sé tiltölulega ný íþróttagrein á Íslandi, og aðstæðurnar ekki verið upp á marga fiska þar til fyrir skömmu, hefur Íslendingum fleygt fram í íþróttinni enda metnaðarfullt og duglegt fólk sem stendur á bak við starfsemi íþróttarinnar. Þetta fólk hefur nú ráðist í það stórverkefni að halda HM hér á landi. Ísland leikur í 3. deild en okkar menn féllu á grátlegan hátt úr 2. deild í fyrra á aðeins einu marki. Stefnan er að komast beint aftur upp úr 3. deildinni á heima- velli en mótið var sett í gærkvöldi og íslenska liðið mætti síðan liði Lúxemborg eftir mótssetningu í sínum fyrsta leik. Með Íslandi og Lúxemborg í riðli eru Armenía, Tyrkland og Írland en flest þessi lið eru frekar jöfn að getu og er búist við spenn- andi leikjum í Laugardalnum. Ísland mætir Írlandi á miðviku- dag, Armenum á fimmtudag og loks Tyrkjum á laugardag en allir leikir íslenska liðsins hefjast klukkan 20. - hbg Karlalandslið Íslands í íshokkí tekur þátt í HM 3. deildar: HM fer fram alla vikuna í Skautahöllinni í Laugardal ÁFRAM ÍSLAND Fólk er hvatt til þess að mæta á völlinn og hvetja íslenska liðið til dáða á HM en Ísland ætlar sér að komast upp í 2. deild. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÍÞRÓTTIR Skíðadeild ÍR er búin að leigja Orkuveitunni skíðasvæðið sitt, Hengilssvæðið, og hefur einnig gefið leyfi á að svæðinu verði breytt í malarnámu. Mun deildin því flytja rekstur sinn yfir í Bláfjöll. Alls hagnast félagið á þessum aðgerðum um 30 milljón- irr króna en ekki eru allir á eitt sáttir um hvernig eyða eigi pen- ingunum. Aðalstjórn félagsins mælir með því að milljónunum verði skipt upp á eftirfarandi hátt: Skíðadeild- in fær rúmar 6 milljónir í rekstr- arfé. Síðan mælist aðalstjórnin til þess að frjálsíþróttadeildin fái 2,7 milljónir króna sem notaðar verði til að greiða upp lán. Sama á við um fótboltann og körfuboltann sem fá 6 milljónir króna hvort til að greiða upp lán en handknatt- leiksdeildin fær eina milljón til að greiða upp það litla sem deildin skuldar. Síðustu 8 milljónirnar fara síðan í sjóð sem verður í umsjá aðalstjórnar. Þess utan mælist aðalstjórnin til þess að 11,2 milljóna króna skuld körfuknattleiksdeildarinnar verði afskrifuð, sem og 1,2 milljón króna skuld knattspyrnudeildar- innar við aðalstjórn. Með öðrum orðum þurrkast út 17,2 milljóna króna skuld körfuknattleiksdeild- arinnar á einu bretti og knatt- spyrnudeildin verður laus við 7,2 milljóna króna skuld. Þessi tillaga hefur farið mjög illa í forkólfa handknattleiksdeildar ÍR, sem segja aðalstjórnina vera að senda út röng skilaboð. „Það er einfaldlega verið að verðlauna skussana og þau skila- boð send út að engu skipti hversu óábyrgur rekstur þeirra sé. Það verði alltaf hreinsað upp eftir þá. Við sem höfum verið að reka okkar deild skynsamlega fáum síðan ekk- ert fyrir okkar snúð þegar loksins kemur peningur en við hefðum svo sannarlega getað nýtt eitthvað af þessum peningum sem karfan og fótboltinn er að fá þegar við mis- stum allt okkar lið fyrir ári síðan. Þrátt fyrir missinn héldum við rekstrinum í réttu formi og fórum ekki að eyða peningum sem við eigum ekki,“ sagði Hólmgeir Ein- arsson, sem staðið hefur í stafni handknattleiksdeildarinnar til margra ára en er að draga sig út af heilsufarsástæðum. Hann tók sig til á sínum tíma og hreinsaði upp skuldir handknattleiksdeildar með hjálp góðra manna á sínum tíma og hefur æ síðan rekið deildina án þess að stofna til skulda. „Sjáðu síðan hvernig deildirn- ar bregðast við þegar þær sjá að það er verið að fara að draga þær upp úr skuldafeninu. Körfuknatt- leiksdeildin semur við dýrasta þjálfara landsins og svo er spurn- ing hvort honum fylgi ekki dýrir leikmenn. Knattspyrnudeildin til- kynnir síðan að kvennaliðið ætli að flytja inn þrjá erlenda leik- menn og auglýsir eftir húsnæði. Með öðrum orðum virðast þessar deildir ætla að fara beint í sama farið og stofna aftur til skulda,“ sagði Hólmgeir þungur á brún en hann hefur ekki gefið upp alla von um að þessari tillögu verði breytt. henry@frettabladid.is Skussarnir verðlaunaðir Hólmgeir Einarsson, stjórnarmaður í handknattleiksdeild ÍR, gagnrýnir vinnu- brögð aðalstjórnar félagsins harðlega. Aðalstjórn hyggst hreinsa upp skuldir íþróttadeilda félagsins en deildin sem er með reksturinn í lagi fær enga umbun. ÓSÆTTI Innan þessara veggja í ÍR-heimilinu verður eflaust hart tekist á um hvað gera skuli við milljórnir þrjátíu sem fást fyrir leigu Hengilssvæðisins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR > Stórskytta til ÍBV? Kvennalið ÍBV í handboltanum hefur átt í viðræðum við rúmensku stórskyttuna Alinu Petrache um að hún gangi til liðs við Eyjaliðið á næstu leíktíð. Petrache þessi leikur með Constanta og fór mikinn í tveimur leikjum liðsins gegn Valsstúlkum í undanúrslitum Áskorendakeppni Evrópu. Leikmenn Vals réðu ekkert við hana í leikjunum tveimur, en samtals skoraði Petrache 26 mörk og er ljóst að þar er á ferð skytta sem yrði í allra fremstu röð á Íslandi. „Við erum að skoða málið og sjá hvort það er mögu- leiki á að fá hana. Við erum nokkuð spenntir,“ staðfesti Hlynur Sigmarsson hjá handknattleiksdeild ÍBV við Frétta- blaðið í gær. Varnarmaðurinn ungi hjá Leikni, Halldór Kristinn Halldórsson, er kominn aftur til landsins eftir að hafa dvalið í vikutíma á reynslu hjá AZ Alkmaar í Hollandi. Eins og kunnugt er spilar landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson með liði AZ og segist Halldór hafa verið kunnugt um það áður en hann hélt utan. Það er þó ekki í frásögur færandi nema að þegar þeir hittust í fyrsta sinn í Hollandi hafði Halldór ekki hugmynd um við hvern hann var að tala. „Ég hitti hann fyrst á hótelherberginu mínu. Hann gekk inn í herbergið og sagði hæ. Ég sagði á móti „english, please“. Hann gaf mér skrítinn svip og sagði síðan: „Eigum við ekki bara að tala íslensku, vinur?“ Þetta var mjög sér- stakt. Ég vissi ekkert hver þessi náungi væri,“ segir Halldór, sem augljóslega hefur ekki gert mikið af því að horfa á leiki íslenska landsliðsins að undanförnu. „Við getum orðað það svo að mér finnst mun skemmtilegra að spila fótbolta en að horfa á hann. Ég vissi ekkert hvernig Grétar leit út,“ segir Halldór en hann og Grétar gátu hlegið að misskilningnum það sem eftir var dagsins. Halldór, sem er nýorðinn átján ára gamall, æfði með varaliði AZ í viku og lék einn leik með U-19 ára liði félagsins. „Ég held að mér hafi gengið bara nokkuð vel og ég get vel hugsað mér að fara til þessa liðs. Þeir hafa sagt mér að þeir hafi verið ánægðir með mig en að það vanti nokkuð upp á grunntæknina. Þeir ætla að fylgjast með mér í U-19 ára landsliðinu og ef vel gengur þar getur allt gerst,“ sagði Halldór að lokum. LEIKNISMAÐURINN HALLDÓR KRISTINN HALLDÓRSSON: ÞEKKTI EKKI GRÉTAR RAFN STEINSSON Í SJÓN „Eigum við ekki bara að tala íslensku?“ HANDBOLTI Lokaspretturinn á tíma- bilinu í kvennaboltanum hefst í kvöld þegar fyrstu leikirnir í hinni nýju keppni, deildarbikarnum, fara fram. Þáttökurétt hafa liðin sem enduðu í fjórum efstu sætum DHL-deildarinnar og er um að ræða útsláttarkeppni í anda úrslitakeppninnar sálugu. Í Laugardalshöll mætast Valur og Haukar en í Eyjum taka Íslands- meistarar ÍBV á móti Stjörnunni. Það hefur andað köldu á milli þess- ara liða og skotin gengið á víxl síð- ustu vikur eftir að ÍBV grunaði að markvörður sinn, Florentina Grecu, væri búinn að semja við Stjörnuna og kærði ÍBV málið í kjölfarið. Grecu lýsti því síðan yfir í viðtali við Fréttablaðið í síð- ustu viku að hún vildi breyta til og sagði að það væru 80% líkur á að hún spilaði með Stjörnunni á næstu leiktíð. Sumir Eyjamann hafa gengið svo langt að þeir vilja ekki sjá Grecu spila sé það rétt að hún sé á leið í Garðabæinn en ljóst er að þetta mál gerir viðureign lið- anna áhugaverðari en ella. Sigur í þessari keppni gefur sæti í Áskorendakeppni Evrópu á næsta ári. - hbg Deildarbikar kvenna: Mun Grecu spila með ÍBV? FLORENTINA GRECU Fagnar hér Íslands- meistaratitlinum á dögunum. FÓTBOLTI Malcolm Glazer, hinn hataði aðaleigandi Manchester United, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi eftir að hafa fengið heilablóðfall á páskadag. Hinn 78 ára gamli Glazer, sem keypti meirihluta í Man. Utd. síðasta sumar, er enn ekki komið með fullt vald á máli sínu og er með skadd- aða hreyfigetu hægra megin á lík- amanum. Í yfirlýsingu sem barst frá syni hans Joel segir að læknar búist við því að Malcolm nái góðum bata en þó er ekki víst að hreyfigetan komi aftur að fullu. - vig Malcolm Glazer: Fékk heilablóð- fall á páskadag MALCOLM GLAZER Er orðinn 78 ára gamall og aldurinn er farinn að segja til sín. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES ������������������������������ �� ������������������������� ��� �� Valur vék fyrir Garðari Leikur Vals og ÍR í DHL-deild karla í handbolta, sem fara átti fram í Laug- ardalshöllinni á laugardag, hefur verið færður yfir í Víkina. Vegna mistaka var Höllin tvíbókuð þennan dag en um kvöldið eru á dagskrá stórtónleikar með Garðari Thor Cortes og Katherine Jenkins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.