Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 2
2 27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
LÖGREGLA Þjófur skyldi teygjuna úr
nærbuxunum sínum eftir í glugga
sem hann hafði spennt upp og farið
inn um, í myndbandaleiguna Bón-
usvídeó við Grundarstíg í Þingholt-
unum. Hann stal sígarettum.
Glugginn sem hann spennti upp
til innbrotsins var einungis þrjá-
tíu sentimetrar á hæð og breidd.
Lögreglan í Reykjavík segir að
þótt opið sé lítið sé ekki hægt að
útiloka að fullorðinn maður hafi
verið að verki. Vegfarandi kom
auga á þjófinn á útleið og lét lög-
reglu vita, en klukkan var fjögur
um nótt. Lögreglan segir teygjuna
og gluggastærðina þrengja mjög
leitina að þjófinum. - gag
Innbrot í myndbandaleigu:
Leitað að laus-
girtum þjófi
VIÐSKIPTI Landsbankinn hefur
ákveðið að selja hlut sinn í sænska
fjármálafyrirtækinu Carnegie.
Deutsche Bank mun sjá um söl-
una til alþjóðlegra fjárfesta. Gera
má ráð fyrir að bankinn fái um 24
milljarða fyrir hlut sinn í bankan-
um og hagnaðurinn nemi um tólf
milljörðum króna sem er álíka
mikið og bankinn greiddi fyrir
verðbréfafyrirtækin Kepler og
Merrion á síðasta ári.
Hagnaður bankans yrði þá svip-
aður og hagnaður FL Group af
sölu hlutar í easyJet sem var
annar mesti innleysti hagnaður
íslenskrar viðskiptasögu. Hækk-
anirnar hafa gert yfirtöku minna
fýsilega fyrir Landsbankann.
Bankinn eignaðist hlutinn í
ágúst í fyrra og hefur verðmæti
hans ríflega tvöfaldast frá þeim
tíma. - hh
Landsbankinn:
Vill selja hlut
sinn í Carnegie
VARNARMÁL Geir H. Haarde, utan-
ríkisráðherra, hélt til Búlgaríu í
gærkvöldi. Þar hittast utanríkisráð-
herrar Atlanthafsbandalagsland-
anna, NATO, í dag og
hefst fundur þeirra
klukkan fjögur að
búlgörskum tíma.
Hvorki íslenska
né bandaríska sendi-
nefndin sem ræddu
um varnir Íslands
vildu láta hafa nokk-
uð eftir sér eftir
fjögurra klukku-
stunda fund þeirra í gær. Seinni
fundurinn verður í dag. Drög að
hervörnum voru rædd á fundinum.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
aðstoðarmaður Geirs og nefndar-
maður í viðræðunum, segir fund
utanríkisráðherranna einn af reglu-
legum fundum þeirra. Spurð um
hvort varnarmálin yrðu rædd eða
hvort óformlegir fundir færu fram
sagði hún: „Það eina sem ég get sagt
er að þessi mál eru ekki á dagskrá
og ekkert hefur verið skipulagt í
kringum það.“
Halldór Blöndal, formaður utan-
ríkismálanefndar Alþingis, segir
nefndina koma saman á laugardag.
Geir sitji fundinn og greini henni frá
niðurstöðum varnarviðræðnanna og
því sem rætt verður meðal utanrík-
isráðherranna í Búlgaríu. - gag/jh
Fyrri fundi Íslands og Bandaríkjanna um varnir landsins lokið:
Geir farinn á NATO fund
GEIR H. HAARDE
VIÐ UPPHAF FUNDAR Þrettán Bandaríkja-
menn og níu Íslendingar skipa nefndirnar
tvær sem ræða um breyttan varnarsátt-
mála. Carol van Voorst sendiherra fer fyrir
þeirri bandarísku og situr hér fyrir miðju.
Albert Jónsson, gegnt henni, fer fyrir þeirri
íslensku. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL.
VARNARMÁL Varnarmálanefnd
hefur aðeins einu sinni komið
saman til fundar frá því í maí árið
2003. Samanlagður kostnaður við
nefndina undanfarin þrjú ár
nemur engu að síður nærri sex
milljónum króna.
Þetta kemur fram í svari Geirs
H. Haarde utanríkisráðherra við
fyrirspurn Jóns Gunnarssonar,
þingmanns Samfylkingarinnar.
Hann spurðist fyrir um nefndina
vegna væntanlegrar brottfarar
varnarliðsins.
Sex manns eiga sæti í nefnd-
inni en hún var upphaflega skipuð
árið 1951 og er vettvangur sam-
skipta við varnarliðið. - jh
Spurt um varnarmálanefnd:
Dýr fundur
um varnarmál
SAMGÖNGUR Fyrsti kostur er að
leggja Sundabraut í jarðgöngum
undir Kleppsvík.
Þetta varð niðurstaða samráðs-
hóps um lagninu Sundabrautar sem
samþykkti í gær tillögu um hönnun,
rannsóknir og kostnaðarmat á slík-
um göngum. Þau yrðu lögð frá
Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi
að Laugarnesi.
Formaður hópsins er Dagur B.
Eggertsson, en auk hans er hópurinn
skipaður fulltrúum borgarstjórnar,
Vegagerðarinnar, Faxaflóahafna og
íbúasamtaka í Laugardal og Grafar-
vogi. Tillagan um jarðgöngin var
samþykkt einróma.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sagði á Alþingi í gær að hann
vildi láta kanna í fullri alvöru mögu-
leika á að hefja gerð Sundabrautar
frá syðri munna Hvalfjarðarganga
að þeim stað sem Sundabraut þverar
Kollafjörð.
„Misseri eftir misseri eru sam-
gönguyfirvöld dregin á svari um það
hvar Sundabraut megi liggja yfir
Kleppsvíkina.“ Sturla sagði að Dagur
B. Eggertsson, formaður skipulags-
ráðs borgarinnar, héldi því fram að
tafir væru vegna óvissu um fjár-
mögnun verksins. „Þetta er auðvitað
alger fyrra... Það er leitt til þess að
hugsa að hugtakið dagsatt fái nýja
og miður góða merkingu þessa dag-
ana.“
Sturla sagði að með þvi að hefja
verkið á Kjalarnesi kæmist umferð-
aröryggi þar í gott horf, en það var
tilefni umræðunnar á Alþingi í gær.
Helgi Hjörvar, Samfylkingunni,
sagði að samgönguráðherra Sjálf-
stæðisflokksins hefði fyrst og fremst
varið skattfé því sem af höfuðborg-
arsvæðinu kæmi til vegafram-
kvæmda á landsbyggðinni. „Hann
gengur trúlega frá samningi um
Héðinsfjarðargöngin eftir helgi,“
sagði Helgi.
„Sannleikurinn er sá að Reykja-
víkurborg hefur verið í gíslingu
andúðar samgönguráðherra og Sjálf-
stæðismanna að því er varðar vega-
framkvæmdir innan Reykjavíkur,“
sagði Atli Gíslason, vinstri grænum.
Dagur B. Eggertsson segir
ummæli samgönguráðherra ósmekk-
leg og furðulega tímasett. Honum
væri nær að tryggja fjármögnun
Sundabrautar en láta af hótunum um
að senda borgarbúum reikninginn ef
ekki verði valinn ódýrasti kosturinn.
Um þann kost verði aldrei sátt.
johannh@frettabladid.is
Vilja að Sundabraut
verði í jarðgöngum
Samráðsnefnd samþykkti í gær að mæla með því að leggja Sundabraut frá
Laugarnesi í jarðgöngum yfir í Gufunes. Samgönguráðherra undrast tafir af
hálfu borgarinnar og vill hefja framkvæmdir Sundabrautar á Kjalarnesi.
LIKAN AF SUNDABRAUT YFIR KLEPPSVÍK Engin sýnileg samgöngumannvirki yrðu yfir Kleppsvíkina í Gufunes ef Sundabraut verður lögð í
göngum úr Laugarnesi.
DAGUR B. EGGERTS-
SON
STURLA BÖÐVARSSON
SPURNING DAGSINS?
Stefán Máni, ertu forlagatrú-
ar?
Já, ég trúi á hið góða í forlaginu.
Rithöfundurinn Stefán Máni skipti um forlag
en hann gaf áður út bækur sínar hjá Eddu
útgáfu en hefur nú gengið frá samningi við
JPV útgáfu.
FJÖLMIÐLAR Dagablaðasafnið sem
365 gaf Landsbókasafni Íslands var
lengi vel í eigu Sveins R. Eyjólfs-
sonar, fyrrverandi útgefanda Vísis.
Safnið inniheldur öll tölublöð
Vísis, Dagblaðsins, Þjóðviljans,
Tímans og Morgunblaðsins frá síð-
ustu öld. Uppistaðan í safninu er
sögufrægt safn Böðvars Kvaran en
Sveinn eignaðist það í kringum
1970. Safnið var þá óinnbundið en
Sveinn sá til þess að blöðin yrðu
bundin inn og frá þeim gengið með
snyrtilegum hætti. 365 eignaðist
safnið í framhaldi af kaupum á
DV. - mh
Sveinn R. Eyjólfsson fyrrverandi blaðaútgefandi:
Byggði safn dagblaða upp
BANDARÍKIN, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti tilkynnti í vik-
unni að hann myndi tímabundið
rýmka lög um náttúruvernd vegna
bensínframleiðslu og -notkunar í
Bandaríkjunum. Tilgangurinn er
að lækka kostnað neytenda við
eldsneytiskaup.
Bush sagði það varða þjóðarör-
yggi að gera Bandaríkin minna
háð innflutningi á olíu, en þau
flytja inn um 60 prósent olíuþarf-
ar sinnar. Hann hvatti þingmenn
til að breyta skattalögum þannig
að almenningur eigi hægara með
að kaupa sér bifreiðar sem ganga
fyrir öðru eldsneyti en bensíni,
svo sem etanóli. - smk
Bandaríkjaforseti:
Bensínið fram
yfir umhverfið
GEORGE W. BUSH Bandaríkjaforseti lofaði
að lækka umhverfisstaðla vegna bensín-
kostnaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MORÐMÁL Lögreglan í El Salvador
handtók fjóra menn þann 4. apríl
sem grunaðir eru um morðin á
Jóni Þór Ólafssyni og Brendu Sal-
inas Jovel í febrúar síðastliðnum.
Við handtökuna upphófst skot-
bardagi þar sem lögreglumaður
frá ferðamannalögreglunni lést
auk þess sem lögreglumaður og
einn hinna handteknu særðust.
Grunur lögreglunnar vaknaði
þegar til fjórmenninganna sást á
bíl sem var með sama bílnúmeri
og sá sem þau Jón og Brenda voru
flutt í áður en þau voru myrt, að
sögn Salvador Martínez, upplýs-
ingafulltrúa lögreglunar. Lögregl-
an hafði veitt þeim eftirför áður
en til handtöku kom. Mennirnir
eru einnig grunaðir um mannrán
og önnur rán. - jse
Morðrannsókn í El Salvador:
Fjórir verið
handteknir
Slys í Hvalfjarðagöngum Bílslys
varð í Hvalfjarðagöngum um hálfníu-
leytið í gærkvöldi. Lögregla, sjúkrabíll og
slökkvilið voru kölluð á staðinn. Þegar
Fréttablaðið fór í prentun var ekki ljóst
hversu alvarlegt slysið var.
LÖGREGLUFRÉTT
SVEINN R. EYJÓLFSSON Fyrr-
verandi útgefandi Vísis safnaði
íslenskum dagblöðum í áratugi.
BAUGSMÁLIÐ Ný ákæra í Baugsmál-
inu verður þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í dag.
Saksóknari mun leggja fram
frekari gögn með þeim 19 ákærulið-
um sem munu fara fyrir dóm. Þeirra
á meðal verða gögn frá skattrann-
sóknarstjóra. Jón Ásgeir Jóhannes-
son, Tryggvi Jónsson og Jón Gerald
Sullenberger eru bornir sökum í
málinu, en það er reist á ákæruat-
riðum sem dómstólar höfðu áður
vísað frá. Sex ákæruliðir úr fyrra
Baugsmálinu eru enn fyrir Hæsta-
rétti og óljóst hvort dómur verður
upp kveðinn fyrr en eftir réttarhlé í
sumar. - mh
Baugsmálið:
Ný ákæra
þingfest í dag