Fréttablaðið - 27.04.2006, Page 4
4 27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR
VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN
Guðrún Ásmundsdóttir,
leikkona, leikstjóri og
leikritahöfundur
3 sæti
„ Látum verkin tala
í málefnum aldraðra
og öryrkja.“
ALDRAÐIR Siv Friðleifsdóttir heil-
brigðisráðherra áætlar að kostn-
aður við að byggja 380 hjúkrunar-
rými fyrir aldraða, og svara
þannig brýnni þörf, sé hátt í sex
milljarðar króna.
Dvalarrými aldraðra í landinu
eru 3.470 en þar af eru 2.700 eigin-
leg hjúkrunarrými.
Í svari heilbrigðisráðherra á
Alþingi við spurningum Björgvins
G. Sigurðssonar, Samfylkingunni,
kom fram, að stofnkostnaður við
hvert rými væri um 15 milljónir
króna.
Árlegur rekstrarkostnaður 380
viðbótarrýma er áætlaður um
tveir milljarðar króna en 5,5 milj-
ónir króna kostar að reka hvert
rými á ári.
Björgvin skoraði á heilbrigðis-
ráðherra að beita sér fyrir því að
öldrunarmál yrðu flutt til sveitar-
félaga líkt og gert var við grunn-
skóla landsins fyrir 11 árum.
Jóhanna Sigurðardóttir, Sam-
fylkingunni, spurði hvort ráðherra
hefði beitt sér fyrir því að fjár-
málaráðuneytið notaði ekki fram-
kvæmdafé fyrir öldrunarrými í
rekstur þeirra.
Siv svaraði að æ minna hlutfall
framkvæmdafjárins færi í rekstr-
arkostnað hjúkrunarheimila aldr-
aðra. Hún sagði æskilegt að hafa
öldrunarþjónustuna á einni hendi
en að svo stöddu væri ekki gert
ráð fyrir að gera fleiri þjónustu-
samninga. - jh
Heilbrigðisráðherra segir brýna þörf á hjúkrunarrýmum fyrir aldraða:
380 rými kosta sex milljarða
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR Um 18 milljarða
króna kostar ár hvert að reka öll hjúkrunar-
rými fyrir aldraða í landinu, segir Siv.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 26.04.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 74,88 75,24
Sterlingspund 133,6 134,24
Evra 92,95 93,47
Dönsk króna 12,457 12,529
Norsk króna 11,874 11,944
Sænsk króna 9,97 10,028
Svissneskur franki 58,94 59,26
SDR 109,4 110,06
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
129,2496
KJARAMÁL Stjórn dvalar- og hjúkr-
unarheimilanna Eirs og Skjóls í
Reykjavík hafa náð samkomulagi
við ófaglært starfsfólk sitt um
launahækkanir. Laun verða hækk-
uð til samræmis við starfsfólk
Reykjavíkurborgar, eins og barist
hefur verið fyrir í rúman mánuð.
Hækkanirnar verða allar komnar
til framkvæmda í nóvember. Boð-
uðu setuverkfalli á heimilunum
tveim, sem átti að hefjast á mið-
nætti, hefur verið aflýst.
Inga Kristín Gunnarsdóttir,
trúnaðarmaður starfsfólks, segir
að tilboð stjórnarinnar hafi verið
samþykkt einróma á fjölmennum
fundi klukkan hálf þrjú í gær. „Það
er þungu fargi af okkur létt þar
sem baráttu okkar er lokið með
góðri niðurstöðu. Við sendum jafn-
framt félögum okkar sem standa í
þessari baráttu áfram okkar bestu
kveðjur.“
Fundir starfsfólks með stjórn-
endum á öllum heimilunum fjór-
tán, sem eiga hlutdeild að kjara-
deilunni, voru haldnir í gærdag.
Starfsmenn annarra heimila fengu
ekki tilboð um að launahækkunum
yrði flýtt eins og hjá Eir og Skjóli,
og ræðst í atkvæðagreiðslu á
fjöldafundi í dag hvort setuverk-
fall hefst á miðnætti. Stjórn SFH
ákvað einhliða að hækka laun
starfsfólks 14 hjúkrunarheimila á
þriðjudag. Hækkanirnar koma til
framkvæmda á átta mánaða tíma-
bili fram til 1. janúar 2007 sem
samninganefnd starfsfólks telur
með öllu óásættanlegt. Fram-
kvæmd hækkananna er samhljóða
tilboði launanefndar SFH sem
varð til þess að upp úr viðræðum
slitnaði á síðasta fundi. Samninga-
nefnd starfsfólks fór fram á að
hækkanirnar kæmu til fram-
kvæmda 1. maí, 1. ágúst og yrði
lokið 1. október. Í yfirlýsingu
samninganefndar starfsfólks var
af þeirra hálfu einnig gerð krafa
um þriggja og fimm ára starfsald-
urshækkanir og að þeir lægst
launuðu yrðu færðir ofar í launa-
flokk. Þessari kröfu var hafnað
alfarið.
Fyrirhuguð setuverkföll ná til
eftirfarandi heimila: Áss, Grund-
ar, Hrafnistu í Reykjavík og í
Hafnarfirði, Heilsustofnunar
Náttúrulækningafélags Íslands,
SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilisins,
Skógarbæjar, Sóltúns, Sunnuhlíð-
ar, Víðiness og Vífilstaða.
Hvorki náðist í Sigurð Helga
Guðmundsson, forstjóra hjúkrun-
arheimilanna Eirs og Skjóls, né
Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, borgar-
fulltrúa og formann stjórnar, í
gærkvöldi. svavar@frettabladid.is
Tvö heimili sömdu í
gær en tólf eru eftir
Stjórn dvalarheimilanna Eirs og Skjóls sömdu við skjólstæðinga sína í gær.
Starfsfólk tólf heimila ákveða á fundi í dag hvernig bregðast skal við launa-
hækkun stjórnar SFH. Setuverkföll eru talin líkleg. Uppsagnir eru hafnar.
FRÁ EIR Vistmenn á dvalarheimilunum Eir og Skjóli geta andað léttar því boðuðu setu-
verkfalli hefur verið aflýst eftir að samkomulag náðist í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
SKAFTÁRHLAUP Mikið landrof varð
við Ása í Skaftárhlaupinu eins og
sjá má á þessari mynd en fyrir
hlaup var öll kirkjugarðsgirðing-
in á föstu landi en nú hangir hluti
hennar í lausu lofti.
„Landrofið er alltaf mikið og
það er ekki langt í að jarðneskar
leifar forfeðra minna verða komn-
ir út í á,“ segir Halldór Magnús-
son, bóndi frá Ytri-Ásum. Hann
segir náttúrunni ekki einni um að
kenna. Á sjötta áratugnum var
Ásakvíslum, sem voru margar
árkvíslar, veitt í Ásavatn, sem
sést á myndinni, til að hagræða
við brúargerð. Þá tvöfaldaðist
vatnsmagn þess. - jse
Afleiðingar Skaftárhlaups:
Landrof þrengir
að kirkjugarði
HALLDÓR MAGNÚSSON Kirkjugarðurinn
við Ása er kominn á ystu nöf og hefur
bóndinn áhyggjur af því að jarðneskar leifar
ættferðranna endi í ánni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÞJÓNUSTA Íslandspóstur hefur
tekið ákvörðun um að byggja tíu
ný pósthús á landsbyggðinni auk
þess að gera verulegar endurbæt-
ur á fjórum öðrum. Núverandi
húsakynni Íslandspósts voru flest
byggð í samræmi við sameiginleg-
ar þarfir Pósts & Síma.
Nýju húsin munu verða á einni
hæð og byggingu þeirra á að vera
lokið á þremur árum. Öll aðstaða
starfsfólks verður til fyrirmyndar
og aðgengi viðskiptavina verður
stórlega bætt. Samhliða þessari
uppbyggingu er ráðist í víðtæka
endurskilgreiningu á starfssemi
fyrirtækisins. - shá
Íslandspóstur:
Byggir upp á
landsbyggðinni
EUROVISION Sænskur blaðamaður
sem kaus lagið Evighet, flutt af
Carolu, þrisvar í undankeppninni
heimafyrir var rukkaður um 108
símtöl. Aftonbladet rengir úrslitin
og segir frá því að hundruð les-
enda hafi haft samband við það
vegna rukkunar á símtölum sem
þeir segjast aldrei hafa hringt.
Blaðamaðurinn Erika Scott
segir símtölin sem hún var rukkuð
fyrir öll skráð á sjö til tuttugu sek-
úndum. Hún hafi hins vegar reynt
að hringja þrisvar og einu sinni
náð í gegn. Hundruðir sögðust
hins vegar hafa reynt að velja lag
flutt af Andreas Johnson en aldrei
náð í gegn.
Dómnefnd, sem hafði helmings
vægi á við þjóðina, gaf Andreas
flest atkvæði. Það var ekki ljóst
fyrr eftir símakosninguna að
Carola hafði unnið. Rúm 1,9 millj-
ónir atkvæða bárust. Lag Carolu
er í þriðja sæti í veðbönkum. - gag
Framlag Svía í Eurovision:
Carola fékk
auka stuðning
CAROLA Á SIGURSTUNDU Sænska söngkon-
an hefur tvívegis áður keppt í Eurovision.
Fyrst árið 1983, svo árið 1991 er hún vann.
Sekt vegna fíkniefna Héraðsdómur
Vesturlands dæmdi mann til greiðslu 45
þúsunda króna sektar vegna fíkniefna-
brots, en hjá honum fannst lítilræði af
amfetamíni, hassi og kannabisefnum
við leit lögreglu í ágúst 2004.
DÓMSMÁL
STOKKHÓLMUR, AP Danskt fraktskip
sökk í Eystrasalt eftir árekstur
þess við sænskt skip undan aust-
urströnd Svíþjóðar á þriðjudag.
Enginn slasaðist við atvikið, að
sögn sænskra yfirvalda.
Áhöfn sænska skipsins Tinto
bjargaði fjögurra manna áhöfn
danska fraktskipsins Marina S, en
Tinto skemmdist aðeins lítillega
við áreksturinn. Verið er að rann-
saka tildrög slyssins, en skyggni
var afar slæmt á slysstað. Hvor-
ugt skipið var hlaðið farmi, og
óvíst er hvort olía hefur lekið í
hafið. - smk
Skipaárekstur:
Fraktskip sökk