Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 8

Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 8
8 27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR www.expressferdir.is Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Nánar á www.expressferdir.is Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express LIVERPOOL WEST HAM Bikarúrslitaleikur 12. – 14. MAÍ FÓTBOLTAFERÐ 119.900 kr. Flug og flugvallaskattar til London, rútuferðir til Cardiff og aftur til London, tvær nætur á hóteli með morgunverði í Cardiff og miði á leikinn. Miðað er við að tveir séu saman í herbergi. Íslensk fararstjórn. Það má búast við hörkuleik þegar Liverpool og West Ham mætast í úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Flestir telja Liverpool sigurstranglegri en eins og sagan sýnir getur allt gerst í bikarnum og West Ham hefur svo sannarlega komið skemmtilega á óvart á þessari leiktíð. Leikurinn fer fram á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff og segja þeir sem þangað hafa komið að stemningin sé rafmögnuð. Hvernig væri að skella sér á völlinn og sjá Marlon Harewood, Teddy Sheringham og félaga glíma við Steven Gerrard, Harry Kewell og allar hinar stórstjörnurnar í Liverpool? INNIFALI‹: SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Þrír framboðslistar eru komnir fram í Dalvíkurbyggð: B-listinn, listi framsóknarmanna, D-listinn, listi sjálfstæðismanna og óháðra, og J- listinn sem er nýtt framboð í sveit- arfélaginu. Vinstri grænir hafa rætt um að bjóða fram en ólíklegt er að af því verði úr þessu. Bæjarstjórn er nú skipuð níu bæjarfulltrúum en ákveðið hefur verið að fækka þeim í sjö á næsta kjörtímabili. Það sem helst hefur sett mark sitt á kjörtímabilið er fremur erfið skuldastaða fyrir fjórum árum og deilur í kjölfar lokunar Húsa- bakkaskóla í Svarfaðardal. Skuld- irnar hafa minnkað verulega á kjörtímabilinu og á síðasta ári skilaði bærinn 32 milljóna króna rekstrarafgangi en Húsabakka- skóli er enn lokaður. Listi Framsóknarflokksins hefur tekið miklum breytingum frá síðustu kosningum. Einungis þrír frambjóðendur frá kosning- unum 2002 eru nú á listanum og af þeim er aðeins einn fjögurra sitj- andi bæjarfulltrúa flokksins, Kristján Ólafsson, en hann skipar nú 14 sæti listans, heiðurssætið. Konum hefur fækkað verulega á listanum frá því fyrir fjórum árum en þá voru þær jafn margar körlunum eða níu. Nú eru konurnar einungis fjórar af fjórtán sem í framboði eru. Sjálfstæðismenn og óháðir bjóða fram sameiginlegan lista, D- listann, líkt og í síðustu kosningum og eins og hjá Framsóknarflokkn- um hefur listinn breyst mikið á milli kosninga. Tveir af þremur bæjarfulltrúum listans eru í efstu sætunum en sá þriðji er ekki á list- anum. Af fjórtán manna fram- boðslista eru nú tíu sem ekki voru á lista D-listans fyrir fjórum árum. Helmingur frambjóðenda eru konur og helmingur karlar; líkt og síðast. Listi sameiningar, I-listinn, er ekki í framboði núna en í hans stað hefur komið fram nýtt framboð, J- listinn. Svanfríður Inga Jónasdóttir, fyrrverandi alþingis- maður, leiðir listann en fyrr í vetur hafði verið tilkynnt að hún myndi leiða lista Samfylkingarinnar. Frá því var horfið og mun Samfylking- in ekki bjóða fram lista að þessu sinni í Dalvíkurbyggð. Á J-listan- um eru sex konur og átta karlar og eru konur í tveimur efstu sætunum. kk@frettabladid.is Ný andlit áberandi Miklar mannabreytingar eru fyrirsjáanlegar í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar að loknum kosningum. Nýtt fólk er áberandi á listum og nýr listi, J-listinn, býður fram í fyrsta sinn. Bæjarfulltrúum verður fækkað úr níu í sjö eftir kosningar. Svanfríður Inga Jónasdóttir, fyrrverandi alþingismaður, skipar efsta sæti J-listans en í síðustu kosningum var hún í heiðurssæti á lista sameiningar. Hún segir J-listann samanstanda af kraft- miklu fólki, með ólíkan pólitískan bakgrunn, sem náð hafi að sanna sig í atvinnu- og félagslífi bæjarins. „Við viljum móta skólastefnu í samvinnu við foreldra, nemendur og starfsfólk skólanna og jafnframt leggja áherslu á símenntun og fá hingað framhaldsskóla. Við stefnum á að auka íbúalýðræði og leggjum áherslu á að fjölga fólki í byggðalaginu og auka fjölbreytni í atvinnulífinu. Við viljum einnig endurskoða leikskólagjöld og fjölga leikskólarýmum. Þá viljum við jafnframt auka fjölbreytni í þjónustu við aldraða, í samráði við þá sem nýta munu þjónustuna,“ segir Svanfríður. Svanfríður I. Jónasdóttir J-lista: Aukin velferð og íbúalýðræði Arngrímur Vídalín Baldursson, bóndi og bæjarfulltrúi, skipar efsta sæti framboðslista sjálfstæðismanna og óháðra, D-listann, en hann var í fjórða sæti listans í síðast. Hann segir list- ann standa fyrst og fremst fyrir ábyrgð og festu, jafnt í fjármálum sveitarfélagsins sem og almennri uppbyggingu. „Stefnu- skrá D-listans er í mótun og því of snemmt að tíunda öll þau mál sem við viljum berjast fyrir. Eitt af forgangsmál- unum er að víkka út starfssvæði hita- veitunnar og bæta rekstraröryggi hennar og þá er orðið aðkallandi að byggja nýtt íþróttahús. Fleiri framkvæmdir mætti nefna en ljóst að dreifa þarf þeim til að skuldirnar vaxi okkur ekki yfir höfuð. Við viljum gjarnan lækka leikskólagjöld á kjörtímabilinu en gjaldfrír leikskóli er þó ekki á döfinni,“ segir Arngrímur. Arngrímur V. Baldursson D-lista: Ábyrgð og festa að leiðarljósi Bjarnveig Ingva- dóttir hjúkrunar- forstjóri leiðir lista framsóknarmanna, B-listann, en hún skipaði 12. sæti listans síðast. Hún segir erfiða skuldastöðu sveitarfélagsins í upphafi kjörtíma- bilsins hafa sett nokkuð mark sitt á stjórn bæjarins og nauðsynlegt að gæta aðhalds í rekstri. „Okkur tókst að greiða niður skuldir um 100 milljónir á kjörtímabilinu, án þess að grípa til mikils niðurskurðar, og með það er ég mjög ánægð,“ segir Bjarnveig. Stefnuskrárvinnu Framsóknar er ólokið og því vill Bjarnveig ekki nefna helstu baráttumálin en segir þó stækk- un íþróttahússins, eða bygging nýs, lík- lega þar á meðal. „Jafnframt viljum við halda uppi öflugu skólastarfi og góðri þjónustu en aldrei má víkja frá ábyrgð í fjármálastjórninni,“ segir Bjarnveig. Bjarnveig Ingvadóttir B-lista: Gott skólastarf og góð þjónusta Dalvíkurbyggð varð til árið 1998 þegar þrjú sveitarfélög við utanverðan Eyjafjörð sameinuðust undir einum hatti: Dalvíkurbær, Svarfaðardalshreppur og Árskógshreppur. Íbúafjöldi 1. desember 2005 var 1927. Úrslit kosninganna 2002 Á kjörskrá voru 1.362 og kjörsókn 84,1% Listi Framsóknarmanna (B) 469 atkvæði - 4 fulltrúa. Listi Sjálfstæðismanna og óháðra (D) 408 atkvæði - 3 fulltrúa. Listi Sameiningar (I) 230 atkvæði - 2 fulltrúa. Framsóknarflokkurinn og sameiginlegur listi sjálfstæðismanna og óháðra mynda núverandi meirihluta í bæjarstjórn. Bæjarfulltrúar B-listans: Sigurður Valdimar Bragason. Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir. Kristján Ólafsson. Katrín Sigurjónsdóttir. Bæjarfulltrúar D-listans: Svanhildur Árnadóttir. Jónas M. Pétursson. Dórothea Jóhannsdóttir (Flutti úr landi). Arngrímur V. Baldursson. Bæjarfulltrúar I-listans: Ingileif Ástvaldsdóttir. Óskar Gunnarsson. Bæjarfulltrúar J-listans: Engir – nýtt framboð 2006. KOSNINGAR 2006 Efstu menn B-listans: 1. Bjarnveig Ingvadóttir, hjúkr.forstjóri. 2. Hilmar Guðmundsson, markaðsstj. 3. Haukur Snorrason, leiðbeinandi. 4. Hilmar Daníelsson, fyrrv. framkvæmdastj. Efstu menn D-listans: 1. Arngrímur V. Baldursson, bæjarfulltrúi. 2. Jónas Mikael Pétursson, bæjarfulltrúi. 3. Rósa R. Jóhannsdóttir, leiðbeinandi. 4. Ásdís S. Jónasdóttir, skrifstofustjóri. Efstu menn J-listans: 1. Svanfríður Jónasdóttir, fyrrv. þingm. 2. Anna S. Hjaltadóttir, fiskiðnaðarm. 3. Marinó Þorsteinsson, bifvélavirki. 4. Guðmundur St. Jónsson, framkv.stjóri. DALVÍKURBYGGÐ Dalvíkurbyggð SVEITARSTJÓRNAR- KOSNINGAR 2006 FRÁ FISKIDEGINUM MIKLA Á DALVÍK Mörg ný andlit blasa við íbúum Dalvíkur ár hvert á fiskideginum mikla. Gera má ráð fyrir að mörg ný andlit sjáist líka í bæjarstjórn eftir komandi kosningar miðað við miklar mannabreytingar á listum og nýjan framboðslista. VEISTU SVARIÐ 1 Hvar er prestastefnan haldin? 2 Hver er formaður Samtaka atvinnu-lífsins? 3 Ronaldinho var tekjuhæstur knatt-spyrnumanna í fyrra. Hversu mikið þénaði hann? SVÖR Á BLS. 58 FÉLAGSMÁL Þáttaskil hafa orðið í starfsemi forvarnarverkefnisins Blátt áfram. Það er nú ekki lengur á hendi Umgmennafélags Íslands heldur hafa verið stofnuð frjáls félagasamtök undir sama nafni. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi sem forsvarsmenn hins nýja félags efndu til í gær. Blátt áfram - forvarnaverk- efni UMFÍ sem vinnur gegn kyn- ferðislegu ofbeldi á börnum hófst 2004. Verkefnið hefur frá upphafi verið unnið í samstarfi við syst- urnar Svövu og Sigríði Björns- dætur sem áttu upphaflegu hug- myndina að því. Markmið UMFÍ var að reka verkefnið í ákveðinn tíma eða þar til því yrði fundinn annar farvegur sem gerðist þann 1. mars með stofnun frjálsra félagasamtaka undir sama nafni. Blátt áfram hefur unnið að fjölmörgum verkefnum frá stofnun. Á þessu ári verður mikill kraftur í starfsemi þess. Má þar nefna auglýsingaherferð, ráð- stefnuhald, svo og námskeið og fræðslu um forvarnir gegn kyn- ferðislegu ofbeldi á börnum og fræðslu um líkamlegt og kynferð- islegt ofbeldi. Hægt er að skrá sig í félagið með skráningu á póst- lista félagsins á heimasíðu Blátt áfram. Engin félagsgjöld eru innheimt. -jss BLÁTT ÁFRAM Starf Blátt áfram var kynnt á blaðamannafundi í gær. f.v. Ragna Guðbrands- dóttir, Marsibil Sæmundsdóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Ingibjörg Guðrún Guðjónsdóttir, Helga Guðrún Guðjónsdóttir, Evert Víglundsson, Arnaldur Birgir Konráðsson, Björn B. Jósson og Harpa Leifsdóttir. Samtök gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum: Blátt áfram orðin frjáls félagasamtök

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.