Fréttablaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 13
Skiptimynt stolið Brotist var inn í ís-
búð við Melhaga í vesturbæ Reykjavíkur
um hálffimmleytið í fyrrinótt. Rúða var
brotin í hurð og fór þá þjófavarnarkerfi
í gang. Innbrotsþjófurinn náði þrátt
fyrir það skiptimynt úr peningakassa
ísbúðarinnar.
Ók greitt til Akureyrar Átján ára
stúlka var tekin á 136 kílómetra hraða á
Ólafsfjarðarvegi síðdegis í fyrradag. Hún
var að fara til Akureyrar þegar lögreglan
á Dalvík stöðvaði för hennar.
Skemmdarverk í fjósi Farið var inn
í fjós undir Eyjafjöllum og skorið á festar
á níu kúm og þær leystar, lyftari tekinn
og traktor. Bændurnir á bænum kölluðu
lögregluna til og voru hræddir um
að mjólk í tanki hefði verið skemmd.
Mjólkureftirlitsmenn voru kallaðir til
að rannsaka mjólkina en farið var inn í
fjósið að næturlagi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
MOSKVA, AP Rússar skutu í gær upp
ísraelskum njósnahnetti, sem Ísra-
elar segja að verði notaður til þess
að njósna um kjarnorkuáform
Írana. Gervihnettinum var skotið
upp frá austanverðu Rússlandi, að
sögn geimferðadeildar rússneska
hersins.
Bæði rússneskir og ísraelskir
fjölmiðlar greindu frá því að skotið
hefði heppnast, en hnötturinn er til
þess gerður að geta greint hluti á
jörðu niðri allt niður í 75 senti-
metra stærð. Ísraelar óttast að
Íranar muni afla sér kjarnorku-
vopna og beina þeim að Ísrael. - gb
Rússar aðstoða Ísrael:
Skjóta upp
njósnahnetti
DANMÖRK, AP Einn maður fórst og í
það minnsta fimm slösuðust
snemma á þriðjudagsmorgun
þegar brú á þjóðveginum skammt
frá Álaborg á Jótlandi hrundi.
Að sögn lögreglunnar voru
nokkrar bifreiðar lokaðar inni
eftir að brúin hrundi.
Viðgerð stóð yfir á brúnni þegar
hluti hennar hrundi niður á þjóð-
veginn ekki langt frá jarðganga-
munnanum undir Limafjörð, sem
Álaborg stendur við. Bæði vegin-
um og göngunum var samstundis
lokað fyrir umferð. - gb
Banaslys í Danmörku:
Brú hrundi á
þjóðveginn
BRÚIN SEM HRUNDI Loka þurfti þjóðveg-
inum við Álaborg og jarðgöngum undir
Limafjörð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BERLÍN, AP Klaus Wowereit, borgar-
stjóri Berlínar, hefur ákveðið að
leita til Hæstaréttar Þýskalands í
þeirri von að dómstóllinn geri
ríkissjóði landsins skylt að aðstoða
við að greiða niður gríðarlegar
skuldir höfuðborgarinnar.
Skuldirnar nema nú nærri 5.000
milljörðum íslenskra króna og
vaxtagreiðslurnar einar nema
rúmlega 200 milljörðum króna á
hverju ári.
Klaus Wowereit borgarstjóri
segir með öllu vonlaust að borgar-
sjóðnum takist að krafla sig út úr
þessum skuldum á eigin spýtur.
Ríkið verði hreinlega að koma til
bjargar. - gb
Klaus Wowereit borgarstjóri:
Skuldirnar að
sliga Berlín
FIMMTUDAGUR 27. apríl 2006 13
WASHINGTON, AP Tony Snow, spjall-
þáttastjóri á Fox-sjónvarpsstöð-
inni og gallharður íhaldsmaður,
verður næsti blaðafulltrúi Hvíta
hússins, þrátt fyrir að hann hafi
verið óspar á gagnrýni á George
W. Bush, meðal annars kallað hann
„hálfgerð vonbrigði“.
„Mitt starf er að taka ákvarð-
anir en hans starf er að hjálpa til
við að útskýra þessar ákvarðanir
fyrir fjölmiðlafólki og bandarísk-
um almenningi,“ sagði Bush
forseti í gær.
Snow hefur í sjónvarpsþætti
sínum meðal annars sagt Bush
hafa „misst tökin á fjárlögunum,“
sagt hann hafa „kraftlausa stefnu
í innanríkismálum“ og sagt hann
„hafa tilhneigingu til að syngja úr
sálmabók pólitískrar rétthugsun-
ar“.
Þessi harði gagnrýnandi Banda-
ríkjaforseta verður sem sagt
blaðafulltrúi Hvíta hússins og þar
með helsti talsmaður forsetans.
Snow segist ekki neita því að
hann hafi gagnrýnt Bush.
„Það er allt saman opinbert,“
sagði hann.
Á árum áður starfaði Snow
reyndar fyrir George Bush eldri,
föður núverandi forseta, og skrif-
aði fyrir hann ræður.
Hann sagðist í gær hlakka til að
takast á við nýja starfið. - gb
TONY SNOW OG GEORGE W. BUSH Næsti blaðafulltrúi Hvíta hússins hefur verið einn harð-
asti gagnrýnandi forsetans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sjónvarpsmaðurinn Tony Snow verður nýr blaðafulltrúi Hvíta hússins:
Hefur óspart gagnrýnt Bush