Fréttablaðið - 27.04.2006, Qupperneq 26
27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR26
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS* [Hlutabréf]
ICEX-15 5.764 +2,17% Fjöldi viðskipta: 425
Velta: 6.089 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 61,20 +4,08% ... Alfesca
3,90 -0,51%... Atorka 5,80 +1,75% ... Bakkavör 50,10 +0,60% ...
Dagsbrún 5,92 -1,33% ... FL Group 20,40 +2,51% ... Flaga 3,30
+3,13% ... Glitnir 17,50 +1,74% ... KB banki 798,00 +2,70% ... Kög-
un 74,50 +0,00% ... Landsbankinn 23,20 +2,66% ... Marel 72,50
-0,41% ... Mosaic Fashions 18,50 +0,00% ... Straumur-Burðarás
17,20 +1,78% ... Össur 112,00 -0,44%
MESTA HÆKKUN
Actavis +4,08%
Flaga +3,13%
KB banki +2,70%
MESTA LÆKKUN
Dagsbrún -1,33%
Atlantic Petroleum -1,18%
Icelandic Group -0,57%
Réttu tækin í þrifin
Nilfisk-ALTO háþrýstidælur á tilboðsverði
Bjarnþór Þorláksson
bílstjóri RV
Tilboðið gildir út maí 2006
eða meðan birgðir endast.
R
V
62
06
A
Nilfisk-ALTO C 100
Þrýstingur: 100 bör
Vatnsmagn: 440 l/klst.
6.888 kr.
Nilfisk-ALTO E 140 X-TRA
Þrýstingur: 140 bör
Vatnsmagn: 500 l/klst.
26.888 kr.
Nilfisk-ALTO P 150 X-TRA
Þrýstingur: 150 bör
Vatnsmagn: 610 l/klst.
48.888 kr.
Vort
ilboð
RV
Nilfis
k-AL
TO h
áþrýs
tidæ
lur
Stórfyrirtækin Bakkavör Group,
KB banki og Straumur-Burðarás
birta afkomutölur fyrir fyrstu
þrjá mánuði ársins á morgun. Spá
greiningardeildir bankanna því að
hagnaður allra félaganna vaxi á
milli ára.
Búist er við að meðaltalshagn-
aður Bakkavarar Group verði 733
milljónir króna en var 493 milljón-
ir á fyrstu þremur mánuðum árs-
ins 2005.
KB banka er spáð um 15,4 millj-
arða króna hagnaði á tímabilinu
en til samanburðar skilaði bank-
inn 11.093 milljóna króna hagnaði
í fyrra.
Straumi er spáð mestum hagn-
aði félaga í Kauphöllinni á fyrsta
árshluta eða 15,9 milljarða hagn-
aði, þar af reiknar KB banki með
að hagnaður félagsins verði yfir
sautján milljarðar. Straumur
hagnaðist um 4.577 milljónir á
sama tíma í fyrra en þess ber þó
að geta að Burðarás er ekki inni í
þeirri tölu. - eþa
Stórfyrirtæki birta
uppgjör í dag
Velta samstæðunnar er
áætluð sextán milljarðar
í ár.
Promens, dótturfélag Atorku
Group, hefur eignast allt hlutafé í
Elkhart Plastics (EPI) sem rekur
fjórar hverfisteypuverksmiðjur í
Bandaríkjunum og er með sterka
markaðsstöðu í miðvesturríkjun-
um. Fyrirtækið er þar með komið í
hóp stærstu hverfisteypufyrir-
tækja Norður-Ameríku með níu
verksmiðjur í Bandaríkjunum og
Kanada.
Kaupin eru fjármögnuð með
eigin fé og lánsfé.
Stjórnendur Promens telja að
með kaupunum opnist ýmsir nýir
möguleikar sem félagið hefur lítið
getað sinnt. Nefna þeir framleiðslu
á húsbílum, hjólhýsum og skemmti-
bátum í þessu sambandi en megin-
framleiðsla samstæðunnar er ker
og tankar.
EPI hefur vaxið um fjórðung á
ári með innri og ytri vexti að sögn
Ragnhildar Geirsdóttur, forstjóra
Promens. Jack Walter, forstjóri og
aðaleigandi EPI, fær sex prósenta
hlut í Promens og stýrir EPI áfram.
Verðmat á Promens, sem PriceW-
ater vann, sýnir að það er vanmet-
ið í bókum Atorku um 4,9 milljarða
króna miðað við þau viðskipti sem
fram fóru milli Atorku og Walters.
Velta Promens á þessu ári er
áætluð sextán milljarðar króna en
velta EPI var 38,5 milljónir dala í
fyrra. Önnur félög í Promens-sam-
stæðunni eru meðal annars Bonar
Plastics og Sæplast. Starfsmenn
Promens verða 1.600 talsins.
Töluverðar hreyfingar hafa
verið á eignasafni Atorku Group
að undanförnu. Greint hefur verið
frá því að félagið hafi eignast 7,33
prósenta hlut í Amiad Filtration
Systems sem hefur hækkað yfir 60
prósent í Kauphöllinni í Lundún-
um frá áramótum. Amiad fram-
leiðir vatnshreinsibúnað og síur. Á
dögunum seldi Atorka um 22 pró-
senta hlut í breska iðnaðarfyrir-
tækinu Low & Bonar með góðum
söluhagnaði og tilkynnti jafnframt
að það hefði bætt við sig bréfum í
flutningafyrirtækinu Interbulk og
glerframleiðandanum Romag.
eggert@frettabladid.is
KAUPIR HVERFISTEYPUFYRIRTÆKI Með kaupum Promens á Elkhart Plastics verður félagið
einna stærst á sínu sviði í Norður-Ameríku. Myndin er úr verksmiðju dótturfélagsins Bonar
Plastics.
Promens kaupir Elkhart
Plastics í Bandaríkjunum
SPÁ UM HAGNAÐ Á 1. ÁRSFJÓRÐ-
UNGI 2006 OG BREYTING MILLI
ÁRA* (allar upphæðir í milljónum króna)
2006 2005 Breyting
milli ára
Bakkavör Group 733 493 48,70%
KB banki 15.399 11.093 38,80%
Straumur-Burðarás 15.911 4.577 248,60%
* byggt á afkomuspám Glitnis, KB banka og
Landsbankans
MARKAÐSPUNKTAR...
Hagnaður sænsku ferðaskrifstofunnar
Ticket á fyrsta ársfjórðungi nam um 13,1
milljón SEK á móti 6,2 milljónum SEK
hagnaði á sama tímabili árið 2005 og
var um metuppgjör að ræða.
Greiningardeild Glitnis gerir ráð fyrir 1,5
prósenta hækkun vísitölu neysluverðs á
milli apríl og maí. Gangi spáin eftir mun
verðbólgan mælast 7,5 prósent úr 5,5
prósentum.
Hagnaður sænska innheimtufyrirtæk-
isins Intrum Justitia var 81 milljón SEK
á fyrsta ársfjórðungi sem er um 20
prósent aukning milli ára. Tekjur Intrum
Justitia voru um 709 milljónir SEK á
fjórðungnum.
KB BANKI Búist er við milljarða hagnaði af KB banka og Straumi við uppgjöri í dag.
Stigið á bremsurnar
Meðal bankamanna og fjárfesta er mikið rætt
hversu harkalega viðskiptabankarnir hafi stigið á
bremsurnar til að hemja útlánavöxtinn og búa sig
undir endurfjármögnun á verri kjörum.
Heyrist einnig að bank-
arnir hafi stóraukið kröfur
um betri veð og hærra
eiginfjárhlutfall. Bitnar
þetta einkum á stærri aðil-
um eins og fyrirtækjum þótt
einstaklingar finni án nokkurs
vafa fyrir því að erfiðara er að fá
lánað en áður. En það þarf þó ekki
að vera að lántakendur komi alls
staðar að læstum dyrum; spari-
sjóðirnir fjármagna sig miklu frekar
með innlánum, sem streyma inn, en
öðrum lánum og streyma viðskipta-
vinirnir þangað.
Carnegie í góðum málum
Á sama tíma og íslenskur hlutabréfamarkaður
hefur látið á sjá rjúka hlutabréf upp úr öllu valdi á
hinum Norðurlöndunum. Ætla má að sú þróun hafi
veruleg áhrif á afkomu íslensku fjármálafyrirtækj-
anna sem eru orðin mjög umsvifamikil á norræn-
um mörkuðum. Eitt þeirra er Landsbankinn sem
á stóran hlut í sænska fjármála-
fyrirtækinu Carnegie sem birti
uppgjör. Carnegie nýtur góðs
af hagfelldum aðstæðum á
mörkuðum og jók hagnað
á milli ára um 187 prósent.
Hagnaðurinn nam 287
milljónum sænskra króna,
eða um 2,9 milljörðum
króna. sem var nokkuð yfir
væntingum markaðsaðila sem
höfðu reiknað með 243 milljónum
sænskra króna.
Peningaskápurinn...
*í gær kl. 14.50
Stjórn Lífeyrissjóðsins Lífiðnar
leggur það til á ársfundi sjóðsins
þann 8. maí að sjóðurinn samein-
ist Samvinnulífeyrissjóðnum.
Ólafur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Lífiðnar, segir að
stjórnendur sjóðsins líti einkum
til hagræðingar í rekstri og auk-
ins rekstraröryggis með þessum
áformum.
Báðir sjóðir hafa verið að
horfa til sameiningar í nokkurn
tíma. „Ég held að það hafi ekki
verið tilviljun að þessir sjóðir
byrjuðu að tala saman. Þeir eru
mjög svipaðir að stærð en greið-
endur koma úr ólíkum atvinnu-
greinum. Þannig getum við
fengið skemmtilega áhættu-
dreifingu.“
Hann segir að þótt sjóðirnir
tveir séu ólíkir að uppbyggingu í
fjárfestingum passi þeir vel
saman hvað það varðar.
Að sögn Ólafs hefur rekstur
beggja sjóða verið farsæll, raun-
ávöxtun verið góð og eignir
standa vel undir skuldbinding-
um. „Verði þetta samþykkt þá
kemur til réttindaaukningar hjá
sjóðsfélögum Lífiðnar.“
Ólafur segir að gangi samein-
ingin eftir verði nýi sjóðurinn
sjötti stærsti lífeyrissjóður
landsins með heildareignir upp á
63 milljarða króna. - eþa
Sameining tveggja
sjóða í farvatninu
Union, dótturfélag Glitnis í Osló,
stóð á dögunum fyrir metsölu
fasteignar í miðborg Oslóar.
Seldist hún á 820 milljónir
norskra króna sem jafngildir 9,8
milljörðum íslenskra króna.
Fasteignin sem um ræðir hýsir
verslunarhúsnæði á fyrstu hæð-
inni og á efri hæðum hússins eru
10 þúsund fermetrar af skrif-
stofuhúsnæði.
Norska fjármálatímaritið Fin-
ansavisen gerir sölunni góð skil í
tveggja síðna umfjöllun. Þar
kemur fram að markaðsaðilar
höfðu gert ráð fyrir að fasteign-
in seldist á milli 500 og 700 millj-
ónir. Velta menn því nú fyrir sér
að hve miklu leyti þessi háa sala
kemur til með að keyra upp verð
á fasteignamarkaði í Osló. Í
greininni er haft eftir fasteigna-
salanum, Oystein Landvik, að
mikill áhugi hafi verið fyrir fast-
eigninni. Mikil leynd ríkir þó
yfir kaupunum og hefur ekki
verið upplýst hver kaupandinn
er. - hhs
10 milljarðar í Ósló