Fréttablaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 27. apríl 2006 3 Lífræn og rakagefandi sturtusápa fyrir allar hú›ger›ir Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Litli svarti kjólinn í Palais Royal Að búa í París er stundum eins og að búa í safni, hvert skref er hlað- ið sögu og hvert sem litið er eru byggingar sem eru fleiri hundruð ára gamlar. Húsið mitt, svo dæmi sé tekið, er þrjúhundruð ára, með friðuðum kjöllurum sem tengjast neðanjarðar við kirkju í hverfinu. En með tímanum gleymir maður þessu merkilega og leggur ekki lengur lykkju á leið sína til að njóta þeirra perlna sem eru úr alfara- leið. Einn slíkur staður er La Galerie du Palais Royal sem er eins og ferningur í kringum Palais Royal-garðinn, rétt við menningarmála- ráðuneytið og eitt sögufrægasta leikhús Frakka, La Comédie Fran- çaise. Kannski vegna nálægðar sinnar við Louvre var þetta gallerý dálítið í niðurníðslu. En nú um nokkurt skeið hafa verslanir verið opnaðar þar og fært þessum einstaka stað nýtt líf. Þarna eru fjölmargir veitingastaðir og kaffihús sem á fallegum degi þjóna gestum utandyra í hallargarðinum. Verslanir eru af ýmsu tagi jafnt fyrir safnara og tískuáhugamenn svo sem fyrir þá sem hafa gaman af gömlum matar- og kaffistellum, silfri og öðru. Þarna eru málverk jafnt sem tindátar og forn mynt fyrir mynt- safnara. Einn vinsælasti hönnuðurinn í dag er án efa Bandaríkjamaður- inn Marc Jacobs en hann hannar fyrir eitt franskasta tískuhúsið, Louis Vuitton. Hann á sömuleiðis sitt eigið tískuhús og hefur fyrir nokkru opnað fallega búð í gallerýinu í Palais Royal þar sem finna má bæði kvenfatnað og fylgihluti, töskur, skó og fleira. Hinum megin við garðinn er einn alflottasti skóhönnuður Parísar til húsa, Pierre Hardy. Skórnir frá honum eru það í skóm sem líkist hástísk- unni (Haute couture) í fatahönnun. Og búð Hardys er eins og svo margar í Palais Royal með stórum gluggum svo þeir sem ekki vilja falla í freistingu geta látið sér nægja að skoða listaverkin að utan. Svo eru það „vintage-búðirnar“ sem eru nokkrar, til dæmis „la pet- ite robe noir“, Litli svarti kjóllinn sem dregur nafn sitt af frægum svörtum kjól sem var ómissandi í kvöldklæðnaði þar til Yves Saint Laurent færði konum smókinginn 1967 sem eftir það varð jafnvel mikilvægari en svarti kjólinn. Tískusjúkir missa fljótt stjórn á krít- arkortunum því þarna mátti finna ótrúlegar gersemar, til dæmis flöskugrænt veski og svartan kjól úr línu Christian Dior frá 1960 sem væri fullkominn klæðnaður fyrir kvikmyndahátíðina í Cannes í næsta mánuði. Ég sá í búðinni fúshíableika sandala frá YSL sem Tom Ford hannaði fyrir tískuhúsið og ég seldi sjálfur þegar ég vann þar sumarið 2003. Það er því ekki allt eins mikið „vintage“ og ætla mætti og gott að þekkja dálítið tískusöguna. bergthor.bjarnason@wanadoo.fr Kjóllinn sem Keira Knightley klæddist á síðustu óskarsverð- launahátíð er nú falur á ebay. Keira Knightley, sem flestir þekkja úr hinni vinsælu kvik- mynd Pirates of the Caribbean, hefur gefið kjólinn sem hún klæddist á síðustu óskarsverð- launahátíð til að safna fé fyrir hjálparstofnunina Oxfam. Kjóll- inn, sem hannaður er af hinum þekkta hönnuði Vera Wang, er metinn á um 3,3 milljónir króna. Hægt er að bjóða í kjólinn á ebay. com en uppboðinu lýkur 1. maí næstkomandi. Enn sem komið er hafa 50 boð borist og hljóðar það hæsta upp á tæpar 500.000 krónur. Allur ágóði af kjólnum rennur til bágstaddra í Austur-Afríku. Þar vofir mikil hungursneyð yfir vegna þurrka í Kenía, Sómalíu, Eþíópíu og Tansaníu. „Þetta er ótrúlegur kjóll og ég er svo ánægð að geta gefið Oxfam hann. Ég hef séð fréttamyndir af þurrkasvæð- um í Austur-Afríku og ég geri mér grein fyrir því hversu alvar- legt ástandið er orðið. Þess vegna er ég ánægð með að geta gert eitt- hvað til að hjálpa,“ sagði Knightley þegar hún afhenti Oxfam kjólinn. Keira selur kjól Kjóllinn góði sem Knightley hefur gefið Oxfam. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Floral frá Paul Smith. Floral er ferskur ilmur frá Paul Smith sem hentar ungum konum sérstaklega vel. Ilmurinn er fram- andi en jafnframt fágaður og á vel við í sólinni í sumar. Ferskt fyrir sumarið Floral frá Paul Smith. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Marg verðlaunuð hönnun, tímalaus og einstök. Trippen, skóverslun, Rauðarárstíg 14, 101 Reykjavík. trippen.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.