Fréttablaðið - 27.04.2006, Page 35
[ ]
EXO hefur hafið sölu á Armani
Casa vörum.
„Lífsstíllinn Armani á að vera
upplifun,“ segir Hanna Birna
Jóhannesdóttir hjá versluninni
EXO í Fákafeni sem hefur hafið
sölu á húsgögnum og gjafavöru
sem eru hönnuð af Georgio Arm-
ani. Armani er betur þekktur sem
fatahönnuður en hefur greinilega
hæfileika á fleiri sviðum. „Við
opnum á fimmtudag og það verður
sýning alla helgina og 1. maí í til-
efni af fjórtán ára afmæli EXO,“
segir Hanna Birna en verslunin
reynir að koma með nýjungar á
hverjum afmælisdegi.
Í línu Armani eru húsgögn,
borð, lampar auk gjafavöru. „Allt
sem kemur frá Armani eru nátt-
úruleg efni, sandsteinn, silki og
leður,“ segir Hanna Birna sem
segir vörurnar vera mjög elegant.
Þar sem Armani gerir kröfur um
að allar verslanir sem selja hönn-
un hans séu svartar í hólf og gólf
hefur hluti verslunarinnar EXO
verið málaður svartur sem veitir
án efa ákveðna stemningu.
Armani-
lífsstíllinn
í EXO
Þegar tyggjóið klessist
Flestir kannast við að hafa klesst
tyggjó í föt. Það getur verið erfitt að
ná því úr. Gott ráð er að skella flík-
inni inn í frysti og að nokkrum tíma
liðnum er tyggjóið mulið úr.
Sumir hafa eflaust lent í því að klína
tyggjói í hár eða á húðina. Það er
heldur óskemmtilegt en með því að
maka smjörlíki vel á staðinn þar sem
tyggjóið er fast er hægt að ná því úr
á nokkuð auðveldan hátt.
Húsráð }
Húsgagnaiðnaðurinn er arðvænlegur. Ingvar Kamprad,
stofnandi Ikea, er einn af ríkustu mönnum í heimi.
Verið velkomin að Dalvegi 18
Gallerí Húsgögn
Sími 554 5333
Full búð af flottum vörum
Glæsileg sófasett og frábært úrval
af tekk borðstofuhúsgögnum.
skenkar- stólar- borðstofuborð- sófar- hægindastólar- sófaborð
smávara- skemlar- púðar- sjónvarpsskápar- skilrúm
Opnunartími:
Virka daga 11-18 • Laugardaga 11-16 • Sunnudaga 13-16
Bæjarlind 6, Kóp. • s. 5347470 • www.feim.is
Opi› virka daga 10-18 og laugardaga 10-16
Gleðilegt sumar
Vinsælu kanadísku Bear chair
garðhúsgögnin komin.
Setrus viður, þolir íslenska veðráttu.