Fréttablaðið - 27.04.2006, Page 37
FIMMTUDAGUR 27. apríl 2006 7
Í versluninni Rúm og sófi má
fá skemmtilega hönnuð amer-
ísk rúm sem spara plássið á
heimilinu.
Nýjustu rúmin í versluninni Rúm
og sófi koma frá American Flex og
eru tvenns konar.
Baú er rúm sem hægt er að
opna með því að lyfta dýnunni upp
og má geyma sængur og kodda
undir henni.
Duplo, sem einnig kemur frá
American Flex, er einstaklings-
rúm með auka dýnu sem dregin er
út og þá er rúmið orðið tvíbreitt.
Rúmin eru tilvalin fyrir þá sem
vilja eignast gott rúm og jafn-
framt spara plássið á heimilinu.
Amerísk undrarúm sem spara pláss
Uppteknustu fönduráhuga-
menn þurfa nú ekki einu sinni
að fara út úr húsi til að verða
sér úti um dót til að föndra.
Föndursmiðjan er netverslun með
föndurvörur á góðu verði. Sérstök
áhersla er lögð á kortagerð og
hægt er að versla allan sólarhring-
inn allan ársins hring. Lagerinn er
í heimahúsi í Reykjavík og er
mögulegt að koma þangað að
skoða eða fá heimakynningar fyrir
hópa.
Föndursmiðjan rekur einnig
kertagerð þar sem hægt er að fá
handunnin ilmkerti, reykelsi,
krem, ljósker og fleira.
Nánari upplýsingar á www.
fondursmidjan.com.
Netverslun
með föndur
Það er alltaf gaman að föndra.
Óhrein jakkaföt
Það kemur fyrir besta
fólk að gleyma
að fara með föt í
hreinsun. Þegar
um er að ræða
jakkaföt er til gott
ráð sem bjargar
hlutunum fyrir
horn. Hjartarsalt
er sett í glas af
vatni og látið
eyðast upp. Þá
er tekinn bursti sem
dýft er í vatnið og burstað
yfir fötin. Þau eru síðan hengd út
til þerris og að því loknu eru þau
sem ný. Þó nást ekki stærstu og
svæsnustu blettirnir úr, til þess þarf
alvöru fagmenn. Hins vegar virka
fötin hrein og öll ólykt hverfur.
húsráð }
Baú fæst bæði ein-
breið og tvíbreið.
Duplo er einstaklingsrúm með auka dýnu.
Sorpa hefur gefið út nýja flokk-
unartöflu fyrir rusl.
Taflan er endurbætt og uppfærð
útgáfa af eldri töflu. Þar er að finna
allar upplýsingar um sorplosun og
endurvinnslu fyrir heimili og fyr-
irtæki. Töfluna er hægt að fá á
öllum endurvinnslustöðvum Sorpu
og á www.sorpa.is eða panta heim-
sendingu hjá sorpa@sorpa.is.
Ný flokkun-
artafla
Endurvinnsla er snar þáttur í starfsemi
Sorpu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI