Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 39

Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 39
THURSDAY 27. april 2006 9 Espressóbollarnir fást í verslun- um Te og kaffi. Þeir eru til í mörg- um litum, rauðum, bláum, hvítum og er þá ekki allt upp talið. Boll- arnir eru nokkuð óvenjulegir vegna þess að þeir líta út eins og krum- pað plast- mál, en eru reynd- ar úr leir. Þeir eru frá frönsku fyr- irtæki sem ber heitið Revol og kosta 495 kr. Espressóbolli Krumpuð og beygluð kaffimál má sjá víða um vinnustaði. Nú er hægt að kaupa sér slíkt úr leir. Skemmtileg hönnun. Sérfræðingur frá parket- framleiðandanum Hörning í Danmörku mun á laugardag- inn veita ráðgjöf í versluninni Parketi & gólf. Næstkomandi laugardag, þann 29. apríl, mun verslunin Parket & gólf í Ármúla standa fyrir sérstökum dönskum degi. Af því tilefni hefur verið fenginn til landsins parket- sérfræðinginn Jens Klampe frá parketframleiðandanum Hörning í Danmörku. Mun hann veita ráð- gjöf og svara almennum spurning- um frá klukkan 10.30 til 13.30. Til þess að gera stemninguna enn danskari verður einnig boðið upp á danskt öl og léttar veitingar með. Óskar Már Alfreðsson, versl- unarstjóri Parkets & Ggólfs, segir að Hörning sé Rolls Royce parket- markaðarins, en Hörning-parket má meðal annars sjá á Kastrup- flugvelli og í Alþingishúsinu. Óskar hlakkar því mikið til komu danska sérfræðingsins. ,,Hann mun koma með einhverjar nýj- ungar og ákveðna sérfræðiþekk- ingu.“ Að lokum má einnig geta þess að nú standa yfir plankadag- ar hjá Parketi & gólfi sem lýkur í lok maímánaðar. Danskur dagur hjá Parketi & gólfi Plankaparket hefur verið eitt vinsælasta gólfefnið að undanförnu. 1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9 1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.