Fréttablaðið - 27.04.2006, Page 46
„Þær eru fjölmargar landbúnaðar-
afurðirnar sem ég hef mikið dálæti
á en sú afurð sem ég nota mest af
er án efa íslenskt smjör. Ég hef farið
víða og smakkað margar gerðir af
smjöri og get fullyrt að íslenska
smjörið hefur yfirburðastöðu gagn-
vart öðru smjöri,“ segir Gísli Ein-
arsson, dagskrárgerðarmaður og
fréttamaður á RÚV. Gísli segist gæta
óhófs þegar hann smyr brauðið sitt
og réttara væri að kalla það brauð
á smjöri. Segist hann stundum fá
einkennilegt augnaráð þegar hann
smyr og ekki sé laust við að mönn-
um ofbjóði. Gísli segist annars vera
listakokkur. Hann eldi talsvert oft
og noti smjörið mikið í sinni mat-
argerð. „Ég hef verið að stúdera
danska smørrebrødsgerð upp á síð-
kastið og þar kemur smjörið náttúr-
lega við sögu.“
Gísli á eina vonda minningu um
smjör sem þó náði ekki að eyði-
leggja ást hans á því. „Þegar dótt-
ir mín, sem nú er þrettán ára, var
tæplega ársgömul hafði hún komist
í smjörstykki og dundaði sér við að
klína því í hár mitt, sem ég hafði þá,
föt og rúmföt meðan ég svaf værum
blundi. Þegar ég vaknaði var allt
löðrandi í smjöri og lyktin ógeðs-
leg. Þetta er eina vonda minningin
sem ég á um þessa annars frábæru
landbúnaðarafurð.“
6 ■■■■ { landbúnaður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Hólaskóli í Hjaltadal fagnar 900
ára afmæli í sumar. Skólastarf hófst
á Hólum árið 1106 og hefur það
staðið nær óslitið fram til dagsins
í dag. Þrjár námsbrautir eru í boði
við skólann, í ferðamálafræðum,
hrossarækt og reiðmennsku; fisk-
eldi og fiskilíffræði.
Skúli Skúlason, skólastjóri
Háskólans á Hólum, segir mestu
ásókn vera í ferðamálafræði en um
70 nemendur eru bæði í stað- og
fjarnámi í fræðunum. Hægt er að
útskrifast eftir eitt ár með diplóma-
gráðu. Að sögn Skúla er námið í
mikilli og hraðri þróun. „Áherslan í
ferðamálafræðum er á menningu og
náttúru og tengd landsbyggðinni,“
segir Skúli. „Við erum í nánu sam-
starfi við fjöldamörg fyrirtæki og
höfum byggt námið upp með ferða-
málafulltrúum í landshlutunum.“
Fjölskyldufólk er í meirihluta nem-
enda og hefur verið ráðist í bygg-
ingu bæði leik- og barnaskóla auk
þess sem nemendagarðar með 70
íbúðum hafi verið byggðir á Hólum
á síðastliðnum tveimur árum. Þetta
er rúm tvöföldun á húsakosti stað-
arins.
Nám í hrossarækt og reið-
mennsku er afar vinsælt og segir
Skúli að skólinn geti ekki tekið
við öllum umsækjendum. „Við
erum með 50 nemendur í náminu
og ráðum ekki við meira vegna
aðstöðuleysis,“ segir hann en
umsækjendur þreyta inntökupróf í
námið. Skúli segir skólann stefna
að því að taka fleiri nemendur inn
í námið á næstu árum en nauðsyn-
legt verði að stækka aðstöðu tengda
hestamennsku. Þrátt fyrir þetta er
aðstaðan á Hólum stórgóð. Skólinn
hefur yfir að ráða tveimur reið-
höllum og hefur aðstöðu fyrir 160
hesta. Stefnt sé að því að tvöfalda
nemendafjölda á næstu árum, að
sögn Skúla.
Aðsókn í nám í fiskeldi hefur ein-
kennst af nokkrum sveiflum allt frá
því að það hófst á Hólum árið 1984
en nú eru á bilinu 8 til 15 nem-
endur í fiskeldi og fiskilíffræði við
skólann auk 10 nemenda á meist-
ara- og doktorsstigi. Fiskeldisstöð
er við skólann á Hólum og unnið
að rannsóknum á bleikju og laxi en
auk þess hefur skólinn byggt upp
1.500 fermetra aðstöðu í Verinu við
höfnina á Sauðárkróki. Í húsinu er
stundað tilraunaeldi á lúðu, þorski
og bleikju auk fleiri tegunda. „Nú
er þarna komin hágæða rannsókn-
armiðstöð í fiskeldi, fiskilíffræði og
matvælarannsóknum,“ segir Skúli
Skúlason.
Fjölbreytt landbúnaðarnám
á Hólum í Hjaltadal
Nám í ferðamálafræðum og hestamennsku við Háskólann á Hólum í Hjaltadal er
gríðarlega eftirsótt. Í bígerð er að stækka skólann á næstu árum til að taka við fleiri
nemendum. Jón Aðalsteinn ræddi við skólameistara Hólaskóla.
Skúli Skúlason, skólameistari Háskólans
á Hólum í Hjaltadal, segir stefnt að því að
fjölga nemendum við skólann.
Háskólinn á Hólum í Hjaltadal. Mikil ásókn er í nám í ferðamálafræðum og hestamennsku og hefur húsakostur staðarins verið ríflega
tvöfaldaður til að sinna öllum þörfum nemenda.áburðardreifarar
Tvær dreifiskífur úr ryðfríu stáli,
vökvastýring úr ökumannssæti,
kögglasigti, hárnákvæm dreifing, vandaður
og endingargóður drifbúnaður, auðveld og
þægileg notkun.
AMAZONE áburðardreifararnir eru löngu
landsþekktir fyrir afburða endingu og mikla
nákvæmni.
ÞÓR HF | Ármúla 11 | Lónsbakka | www.thor.is
Aukabúnaður á mynd: kastvörn
��������������������������������
����������������������������������
�������������
������
�������������������
Notar smjör á allt
Gísli Einarsson, dagskrár-
gerðarmaður á RÚV, segir
íslenska smjörið hafa
yfirburðastöðu gagnvart
öðru smjöri.
Hlutfall íbúa í dreifbýli nam
um síðustu áramót 5,8 prósent-
um samkvæmt tölum Hagstofu
Íslands, en árið áður nam hlut-
fallið 7,3 prósentum. Þróunin
síðustu ár og áratugi sýnir að
stöðugt fleiri kjósa að búa í þétt-
býli.
Árið 1940 bjó þriðjungur
landsmanna í dreifbýli, en tveim-
ur áratugum síðar var hlutfall-
ið komið í tæp 18 prósent. Árið
1990 bjuggu 9,3 prósent í dreif-
býli og 1995 var hlutfallið komið
í 8,3 prósent. - óká
Þróun mannfjölda og búsetu
Þéttb. Dreifb. Hlutf.
1901 17.732 60.738 77,4%
1940 81.246 40.228 33,1%
1960 144.660 31.020 17,7%
1990 232.054 23.654 9,3%
1995 245.666 22.140 8,3%
2005 282.387 17.504 5,8%
Heimild: Hagtölur landbúnaðarins og Hag-
stofa Íslands. Tölur miða við mannfjölda 31.
desember ár hvert.
Stöðugt fækkar í dreifbýli
Heyskapur í Árbæ á fyrri hluta 20. aldar.