Fréttablaðið - 27.04.2006, Qupperneq 50
„Hamarinn er á lofti í sveitum lands-
ins, þar er mikil framkvæmdagleði,“
segir Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra og bætir við að í sveitum
landsins felist ótal sóknarfæri, fleiri
en nokkru sinni og gríðarlega mikið
að gerast. „Sveitin kallar til sín fólk
á nýjum og nýjum forsendum.“
Guðni segir að í sveitum lands-
ins sé mikið byggt, bæði hjá bænd-
um og eins hjá þeim sem reisa sér
sumar- eða heilsárshús. „Svo rísa
byggðir, sveitaþorp með nýju sviði,
þannig að sveitin virðist í dag kalla
marga til sín. Það sem að landbún-
aði snýr er hins vegar hið fjölþætta
hlutverk hans, því hann hefur nú
miklu víðara hlutverk en hann hafði
fyrir nokkrum árum.“ Guðni segir
hefðbundinn búskap eins og kúa-
og sauðfjárbúskap nú í þeirri stöðu
að mikil eftirspurn er eftir afurðum
þeirra. „Ekki hefur áður verið jafn-
áhugaverð sprengja í eftirspurn eftir
landbúnaðarvörum eins og síðustu
misseri og held ég að þar eigi meðal
annars töluverðan þátt skólamáltíð-
ir í grunnskólum landsins. Bændur
hafa ekki undan að framleiða mjólk
eða kjötvörur þannig að staðan er
glæsilegri en menn hafa áður búið
við. Síðan hafa hinar hefðbundnu
búgreinar þróast. Í sveitunum er
mikið byggt og endurnýjað af fjós-
um til þess að mæta nýjum tíma,
þannig að bóndinn og fjölskylda
hans hafi góða vinnuaðstöðu og
geti mætt samkeppni í framtíðinni
af meira öryggi. Í kringum land-
búnaðinn er því líf og fjör.“
Hesturinn dregur að sér viðskipti
Fjölbreytni telur Guðni engu að
síður að ríki áfram. „Sumir búa stórt
og aðrir búa smærra,“ segir hann.
„Síðan koma inn alls kyns áhuga-
menn með það sem við getum kall-
að frístundabúskap og algengt er
að dugmikið sveitafólk vinni með
búinu. En hér er auðvitað enginn
stórbúskapur, engin verksmiðja að
störfum.“ Guðni segir enda horft
til sóknarfæra í markaðssetningu á
heilnæmum vörum í erlendum sér-
vöruverslunum. „Þetta á orðið við
um mjólkurvörurnar, lambakjötið
og grænmetið. Þetta handverk sem
íslenskur landbúnaður er, unninn
af fjölskyldum sem þekkir dýrin
sín og fer vel með þau og býr við
þessa frábæru náttúru, er stór hluti
af möguleikum landbúnaðarins, um
leið og íslenska þjóðin finnur hvað
hún býr við gott matvælaborð að
eiga svona góða framleiðendur.“
Þá segir Guðni að á nýjum svið-
um blasi margt við í sveitinni. „Jarð-
ir eru mjög eftirsóttar, bæði af fólki
sem vill bara fara upp í sveit, eiga þar
skepnur, njóta þess að vera í nátt-
úrunni og taka þátt í þessu frábæra
menningarlífi sem í mörgum sveit-
um er. Þar er víða mjög skemmtilegt
líf, mikill söngur og félagsmálastarf-
semi. Hver einasti maður er í raun
stórt nafn í því samfélagi og þátttak-
andi í svo mörgu í kringum félagslíf-
ið.“ Hlutverk hestsins fer einnig vax-
andi að mati landbúnaðarráðherra.
„Ef ég met stöðuna rétt getur þetta
orðið sú búgrein sem er með hvað
flesta bændur. Þróunin í hestinum
hefur verið gríðarlega ör á síðustu
árum og við náð miklum árangri,
bæði hér í gegnum fagmennsku
hestamanna og öflugt skólastarf,
líkt og á Hólum, sem skilar fagfólki
inn í samfélagið. Íslenski hesturinn
vekur hvað mesta athygli héðan um
víða veröld. Í öllum heimsálfum eru
íslenskir hestamenn og hann dregur
að sér mikil viðskipti.“ Guðni nefnir
að um næstu áramót verði aflagðir
tollar af hestum til Evrópu, en það
sé þýðingarmikið skref til að auð-
velda samskipti. „En hrossabúgarð-
arnir setja nú mikinn svip á margar
sveitir, með öflugu fólki sem bygg-
ir upp aðstöðu til að temja og selja
hestinn. Þeir búgarðar skipta nú
orðið hundruðum og ég spái því að í
náinni framtíð verði hrossabúgarðar
orðnir fleiri en kúabú.
Í landanum býr sterkur sveitamaður
Guðni Ágústsson segir eins hafa
verið lagðan grunn að því að
bændur landsins fari með mikil-
væg verkefni og nefnir skógrækt í
þeim efnum. „Þeir planta skóginum
fyrir þjóð sína og framtíðina, en
hann trúum við að verði hér síðar
stór auðlind. Svo vita líka allir að
ferðaþjónustan er hvergi sterkari en
í sveitinni. Ferðaþjónusta bænda er
gríðarlega öflugt fyrirtæki þar sem
160 bændur standa saman um sína
markaðssetningu. Ég tel að stærsta
málið sé nú bein sala afurða af býli
bóndans, sem auðga muni íslenska
markaðinn og efla áhuga þéttbýlis-
búans á sveitinni enn frekar. Erlend-
ir jafnt og innlendir ferðamenn sem
fara um landið vilja hitta bændur að
störfum. Og bændur bjóða í kaffi,
taka á móti fólki og hafa þarna nýtt
og mikið hlutverk. Þannig er hið
fjölþætta hlutverk sveitanna í örum
vexti og sveitirnar hafa möguleika
á nýjum sviðum þar sem þær höfðu
enga fyrir tíu árum.“
Eins segir Guðni skemmtilegt
til þess að vita hve sterkar rætur
sveitin eigi í þjóðarsálinni. „Í flest-
um Íslendingum býr sterkur sveita-
maður og þrá eftir því að eiga land,
hvort sem það er einhver skiki og
sumarbústaður, eða jarðarpartur til
að festa rætur með fjölskyldu sinni
í náttúru landsins.“
Guðni segir bændum ganga vel
að fóta sig í nýju umhverfi og mikil
endurnýjun í sveitunum á síðustu
árum. „Ef farið er á fundi Lands-
10
Tómatar sem þessir eru framleiddir í miklu magni á stórum býlum í sumum löndum Evrópu. Í eina tíð voru uppi vangaveltur um að nýta
hér jarðhita til slíkrar ræktunar og hafa þær nú hafist aftur eftir nýjan samning við Evrópusambandið um tollamál. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Miklir möguleikar
í breyttu landslagi
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir
mikla framþróun og öfluga starfsemi eiga sér
stað á ótal sviðum í sveitum landsins. Hann spáir
enn frekari uppgangi í hrossarækt og telur hana
brátt munu standa jafnfætis kúabúskap hvað
umfang varðar. Óli Kristján Ármannsson hitti
Guðna að máli.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir spennandi tækifæri í landbúnaði, en þar á meðal eru möguleikar sem nýr samningur við
Evrópusambandið hefur í för með sér. Í honum felst niðurfelling á tollum þannig að evrópskir grænmetisbændur gætu séð sér hag í að
semja við orkufyrirtæki um aðbúnað og ræktun á háhitasvæðum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hins vegar verður æ meira umhugsunarefni meðal þess-
ara 149 þjóða hvort menn séu á réttri leið með að færa
til landbúnaðinn í heiminum. Ég er ekki viss um það. Ég
held að óskaplega mikilvægt sé fyrir hverja þjóð að geta
framleitt svona um helminginn af sínum matvælum og
við Íslendingar tökum mikinn þátt í heimsverslun með
landbúnaðarafurðir.
■■■■ { landbúnaður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■