Fréttablaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 66
27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR20
VISSIR ÞÚ...
...að fyrsta mannaða geimfarinu
var skotið á loft árið 1961. Það
var Júrí Aleksejvitsj Gagarín frá
Sovétríkjunum sem stýrði geim-
farinu Vostok 1, sem skotið var
út í geim frá Baikonur-skotpallin-
um í Kasakstan rúmlega níu fyrir
hádegi þann 12. apríl. Hann lenti
nærri Smelovka, Sovétríkjunum
115 mínútum síðar. Gagarín
hafði þá skotið sér úr geimfarinu
nokkru fyrr og svifið til jarðar í
fallhlíf.
...að fyrsta konan til að fara út í
geim var Valentina Tereshkova
frá Sovétríkjunum. Hún fór með
geimfarinu Vostok 6 þann 19.
júní 1963. Hún var 26 ára og
er enn í dag yngsta konan sem
farið hefur út í geim.
...að fyrsta geimgangan var
farin af Sovétmanninum Alexei
Arkhipovitsj Leonov. Hann fór út
úr geimflauginni Voskhod 2, 18.
mars 1965.
...að fyrsta mannaða ferðin
kringum tunglið var farin árið
1968. Það var geimfarið Appolo
8 sem náði þessum árangri
en því var skotið á loft 21.
desember. Í áhöfn voru þrír
Bandaríkjamenn og fóru þeir tíu
hringi kringum tunglið í sex daga
leiðangrinum.
...að fyrstu mennirnir stigu á
tunglið þann 21. júlí 1969. Neil
Armstrong frá Bandaríkjunum,
fyrirliði Appolo 11, steig fyrstur
út og Edwin Aldrin jr. fylgdi í
humátt á eftir honum.
...að lengsta mannaða tungl-
ferðin var farin 7.-19. desember
árið 1972. Þá dvaldi áhöfnin á
Appolo 17 á yfirborði tunglsins
í mettíma eða samanlagt 74
klukkustundir, 59 mínútur og 40
sekúndur. Áhöfnin safnaði alls
110,4 kg af grjóti og jarðvegi í
þremur lotum.
...að tveir geimfarar hafa farið í
sjö geimferðir og hefur enginn
farið fleiri geimferðir. Þetta
eru þeir Jerry Ross og Franklin
Chang-Diaz frá Bandaríkjunum.
...að Kínverjar eiga lengstu
jómfrúarferð þeirra þriggja þjóða
sem skotið hafa mönnum út í
geiminn. Kínverjinn Yang Liwei
var sendur 15. október 2003 á
sporbraut um jörðu um borð í
geimfarinu Shenzou 5 í ferð sem
stóð í 21 tíma og 23 mínútur frá
geimskoti til lendingar.
...að fjölmargar nýjungar má
rekja til geimvísinda.
...að þeirra á meðal eru
veðurspár, gervihnattadiskar,
strikamerkingar, læknisfræði-
ljósmyndun, CAT skönnun, flatir
sjónvarpsskjáir, stýripinnar, þráð-
laus tæki, hjartagangráður, sýnd-
arveruleikaþættir, reykskynjarar
og ósýnilegar tannspangir.
KAUPVENJUR
Keypti varahluti í fyrsta
forsetabílinn
Hver er eftirlætisbúðin þín?
Konan mín sér yfirleitt um búðirnar, það
er í hennar verkahring. Nema auðvitað
þegar kemur að því að kaupa í bíla.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
kaupa?
Það er skemmtilegast að kaupa í forn-
bílana.
Verslar þú í útlöndum?
Ég fer til Pennsylvaníu í Bandaríkjunum
einu sinni á ári á bílasýningu. Þar er líka
varahlutamarkaður og ég hef keypt hluti
þar.
Einhverjar venjur við innkaupin?
Það er náttúrulega venja að kaupa á
markaðnum. Ég hef líka verið að kaupa
varahluti í fyrsta íslenska forsetabílinn því
ég var að gera hann upp.
Tekurðu skyndiákvarðanir í fatakaup-
um?
Já, ef ég fer í fatainnkaup þá geri ég það.
Þá er það fljótgert. Ef konan kemur hins
vegar með er það flóknara.
SÆVAR PÉTURSSON, FORMAÐUR FORN-
BÍLAKLÚBBS ÍSLANDS, LÆTUR KONUNA UM
FLESTÖLL INNKAUPIN.
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2
Ármúla 23 • S. 568 1888
www.parketgolf.is
Plankad
agar
í fullum
gangi
Ótrúleg v
erð