Fréttablaðið - 27.04.2006, Page 70
27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR34
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér til
hliðar má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
AFMÆLI
Hörður Þórhallsson,
framkvæmdastjóri
Actavis á Íslandi, er
39 ára.
Jakob Björnsson,
formaður bæjarráðs
Akureyrar, er 56 ára.
ANDLÁT
Björn Sigmarsson, frá Krossavík,
lést af slysförum þriðjudaginn 25.
apríl.
Ingi Ragnar Ásmundsson, frá
Skálanesi, Vesturvegi 11, Seyðis-
firði, lést miðvikudaginn 12. apríl.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
JARÐARFARIR
13.30 Sólveig Hermannsdóttir,
Fróðasundi 10a, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akur-
eyrarkirkju.
15.00 Stefanía Ingibjörg Snæv-
arr verður jarðsungin frá
Seljakirkju.
15.00 Minningarathöfn um frú
Þórhöllu Gísladóttur,
ljósmóður frá Skógargerði,
Bergþórugötu 27, Reykjavík,
verður haldin í Hallgríms-
kirkju.
15.00 Minningarathöfn um sr. Sig-
hvat Birgi Emilsson, sem
lést í Noregi laugardaginn 1.
október 2005, verður haldin
í Hafnarfjarðarkirkju.
Jón Þórarinn Sigurjónsson,
áður til heimilis á Grundarstíg
3, Reykjavík, lést á Vífilsstöðum
mánudaginn 10. apríl. Útför hefur
farið fram í kyrrþey.
Á þessum degi árið 1828 var
dýragarðurinn í Lundúnum
opnaður. Garðurinn hefur
frá upphafi sinnt braut-
ryðjendastarfi í dýragarða-
bransanum og kynnti ýmsar
nýjungar til að auðvelda
almenningi að sjá sem flest
dýr. Meðal annars var fyrsta
skriðdýrahús í heimi opnað
þar árið 1849 og fyrsta
vatnadýrasafnið árið 1853.
Mikill fjöldi dýrategunda
hefur ávallt verið aðalsmerki
dýragarðsins í Lundúnum og
hýsir hann eitt fjölbreyttasta
dýrasafn í heimi.
Seinni heimsstyrjöldin
var dýragarðinum erfið þar
sem fjöldi dýra lét lífið eða
slapp. Svangar fjölskyldur í
nágrenni við garðinn áttu
líka til að leggja leið sína í
vatnsdýrasafnið til að veiða
fisk í soðið. Enduruppbygg-
ing hófst þó árið 1955 og tók
tíu ár að koma garðinum í
sama horf og hann var áður.
Síðan hafa endurbætur sett
svip sinn á garðinn og nýj-
ungar bætast reglulega við.
Frægasti íbúi garðsins
er að öllum líkindum risap-
andan Chi-Chi sem kom frá
Kína árið 1958 og var fyrsta
risapandan sem komið var
fyrir í vestrænum dýragarði.
Hún dó árið 1972.
ÞETTA GERÐIST: 27. APRÍL 1828
Opnun dýragarðsins í Lundúnum
RISAPANDA Dýragarðurinn í London var heimili
Chi-Chi, fyrstu risapöndunnar sem bjó í vestræn-
um dýragarði.
MERKISATBURÐIR
1858 Póstgufuskipið Victor
Emanuel kemur til Reykja-
víkur í fyrstu áætlunarferð
sinni frá Kaupmannahöfn.
Áður höfðu seglskip siglt
þessa leið.
1865 Gufubáturinn Súltana
springur og sekkur í
Mississippi-ánni. Af 2.300
farþegum láta 1.700 lífið.
1915 Gullfoss leggur af stað
til New York og er fyrsta
íslenska skipið með
íslenskan skipstjóra sem
siglir til Vesturheims síðan á
dögum Leifs heppna.
1961 Síerra Leóne hlýtur sjálf-
stæði frá Bretlandi.
1977 Önnur goshrina Kröfluelda
hefst en stendur einungis í
þrjá daga.
FERDINAND MAGELLAN
(1480-1521) LÉST ÞENNAN DAG
„Kirkjan segir að jörðin sé
flöt en ég veit að hún er
kringlótt, því ég hef séð
skuggann á tunglinu og hef
meiri trú á skugga en
kirkjunni.“
Landkönnuðurinn Magellan stjórnaði
fyrstu sjóferðinni umhverfis hnöttinn.
Kolbeinn Einarsson, tónskáld með
meiru, á 35 ára afmæli í dag. Hann
stefnir ekki á stórkostleg veisluhöld í
tilefni tímamótanna heldur bíður
spenntur eftir 44 ára afmælinu.
„Mér líður bara mjög vel með þetta
og finnst ég vera orkumeiri og yngri
með hverjum deginum,“ segir Kol-
beinn galvaskur um afmælisdaginn.
Hann er þó ekki alveg jafn kátur þegar
blaðakona ber undir hann kenninguna
um að 35 ára afmælið sé hið nýja fer-
tugsafmæli. „Mér hálffertugum mann-
inum finnst nú súrt í broti að vera tal-
inn alveg svo gamall,“ segir hann.
Kolbeinn á ekki í nokkrum vand-
ræðum með að velja skemmtilegasta
afmælið. „Þegar ég varð þrjátíu og
þriggja ára kom konan mín mér á óvart
með afmælisveislu sem mun seint líða
úr minni þeirra sem viðstaddir voru.
Hún smalaði saman bestu vinum og
fjölskyldum okkar og var búin að
umbreyta heimilinu okkar í veislusal.
Þetta var eins og í Fellini mynd, svona
ítölsk veislustemning,“ segir Kolbeinn
og bætir við að hann hlakki mikið til 44
ára afmælisins.
Afmælisveislan að þessu sinni verð-
ur ekkert í líkindum við þrjátíu og
þriggja ára afmælið enda kveðst Kol-
beinn eiga erfitt með að koma sjálfum
sér á óvart. „Hins vegar getur vel verið
að ég reyni að halda eitthvað pínulítið
hóf með fjölskyldu og vinum.“
Mikið er um að vera í lífi Kolbeins
en hann er nýkominn heim frá Banda-
ríkjunum þar sem hann „krúsaði
Pacific Highway númer eitt á rauðum
sportbíl með blæjuna niðri. Þetta var
nokkurs konar pílagrímsferð til Kali-
forníu þar sem ég og kona mín vorum
á námsárum okkar. Nokkur tilefni voru
fyrir ferðinni. Í fyrsta lagi voru það
minningartónleikar um kennara minn
og góðan vin, Stephen Lucky Mosko,
þar sem flutt var tónlist eftir hann.
Einnig var tónleikaferð með íslenskri
nútímatónlistarhljómsveit sem heitir
Atón en þau voru einmitt að spila tón-
list eftir mig. Þriðja tilefnið var svo
bara að heimsækja okkar fornu slóðir
og sjá hvort grasið sé ekki örugglega
grænna hinu megin.“ Svo reyndist
vera enda grassprettan í lágmarki
hérna á Klakanum. „Að ferðinni lok-
inni komum við heim í dásamlega
íslenskan sumardag með alhvítri jörð,“
bætir Kolbeinn við hlæjandi.
Aðspurður um verkefni sem bíða á
36. aldursárinu segist Kolbeinn vera
með nóg á sínum snærum. „Vonandi
tekst mér að finna þessa fínu línu milli
listarinnar, brauðstritsins og fjölskyld-
unnar og staðsetja mig þarna einhvers
staðar í miðjunni á þríhyrningnum.“
KOLBEINN EINARSSON TÓNSKÁLD: 35 ÁRA Í DAG
Grasið er grænna í Kaliforníu
KOLBEINN EINARSSON ER AFMÆLISBARN DAGSINS Skemmtilegasta afmælisveisla Kolbeins var 33 ára afmælið þegar konan hans skipulagði óvænta
afmælisveislu og umbreytti heimili þeirra í ítalskan veislusal. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Í dag eins og venjan er þann
27. apríl halda Suður-Afr-
íkubúar upp á dag frelsis-
ins. Dagsetningin var valin
vegna þess að á þessum
degi árið 1994 voru fyrstu
kosningarnar eftir að
aðskilnaðarstefna svartra
og hvítra var afnumin. Í
kosningunum var Nelson
Mandela kjörinn forseti
landsins og var fyrsti
blökkumaðurinn til að
gegna embættinu.
Frelsinu sem í því fólst
er því fagnað í dag og þurfa
landsmenn ekki að mæta til
vinnu eða í skóla.
Frelsinu fagnað
SUÐUR-AFRÍKA Suður Afríkubúar fagna endalokum aðskilnaðarstefnunnar
og eiga frí í dag.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Hannes Helgason
Asparfelli 8,
andaðist á Landspítala Fossvogi aðfaranótt
sunnudagsins 23. apríl. Jarðarförin auglýst síðar.
Guðlaug Maggý Hannesdóttir Jón Pétur Jónsson
Hafdís Hannesdóttir Stefán Gunnar Stefánsson
Helgi Hannesson Guðmunda Eyjólfsdóttir
Lára Hannesdóttir Schram
Sigmundur Hannesson Sigrún Arnardóttir
barnabörn og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir, afi og langafi,
Kristján Jónsson
dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn
28.apríl kl 13.30. Blóm og kransar eru afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalarheimilið
Hlíð.
Ragna Kristjánsdóttir
Halldóra Kristjánsdóttir Sigurður I. Gíslason
Eyþór Kristjánsson Ingibjörg Thorp
Valgerður Kristjánsdóttir Kristján Birgisson
Þórný Kristjánsdóttir Benedikt Benediktson
barnabörn, langafabörn og systkini hins látna.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Jóhanna Þorgeirsdóttir
kennari, Hlunnavogi 3,
verður jarðsungin frá Seljakirkju föstudaginn 28. apríl
kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið.
Hjalti Jónasson, börn, tengdabörn og barnabörn.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI