Fréttablaðið - 27.04.2006, Síða 80

Fréttablaðið - 27.04.2006, Síða 80
 27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR44 maturogvin@frettabladid.is VEITINGASTAÐURINN CAFÉ PARÍS AUSTURSTRÆTI 14, 101 REYKJAVÍK WWW.CAFEPARIS.IS Café París var nýlega opnað á ný eftir miklar breytingar. Staðurinn hefur verið stækkaður um 80 fm, ný húsgögn fylla staðinn og hann er í heildina mun nýstískulegri. Reyndar má deila um stílinn en þessi franski svipur sem fylgdi gömlu tágahúsgögnunum er horfinn. Franskir réttir eins og crépes og croissant eru þó enn á matseðlinum og sumt af gamla starsfólkinu er enn í húsinu. Ægilegur ys og þys einkennir staðinn, kannski bara af því að hann er nýr og margir hafa verið að prófa hann, en þetta er a.m.k. ekki staðurinn vilji maður slaka á í erli dagsins. Á kvöldin breytist staðurinn svo í kokkteilbar og er opinn mun lengur en áður var. Matseðilinn? Matseðillinn er afar fjölbreyttur og það er boðið upp á sérstakan seðil fyrir börn. Meðal þess sem er að finna á seðlinum eru steikur, pasta, salöt, vefjur, beyglur og kökur. Gott úrval af kaffidrykkjum, ekki síst áfengum, t.d. St. Martens kakó, franskt kaffi og calypso kaffi. Vinsælast? Á gamla Café París voru pönnukökurnar einn af vinsælustu réttum hússins sem og kökurnar. Á nýja matseðlinum er hinsvegar brunch-bakkinn afar girnilegur og einnig má fá nýpressaðan heilsusafa á staðnum, hvort tveggja afar líklegt til vinsælda. Verð? Beyglur fást á 790 kr., nautasteik með frönskum á 1790 kr. og kökusneiðarnar eru í kringum 600 krónur. Vín- glasið er á 650 kr. og áfengu kaffidrykkirnir eru á 900 kr. ÞRÚGUR GLEÐINNAR > EINAR LOGI VIGNISSON -Þú getur alltaf treyst á prinsinn- Hlíðasmári 8 • S:5547200 • www.hafid.is Grillvertíðin er hafin á Prinsinum. Fiski grillspjót Lúða-lax-keila-rauðspretta í góðum grillmareneringum Eftir tvær vikur er væntanlegur hingað til lands Andrew Wigan, sem hefur haft yfirumsjón með hvorki fleiri né færri en 33 árgöngum Peters Lehmann í Bar- ossa Valley. Wigan er án efa einn af virtustu víngerðarmönnum Ástrala. Hann var til dæmis kos- inn víngerðarmaður ársins á Int- ernational Wine and Spirit Comp- etition (IWSC) í London árið 2003. Hann ber ábyrgð á vínunum Stonewell Shiraz og Peter Lehmann Sémillon og víngerðar- teymið undir hans stjórn hefur átta sinnum sigrað í keppni um „besta vín ársins“ í áðurnefndri keppni, IWSC. Andrew Wigan mun í sam- vinnu við hinn nýstofnaða Vín- skóla sem Dominique Plédel Jóns- son veitir forstöðu halda svonefnt „master class“ námskeið í Þjóð- menningarhúsinu fimmtudaginn 11. maí kl. 17.30. Námskeiðið kostar 2.300 kr. og hægt er að skrá sig með því að senda tölvu- póst á vinskolinn@vinskolinn.is. Wigan mun fjalla ítarlega um vínin og smökkuð verða undir leiðsögn hans um tíu vín úr mis- munandi árgöngum og mun þrúg- urnar riesling og shiraz bera hæst og smökkuð verða vín á borð við Weighbridge, Eden Valley, Eight Songs og Stonewell. Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast víngerð Ástralíu, sem er í mörgum atriðum frábrugðin því sem þekkist í Evrópu. Peter Lehmann þarf vart að kynna fyrir Íslendingum, vínhús- ið í Barossa Valley hefur verið vinsælt hérlendis sem víðar og hlotið margvíslegar viðurkenn- ingar á alþjóðavettvangi. Vínhús- ið er í mörgu óhefðbundið, sem dæmi má nefna að kosið er í vín- gerðarteyminu um allar mikil- vægustu ákvarðanir varðandi víngerðina. En Peter Leh- mann er kannski þekktast- ur fyrir þá persónulega stefnu sem hann tók frá upphafi og kemur fram í fjölbreytni vína, lista- verkum á miðunum, og stíl sem sker sig úr. Frægur víngerðamaður til landsins VERT AÐ SPÁ Í Shiraz-þrúgan er höfuðþrúga Ástralíu. Gaman er að smakka blæbrigðamuninn á þessum kröftugu vínum. Hér á landi fást nokkur góð shiraz-vín frá Peter Lehmann. Wildcard og Weighbridge kosta um 1200 kr., stigi ofan eru Shiraz og The Futures Shiraz sem kosta réttum 500 kr. meira og toppurinn er Stonewell Shiraz á 3000 kr. bókina Meðlæti-200 uppskriftir og hugmyndir sem Vaka-Helgafell var að gefa út. Gott meðlæti gerir gæfumuninn í vel- heppnaðri máltíð og það er því er vissarra að hafa það á hreinu. Kauptu... FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A Ys og þys við Austurvöll Arnar Mattíasson, þýðandi á Skjá einum, væri til í að eiga fljótandi vetni í eld- húsinu hjá sér til þess að geta fryst heimatilbúinn ís á augabragði en hann er snillingur í slíkri ísgerð. „Ég elda sama réttinn yfirleitt ekki oftar en einu sinni nema þennan ís en hann er reyndar aldrei eins,“ segir Arnar sem er mikill matgæðingur. Gestum hans hefur oft verið boðið upp á ísinn og Arnar tekur hann einnig oft með þegar honum er boðið annað í mat. „Það er lítill sykur í honum enda finnst mér skemmtilegra að fá sætleikann úr súkkulaði eða öðrum bragðefnum. Ég sleppi líka eggjarauðunni, það gerir ísinn léttari,“ segir Arnar og bætir við að hann dreymi um fljótandi vetni í eldhúsið til að geta fryst ísinn á augabragði og þannig sloppið við það að ísnálar myndist í honum. Framundan er fyrsta matar- boðið í nýrri íbúð, en matseðillinn er enn óljós ef frá er talinn ísinn góði sem að sjálfsögðu verður á boðstólnum. „Þegar matarboð er í vændum fer ég á Netið og finn uppskriftir fyrir það hráefni sem mig langar til að elda úr. Þannig verða gestir mínir oft vitni að mik- illi tilraunamennsku sem getur bæði farið vel og illa.“ Arnar minnist þess t.d. að þegar pasta- vélin kom á heimilið hafi hann haldið matarboð sem seinkaði um marga klukkutíma þar sem illa gekk að búa til pastað og ekki var borðað fyrr en á miðnætti. „Auk fljótandi vetnis vantar mig einnig brennara í eldhúsið. Það væri fínt að eiga slíkt tæki til að bræða syk- urhúðina á créme brulée og ostinn á hamborgurunum.“ TILVILJANAKENNDUR ÍS 1/2 lítri rjómi 4 stór egg (bara eggjahvíturnar eru notaðar) 50 gr sykur suðusúkkulaði og/eða ávextir Sykurinn og eggjahvíturnar eru þeytt saman. Rjóminn er þeyttur. Súkkulaðið er brætt í potti. Jafnvel má bæta annarri súkkulaðitegund við það eins og Toblerone. Súkkulaðið er kælt og síðan er öllum hráefnum hrært saman og sett í frysti. Athugið að það má gjarnan setja ávexti út í ísinn, jafnvel mylja smákökur í hann. Gott er að taka ísinn úr frystinum nokkru áður en hann er borinn fram og geyma í ísskáp. Dreymir um fljótandi vetni ÍSMAÐURINN ÓGURLEGI Arnar hefur fallegt útsýni yfir Geirsnefnið úr eldhúsinu sínu en hann er nýfluttur í Vogahverfið. Þar verða líklega margar veislumáltíðirnar bornar fram í framtíðinni, ekki síst hinn tilviljanakenndi ís. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hvaða matar gætir þú síst verið án? Kaffis. Ég er koffínfíkill og kemst ekki í gang án þess. Kaffi er auk þess óstjórnlega gott á bragðið, ég veit fáar betri nautnir en góðan kaffibolla þegar fíknin er farin að segja til sín Fyrsta minningin um mat? Ég sit á gólfinu í blokkaríbúð í Þangbakkanum. Það er verið að lesa dánarfregnir og jarðarfarir í útvarpinu. Í karrígulum potti á hellu sjóða kartöflur og á karrígulri rafmagnspönnu stiknar ýsa í raspi og laukur. Besta máltíð sem þú hefur fengið? Nokkrum sinnum á ári tek ég mig til og borða sérstakan morgunmat. Einu sinni á ári fæ ég mér amerískar pönnukökur með beikoni, smjöri og sírópi á Gráa kettinum. Það er alltaf jafngott. Á nokkurra mánaða fresti fæ ég mér nýbakað brauð í morgunmat með smjöri, frekar linum harðsoðnum eggjum og túpukavíar. Undanrennu og kaffi með. Þetta er best í heimi, ég elska góðan morgunmat. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Hafragrautur og laukur, þó ekki hvítlaukur. Leyndarmál úr eldhússkápunum? Nei, engin leyndarmál held ég. Ég er ákaflega lélegur kokkur. En ég á alltaf kaffi, pasta, mjólk, smjör, brauð og ost. Svo finnst mér mjög mikilvægt að eiga nóg af pakka- og dósamat, þá getur maður ekki orðið svangur. Hvað borðar þú til að láta þér líða betur? Pítsu. Og hamborgara. Og allt sem er hægt að kalla kransæðakítti. Og brauð með smjöri og osti og heitt kakó. Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Fetaost, kál, gúrku, papriku, hvítlauk, nauðsynlegt álegg, mjólk og egg. Og yfirleitt eitthvað útrunnið. Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða rétt tækir þú með þér? Brauð- ið sem stillir hungur úr Elsku Míó minn. Og stórlúðusteikina sem ég borðaði á Enrico‘s í hádegis- mat. Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur borðað? Sennilega eitt- hvað ofsalega ófrumlegt eins og froskalappir. Sem mér þóttu ákaflega góðar. MATGÆÐINGURINN: HILDUR LILLIENDAHL VIGGÓSDÓTTIR NEMI OG LJÓÐSKÁLD Best að fá góðan morgunmat
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.