Fréttablaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 86
Tvær íslenskar plötur eru á lista yfir 100 bestu plöturnar sem hafa verið gagnrýndar hjá hinu virta breska tónlistartímariti Mojo frá stofnun þess árið 1993. Plata Bjarkar Guðmundsdótt- ir, Post, er í 53. sæti og meistara- stykki Sigur Rósar, Ágætis byrj- un, er í því 70. Í efsta sætinu er aftur á móti platan Grace með hinum látna snillingi Jeff Buck- ley. Í öðru sæti er American Rec- ordings með Johnny Cash og í því þriðja OK Computer með Radio- head. Plötur sem eru á eftir bæði Björk og Sigur Rós á listanum eru m.a. Parklife með Blur, All That You Can´t Leave Behind með U2, The Marshall Mathers LP með Eminem, A Rush of Blood to the Head með Coldplay og Tox- icity með System of a Down. Alls var úr rúmlega tíu þúsund plötum að velja, sem bæði blaða- menn hjá Mojo og lesendur tíma- ritsins völdu úr. Verður árangur Bjarkar og Sigur Rósar því að teljast afar góður. Í tímaritinu segir að fjölhæfni Bjarkar og hæfileikar hafi sprungið út á Post þrátt fyrir að hún hafi lýst yfir sjálfstæði sínu frá Sykurmolunum með fyrstu plötunni Debut. Um plötu Sigur Rósar kemur fram að ekkert hafi bent til þess að hún myndi seljast í 600 þúsund eintökum eftir að fyrsta platan Von seldist í einungis 500 eintök- um. Ágætis byrjun hafi aftur á móti verið svo heillandi að það væri eins og hún hafi verið geisl- uð til jarðar frá fornöld.■ Björk og Sigur Rós á lista Mojo BJÖRK Platan Post með Björk Guðmunds- dóttur er í 53. sæti yfir 100 bestu plöturnar í sögu Mojo. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Sími: 555-6688 Glæsilegur LEGO fatnaður Annar hluti fransk/íslenskrar tón- listarveislu þar sem franskir plötusnúðar og tónlistarmenn þeyta skífum ásamt Barða úr Bang Gang verður haldinn á Prikinu á laugardaginn. Að þessu sinni mun Anthony Gonzalez, forsprakki hljómsveit- arinnar M83, spila ýmis hressandi lög ásamt Barða. Tónlist M83 er oft líkt við Pink Floyd, My Bloody Valentine og Brian Eno. M83 var áður dúett en er nú eins manns band. Síðasta plata sveitarinnar, Before the Dawn Heals Us, var á flestum list- um yfir bestu plötur síðasta árs í Frakklandi og þótt víðar væri leit- að. M83 gefur út plötur sínar hjá MUTE í Bandaríkjunum og Labels í Evrópu. Hefur Labels meðal ann- ars á sinni könnu Daft Punk, Röyk- sopp, Yann Tiersen og Lady and Bird sem þau Barði og Keren Ann skipa. Hefur M83 meðal annars end- urhljóðblandað fyrir stór nöfn á borð við Depeche Mode, Placebo, Bloc Party og Goldfrapp. ■ Barði og Anthony þeyta skífum BARÐI Barði úr Bang Gang þeytir skífum ásamt Anthony Gonzales á Prikinu á laug- ardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Breska hljómsveitin The Wedding Present heldur tónleika á Grand Rokk í kvöld. Húsið verður opnað klukkan 21.00 og um klukkustund síðar stígur upphitunarbandið Singapore Sling á svið. The Wedding Present var stofn- uð í Leeds á Englandi árið 1985. Sveitin skapaði sér nafn á næstu árum sem ein stærsta og vinsæl- asta jaðarsveit Englands með plöt- um á borð við Bizzaro og Seamon- sters, en sú síðarnefnda var unnin með hinum goðsagnakennda hljóð- upptökumanni Steve Albini. Vin- sældir The Wedding Present náðu sennilega hámarki árið 1992 þegar sveitin fór enn og aftur ótroðnar slóðir í útgáfumálum með því að gefa út smáskífu á fyrsta mánu- degi hvers mánaðar ársins. Smá- skífurnar fundu sér allar leið inn á breska vinsældalistann og jafnaði hljómsveitin þar með met Elvis Presley, sem 35 árum áður hafði einnig komið tólf smáskífum inn á listann sama árið. The Wedding Present tók sér frí frá störfum árið 1997 en sneri aftur síðasta ár með plötuna „Take Fountain“ og hefur í kjölfarið hald- ið í tónleikaferð um allan heim þar sem hún hefur alls staðar vakið athygli fyrir hressilega og kraft- mikla framkomu. Forsala á tónleik- ana fer fram í verslun 12 Tóna. ■ Wedding Present leikur í kvöld THE WEDDING PRESENT Breska jaðarhljómsveitin heldur tónleika á Grand Rokk í kvöld. SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu PÁSKAMYNDIN 2006 SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI STÆRSTA MYND ÁRSINS - VJV, Topp5.is - HJ MBL RANGUR TÍMI, RANGUR STAÐUR, RANGUR MAÐUR 42.000 MANNS Á AÐEINS 18 DÖG UM! VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! - JÞP Blaðið ÓHUGNANLEGASTA MYND ÁRSINS! FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA HVAÐ SEM ÞÚ GERIR, EKKI SVARA Í SÍMANN! - LIB, Topp5.is - Dóri DNA, DV - DÖJ, Kvikmyndir.com STRANGLEGA BÖNN UÐ INNAN 16 ÁRA DYRAVERÐIR VIÐ SALINN! THE HILLS HAVE EYES kl. 10.25 B.I. 16 ÁRA ICE AGE 2 kl. 6 og 8 M/ENSKU TALI ÍSÖLD 2 kl. 6 M/ÍSL. TALI WHEN A STRANGER CALLS kl. 10 B.I. 16 ÁRA SÍÐUSTU SÝNINGAR THE HILLS HAVE EYES kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA ICE AGE 2 kl. 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI LUCKY NUMBER SLEVIN kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA WALK THE LINE kl. 5.30 WHEN A STRANGER CALLS kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA THE HILLS HAVE EYES kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA WHEN A STRANGER CALLS kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 4, 6, 8 og 10 ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 4 og 6 DATE MOVIE kl. 4, 6 og 10 B.I. 14 ÁRA „MUN BETRI OG HARÐARI EN FRUMMYNDIN“ Ó.Ö.H. - DV “THE HILLS HAVE EYES ER GRIMM OG ANDSTYGGILEG EN HÚN HRÍFUR MANN MEÐ SÉR MESTALLAN SÝNINGARTÍMANN” - SV - MBL “...PRÝÐILEG SKEMMTUN FYRIR ÞÁ SEM KUNNA AÐ META ÝKTAN VIÐBJÓД - ÞÞ - FBL ALLRA SÍÐUSTU S ÝNINGAR - Ó.Ö.H. - DV - SV - MBL - LIB. - TOPP5.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.