Fréttablaðið - 27.04.2006, Síða 90

Fréttablaðið - 27.04.2006, Síða 90
 27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR54 ... einfaldlega betri! Skeifunni 5 í Reykjavík, sími: 553 5777 • Smiðjuvegi 6 í Kópavogi, sími: 755 3355 • Melabraut 24 í Hafnarfirði, sími: 555 6558 • Iðavöllum 8 í Keflavík, sími: 421 6267 Miðási 23 á Egilsstöðum, sími: 471 3113 • Víkurbraut 4 á Höfn, sími: 478 1990 og Gagnheiði 13 á Selfossi, sími: 482 1712 KÖRFUBOLTI Violet Palmer skráði nafn sitt í sögubækurnar í fyrri- nótt þegar hún varð fyrsta konan til að dæma leik í úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Hin 33 ára gamla Palmer var einn dómaranna í leik Indiana og New Jersey en hún hóf að dæma í deildarkeppni NBA fyrir níu árum síðan. „Ég var ekki viss um að ég myndi ná þessum áfanga á mínum ferli en nú hefur það tekist. Það er stórkostleg tilfinning,“ sagði Palmer en hún þurfti að þola ýmis fúkyrði frá leikmönnum Indiana sem voru allt annað en sáttir við dómgæsluna í leiknum. Alls voru dæmdar 49 villur í leiknum, þar af sex tæknivillur. - vig Úrslitakeppnin í NBA: Kona dæmdi í fyrsta sinn VIOLET PALMER Stóð í ströngu við að róa leikmenn í fyrrinótt. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Hvít-Rússum þann 6. maí en leikurinn er liður í undankeppni HM árið 2007. Ísland hefur hlotið fjögur stig í sínum riðli eftir jafntefli gegn Svíum og sigur gegn Hvít Rússum. Liðið tapaði aftur á móti fyrir Tékk- landi. Í leiknum gegn Hvít-Rússum í ágúst á síðasta ári skoraði Dóra María Lárusdóttir tvö mörk í 3-0 sigri en Margrét Lára Viðarsdóttir eitt. Búast má við mun erfiðari leik að þessu sinni en leikurinn fer fram í Minsk. - hþh HÓPURINN: ÞÓRA B. HELGADÓTTIR BREIÐABLIK SANDRA SIGURÐARDÓTTIR STJARNAN ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR MALMÖ FF OLGA FÆRSETH KR GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR BREIÐABLIK KATRÍN JÓNSDÓTTIR VALUR EDDA GARÐARSDÓTTIR BREIÐABLIK GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR BREIÐABLIK MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR VALUR DÓRA STEFÁNSDÓTTIR MALMÖ FF HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR KR DÓRA MARÍA LÁRUSDÓTTIR VALUR ERNA B SIGURÐARDÓTTIR BREIÐABLIK ERLA STEINA ARNARDÓTTIR MALLBACKENS ÁSTA ÁRNADÓTTIR VALUR ÓLÍNA G. VIÐARSDÓTTIR BREIÐABLIK GRETA M. SAMÚELSDÓTTIR BREIÐABLIK HARPA ÞORSTEINSDÓTTIR STJARNAN Kvennalandslið Íslands: Jörundur velur landsliðið KÖRFUBOLTI Boris Diaw, leikmaður Phoenix Suns, mun vera valinn framfarakóngur NBA-deildar- innar í ár, að því er nokkrir fjöl- miðlar í Bandaríkjunum greina frá. Hinn franski Diaw hefur leikið frábærlega með Pheonix í ár á sínu öðru tímabili í deildinni, en á síðustu leiktíð var hann varamaður hjá Atlanta með 4.6 stig að meðal- tali í leik, 3.6 fráköst og 2.3 stoð- sendingar. Í ár hefur hann hins vegar verið með 13.3 stig, 6.9 stoð- sendingar og 6.2 fráköst að meðal- tali í leik. „Það bjóst enginn við neinu af Boris fyrir tímabilið en hann hefur átt stóran þátt í velgengni okkar í vetur,“ sagði Mike D´Antoni, þjálf- ari Phoenix. - vig Einstaklingsverðlaun í NBA: Diaw bætti sig mest í ár KÖRFUBOLTI Avery Johnson, þjálf- ari Dallas, hefur verið kosinn þjálfari ársins í NBA-deildinni. Johnson náði frábærum árangri með liði Dallas í vetur á sínu fyrsta heila tímabili sem þjálfari liðsins, en Johnson tók við liðinu um mitt tímabilið 2004-2005. Dallas vann 60 leiki á tímabilinu í ár og tapaði aðeins 22 en það er metjöfnun á besta árangri félagsins frá upp- hafi. - vig Besti þjálfarinn í NBA: Johnson var valinn HVAÐ? HVENÆR? HVAR? APRÍL 24 25 26 27 28 29 30 Fimmtudagur ■ ■ LEIKIR  19.15 Stjarnan og ÍBV mætast í Deildarbikar kvenna í handbolta í Ásgarði.  19.15 Haukar og Valur mætast í Deildarbikar kvenna í handbolta á Ásvöllum. ■ ■ SJÓNVARP  17.05 US PGA í nærmynd á Sýn. Fréttaþáttur um bandarísku mótaröðina í golfi.  17.05 Leiðin á HM á Sýn. Fréttaþáttur um HM sem fram fer í Þýskalandi í sumar.  18.55 Evrópukeppni félags- liða á Sýn. Bein útsending frá leik Middlesbrough og St. Búkarest.  21.00 Sænsku nördarnir á Sýn. Meistaradeild Evrópu: BARCELONA-AC MILAN 0-0 Barcelona komst áfram samanlagt 1-0. Enska úrvalsdeildin: WEST HAM-LIVERPOOL 0-1 0-1 Djibril Cisse (19.), 1-1 Nigel Reo-Coker (46.), 1-2 Djibril Cisse (53.). ÚRSLIT GÆRDAGSINS FÓTBOLTI Franski sóknarmaðurinn Djibril Cisse hefur legið undir ámælum að undanförnu en flestir telja að hann muni yfirgefa her- búðir Liverpool í sumar. Hann sendi þó skýr skilaboð í gær- kvöldi þegar hann skoraði bæði mörk Liverpool í 2-1 sigri þeirra á West Ham. Cisse skoraði fyrsta mark leiksins eftir nítján mínútna leik með föstu skoti en markið skrifast að hluta til á James Walker, mark- mann West Ham sem hefði átt að gera mun betur. Cisse kláraði færið vel eftir góðan undirbúning frá Mohammed Sissoko. Nigel Reo-Coker jafnaði leikinn fyrir West Ham í upphafi síðari hálfleiks þegar hann setti fyrirgjöf frá Bobby Zamora auð- veldlega í markið af stuttu færi. Cisse svaraði aftur á móti jafn harðan og skoraði sitt annað mark eftir sendingu frá Robbie Fowler og tryggði Liverpool stigin þrjú. Luis Garcia kom inn á sem varamaður á 80. mínútu en var rekinn af velli aðeins tveimur mínútum síðar. Hann réðst þá að Hayden Mullins með hnefunum sem svaraði í sömu mynt. Eftir að liðsfélagar þeirra höfðu skakkað leikinn fengu þeir báðir snemm- búna sturtu frá Howard Webb dómara. Liverpool er nú aðeins þremur stigum á eftir Manchester United sem á leik til góða á Evrópumeist- arana. Manchester United er þó mun líklegra til að hreppa annað sætið en liðið á þrjá leiki eftir en Liverpool tvo. - hþh Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu í gærkvöldi: Cisse með tvö mörk LOKSINS, LOKSINS Djibril Cisse hefur legið undir gagnrýni undanfarið en sýndi sitt rétta andlit í gær. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Barcelona og Arsenal munu mætast á Stade de France leikvanginum í París þann 17. maí nk. þegar úrslitaleikurinn í Meist- aradeild Evrópu fer fram. Það varð ljóst í gær eftir að Barcelona hafði gert markalaust jafntefli gegn AC Milan á heimavelli sínum en spænska liðið vann fyrri leik- inn á San Siro 1-0 og var það mark nóg til að fleyta liðinu áfram. Draumaúrslitaleikur margra fót- boltaáhugamanna er því orðinn að staðreynd. Leikurinn á Nou Camp í gær var bráðfjörugur frá fyrstu mín- útu og lögðu bæði lið áherslu á sóknarleikinn. AC Milan varð að skora mark til að eiga möguleika á að komast áfram og fyrir vikið var leikurinn mjög opinn. Bæði lið gáfu tóninn strax á 2. mínútu leiks- ins en þá fengu Kaka hjá Milan og Samuel Eto´o hjá Barca mjög góð færi. Liðin sóttu á víxl í fyrri hálfleik og hefði Milan vel getað skorað með smá heppni. Barcelona fékk þó hættulegri færi og oftast var það áðurnefndur Eto´o sem komst næst því að brjóta ísinn. Dido átti hins vegar mjög góðan dag í marki Milan og varði oft á tíðum frábær- lega í leiknum. Eftir því sem leið á síðari hálf- leik tóku leikmenn Barcelona að færa sig aftar á völlinn og í kjöl- farið fór Milan að stjórna spilinu. Um miðbik síðari hálfleiks skor- aði Andrei Shevchenko að því er virtist fullkomnlega löglegt mark fyir Milan en dómarinn mat það svo að Úkraínumaðurinn hefði brotið af sér þegar hann náði sér stöðu. Í endursýningu sást að um kolrangan dóm var að ræða og er nokkuð ljóst að mikið mun vera rætt og skrifað um þetta atvik á næstunni. En vörn Barcelona, með Carlos Puyol í fararbroddi, var mjög sannfærandi og þrátt fyrir að hafa pressað nokkuð stíft undir það síðasta náðu leikmenn Milan aldrei að koma sér í afgerandi færi. Það má í raun heita með ólík- indum að ekkert mark skuli hafa litið dagsins ljós í gærkvöldi en í heildina var sigur Barcelona sann- gjarn því liðið var ávallt með leik- inn í hendi sér og hleyptu gestun- um aldrei of nálægt sér. - vig Barcelona kláraði dæmið Barcelona tryggði sér í gær sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með því að gera jafntefli við AC Milan á heimavelli í gær. Liðið mætir Arsenal í úrslitunum. PARÍS, VIÐ ERUM Á LEIÐINNI Leikmenn Barcelona stigu trylltan stríðsdans eftir að flautað hafði verið til leiksloka í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.