Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 91
Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu
fengið Fréttablaðið. En til vonar
og vara skaltu klippa þetta símanúmer
út og hringja í það ef Fréttablaðið
kemur einhverntímann ekki.
550 5000
Ekkert blað?
- mest lesið
FORMÚLA-1 Þýska blaðið Bild segist
hafa heimildir fyrir því að Ferrari
sé búið að bjóða fyrrum heims-
meistaranum Michael Schumacher
tæpa 6,6 milljarða íslenskra króna
fyrir að framlengja samning sinn
um tvö ár. Í samningi þessum á að
vera klásúla sem heimilar honum
að leggja stýrið á hilluna ef hann
yrði meistari á samningstímanum,
jafnvel þó það yrði strax á þessu
tímabili.
Framtíð Schumacher er heit-
asta umræðuefnið í Þýskalandi í
dag, fyrir utan HM í sumar en
talið er að hann muni tilkynna um
framtíðaráætlanir sínar fljótlega.
Schumacher á næga kosti í stöð-
unni en mörg lið vilja ólm fá hann
í sínar raðir. Hann hefur þó sjálfur
sagt að ef hann haldi áfram að aka
í Formúlunni, yrði hann hjá
Ferrari.
Renault hefur verið hvað sterk-
legast orðað við Schumacher, að
því gefnu að hann fari frá Ferrari
og hætti ekki akstrinum. - hþh
Michael Schumacher hjá Ferrari:
Boðnir 6,6 milljarðar
MAGNAÐUR Það getur enginn efast um
hæfileika Schumacher þrátt fyrir þær fárán-
legu upphæðir sem honum eru boðnar.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Lothar Matthaus, sem var
fyrirliði Þjóðverja þegar liðið varð
heimsmeistari árið 1990, spáir því
að vörn heimsmeistara Brasilíu
verði til vandræða á HM í sumar.
„Varnarleikur Brasilíumanna er
alls ekki nógu góður og ég held að
það verði liðinu að falli í sumar. Þeir
eru ekki með nógu góða vörn til að
verja titil sinn og ég held meira að
segja að þeir gætu lent í miklum
vandræðum að komast upp úr riðl-
inum sínum,“ sagði kokhraustur
Matthaus.
„Ég held að Þjóðverjar komist
örugglega upp úr sínum riðli á mót-
inu en eftir það mæta þeir líklega
Englendingum eða Svíum og þá fer
nú róðurinn að þyngjast hjá þeim.
Þýskaland hefur ekki yfir jafn
mörgum góðum leikmönnum að
ráða eins og þjóðir á borð við Eng-
lendinga, Argentínumenn og Ítali,“
sagði Matthaus, sem telur að mark-
vörðurinn Paul Robinson hjá Tot-
tenham gæti gert gæfumuninn í
enska liðinu á mótinu.
„Enska liðið er sterkara nú en á
síðustu tveimur stórmótum, ekki
síst út af Paul Robinson í markinu,
því það er ekki nóg að vera með gott
lið í svona keppni ef þú ert ekki með
góðan markvörð. Ég tel enska liðið
eiga góða möguleika á að gera vel í
sumar, enda hefur það innan sinna
raða sterka leikmenn eins og Roon-
ey, Lampard, Gerrard og Beck-
ham,“ sagði Matthaus. - hþh
Þýska knattspyrnugoðsögnin Lothar Matthaus:
Vörnin gæti orðið
Brasilíu að falli
SÁLFRÆÐISTRÍÐIÐ BYRJAÐ Það þarf ekki að koma á óvart að Þjóðverjinn spái sínum
mönnum velgengni á Heimsmeistaramótinu í sumar. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI „Frekar sit ég áfram í
annað kjörtímabil en að láta ein-
hvern óhæfan eyðileggja starfið
mitt,“ sagði hinn geðþekki Lennart
Johansson, forseti UEFA við
sænska fjölmiðla í gær.
Þrátt fyrir að vera orðinn 76
ára gamall kemur til greina að
Johannsson verði áfram forseti
sambandsins en hann hefur áður
sagt að hann hyggðist ekki sækjast
eftir endurkjöri þegar kjörið fer
fram í byrjun ársins 2007. Johanns-
son hefur gegnt starfinu í sextán
ár, eða allt frá árinu 1990 og hefur
verið endurkjörinn þrisvar en
hann hefur áður sagt að hann von-
aðist til þess að Þjóðverjinn Franz
Beckenbauer yrði arftaki sinn.
- hþh
Lennart Johannsson:
Vill ekki óhæf-
an eftirmann
SPAKUR Johannsson kann svo sannarlega
að orða hlutina. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES