Fréttablaðið - 27.04.2006, Page 94
27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR58
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �
Tónleikahaldarar eru einir af mörg-
um Íslendingum sem stunda við-
skipti við erlenda aðila þessa dag-
ana og kvarta sáran undan veikri
stöðu krónunnar gagnvart banda-
rískum dollara.
Tónleikahald á Íslandi er áhættu-
söm starfsgrein. Þegar vel tekst til
er hægt að græða milljónir á einum
tónleikum en aftur á móti geta
menn tapað stórum fúlgum ef
áhorfendur láta ekki sjá sig. Einnig
getur staða krónunnar haft sín
áhrif á útkomuna.
Oft er það þannig að listamenn-
irnir fá borgaðan hluta fyrirfram
hjá tónleikahöldurum og hinn hlut-
ann eftir að miðasalan er hafin.
Þannig getur staða gjaldmiðlanna
haft áhrif á hversu mikið þarf að
reiða fram og auðvitað er það þeim
mun meira eftir því sem krónan
veikist og dollarinn hækkar.
„Þetta hefur aðallega haft áhrif
á hvað það er hægt að halda mikið
af tónleikum og það er engin
gósentíð í gangi í augnablikinu,“
segir Þorsteinn Stephenson hjá Hr.
Örlygi sem stendur á bak við
heimstónlistarhátíðina Vorblót sem
hefst í kvöld og Iceland Airwaves
sem verður í haust.
„Það er miklu erfiðara að ná ein-
hverjum stórum nöfnum til lands-
ins, að minnsta kosti á meðan stað-
an er svona. Ef það stefnir í að
krónan haldi áfram að veikjast þá
munu menn halda að sér höndum,“
segir Þorsteinn.
Guðbjartur Finnbjörnsson flyt-
ur Roger Waters, fyrrverandi for-
sprakka Pink Floyd, til landsins
þann 12. júní. Verða tónleikarnir
haldnir í Egilshöll. „Ég hef oft sagt
að þessi tónleikabransi er ekkert
gull og grænir skógar. Þetta er
gríðarlega áhættusamt og það þarf
ekki mikið til að þú lendir í ein-
hverju bölvuðu veseni. Krónan
hefur verið sterk undanfarin ár og
það er ein af ástæðunum fyrir því
að það hefur verið svona mikið af
tónleikum, því það er ódýrara að fá
menn að utan,“ segir Guðbjartur.
„Það er samt engin spurning að ef
krónan veikist mikið í viðbót þá
hefur það örugglega áhrif á þennan
bransa. Maður gæti vel hugsað sér
að það yrðu einir til tvennir tón-
leikar á ári í mesta lagi í framtíð-
inni. Það gæti alveg eins farið svo
ef krónan heldur áfram að veikjast
að menn fari aftur í gamla farið og
gefist upp á þessu,“ segir hann.
„Síðan getur það líka spilað inn í
ef nýjabrumið er farið af tónleik-
um því þeir hafa verið svo margir.
Hér einu sinni þegar íslensk bíó-
mynd var frumsýnd fóru allir á
hana en núna eru þær orðnar svo
margar að menn kippa sér ekki
eins mikið upp við það.“
Guðbjartur segir að slæm staða
krónunnar hafi þegar haft áhrif á
tónleika Roger Waters. „Það eru
engir smápeningar sem ég er að
borga út. Krónan hefði alveg mátt
byrja að lækka tveimur mánuðum
seinna.“ freyr@frettabladid.is
ÍSLENSKIR TÓNLEIKAHALDARAR: KVARTA UNDAN KRÓNUNNI
Erfiðara að fá stór nöfn
ROGER WATERS Fyrrverandi forsprakki Pink Floyd spilar í Egilshöll þann 12. júní.
MORGUNMATUR: Amer-
ískar pönnukökur með öllu
tilheyrandi á Gráa kettin-
um. Taktu þér ljóðabók í
hönd og þá smellpassarðu
inn í stemninguna á þessu
listræna kaffihúsi.
DANSINN: Síðasti dansinn verður dansaður
í Glæsibæ á föstudagskvöld. Eins gott að
missa ekki af gömlu stemningunni fyrir fullt
og allt.
HÁDEGISVERÐUR: Grænmetissúpurnar á
Á næstu grösum klikka aldrei. Fáðu þér
eina sterka og dreptu allar ljótu kvefbakt-
eríurnar í leiðinni.
SÝNINGIN: Kíktu við í Gel galleríi og skoð-
aðu það sem er að gerast í grasrótinni.
KVÖLDVERÐUR: Það er löng helgi og sennilega
margir á leið upp í sumó. Skelltu þér í sjúskaða
gírinn, komdu við á bensínstöð og skelltu í þig einni
með öllu plús kartöflusalati. Kók í gleri er ekki vont
með.
LÍKAMSRÆKTIN: Farðu í jóga og hreinsaðu út allt
stressið, pirringinn og streituna sem safnast
hefur upp. Það er ekkert betra.
SPÓLAN: Taktu einhverja góða með Monty
Python-genginu og hlæðu allar áhyggj-
urnar í burtu.
TÓNLEIKARN-
IR: Sprengjuhöll-
in og Hjaltalín
spila skemmti-
legt popp á
Grand Rokki á
föstudagskvöldið. Hressandi nýjar
hljómsveitir sem fáir þekkja í dag
en allir munu þekkja á morgun.
DJAMMIÐ: KAL og Stórsveit
Nix Noltes halda heljarinn-
ar tónleika á Nasa í kvöld
en báðar sveitir spila
fjári skemmtilega tón-
list sem á rætur sínar
að rekja til Balkans-
kagans. Betra gerist
dansiballið varla.
GEISLADISKURINN: Gríptu
nokkra diska með Iggy Pop
og The Stooges og hitaðu
ærlega upp fyrir tónleikana
sem eru á miðvikudaginn.
Það verður sveitt gaman!
Helgin okkar...
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tveir franskir blaða-menn eru staddir á
landinu til að fjalla um
hljómsveitina Ampop,
sem gefur út plötuna My
Delusions í Frakklandi í
júní. Annar blaða-
maðurinn er Jean
Daniel Beauvallet,
ritstjóri eins
virtasta tímarits í
Frakklandi, „Les
Inrockuptibles“.
Hinn er frá stúd-
entatímaritinu „Tapage“ sem er dreift
mánaðarlega í rúmlega 100.000 eintök-
um. Hljómsveitin Ampop er nú stödd í
Skálholti þar sem hún er að semja efni
á nýja plötu og munu frönsku blaða-
mennirnir heimsækja hljómsveitina
þangað.
Einhverjar líkur eru á því að
töffarinn Gaz
Coombes muni
spóka sig um á
háskólasvæðinu
í byrjun júní en
samningaviðræður við
hljómsveit hans, Supergrass, standa nú
yfir. Það eru skipuleggjendur tónleika-
festivalsins Reykjavík Tropic sem hafa
boðið hljómsveitinni hingað til lands og
að sögn tónleikahaldara standa einnig
yfir viðræður við aðra breska hljómsveit.
Ekki er þó víst að Supergrass geti komið
hingað þar sem liðsmenn sveitarinnar
eru þessa dagana að taka upp nýja
plötu og því nokkuð uppteknir. í
LÁRÉTT
2 plat 6 þys 8 spíra 9 stykki 11 hröð
12 dá 14 svipað 16 2 eins 17 dýra-
hljóð 18 for 20 frá 21 íþróttafélag.
LÓÐRÉTT
1 löngun 3 skyldir 4 ofbjóða 5 loft-
þrýstieining 7 piltur 10 frostskemmd
13 spil 15 illgresi 16 kóf 19 guð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 gabb, 6 ys, 8 ála, 9 stk, 11
ör, 12 trans, 14 álíka, 16 kk, 17 urr, 18
aur, 20 af, 21 fram.
LÓÐRÉTT: 1 lyst, 3 aá, 4 blöskra, 5 bar,
7 strákur, 10 kal, 13 níu, 15 arfi, 16 kaf,
19 ra.
Þær Ragnheiður Gröndal og Eivör
Pálsdóttir syngja á tvennum tón-
leikum með Sinfóníuhljómsveit
Íslands í kvöld og á morgun sem
bera yfirskriftina Manstu gamla
daga. Á efnisskránni eru, líkt og
nafnið gefur til kynna gamlar
íslenskar dægurperlur eftir þjóð-
þekkta höfunda svo sem Jón Múla
Árnason, Alfreð Clausen, Freymóð
Jóhannsson, Sigfús Halldórsson og
fleiri.
„Það er sérstakt tilhlökkunar-
efni að heyra þessa ungu fjölhæfu
listamenn takast á við dægurmúsik
sem fylgt hefur þjóðinni í áratugi,“
segir Hrafnkell Orri Egilsson, sem
sér um útsetningar Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar. Hér feta þær í fótspor
ekki ómerkari söngkvenna en Ingi-
bjargar Smith, Erlu Þorsteinsdótt-
ur og Ellýjar Vilhjálms.“ Útsetning
Hrafnkels er frumleg enda hafa
dægurlög aldrei verið matreidd
ofan í Sínfóníuna áður. „Ég mun
blanda hinu gamla saman við hið
nýja og finna hverju lagi sinn bún-
ing. Eins gæti ég þess að útsetning
dægurlaganna sé löguð að karakter
Ragnheiðar og Eivarar.“
Söngkonurnar munu syngja
lagið Frostrósir eftir Freymóð
Jóhannsson saman, en hin þrettán
lögin sem flutt verða syngja þær
einar. Meðal annarra dægurlaga
sem flutt verða eru Hvers vegna?
eftir Sigfús Halldórsson og Stefán
Jónsson, Múlasyrpa (Augun þín
blá/Það sem ekki má) eftir Jón Múla
Árnason, Sveitin milli sanda eftir
Magnús Blöndal Jóhannsson, Kata
rokkar eftir Theódór Einarsson og
Gling gló eftir Alfreð Clausen og
Kristínu Engilbertsdóttir.
Tónleikarnir verða haldnir í
Háskólabíói í kvöld og annað kvöld.
Uppselt er á fyrri tónleikana en
örfá sæti eru laus á þá seinni. -bb
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL OG EIVÖR PÁLSDÓTTIR Flytja nokkrar af helstu perlum íslenskrar
dægurtónlistar á tónleikunum í kvöld og á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ HEIÐA
Manstu gamla daga
HRÓSIÐ
...fær Ásta Heiðrún Elísabet
Pétursdóttir, sigurskáld í ljóða-
keppni Eddu og Fréttablaðsins.
Aðalfundur Rithöfundasambands Íslands verður haldinn í kvöld. Þar
verður ný stjórn kosinn en Pétur Gunn-
arsson er einn framboði til formanns og
Rúnar Helgi Vignisson gefur einn kost á
sér í embætti varaformanns. Það verður
hins vegar kosið um meðstjórnanda þar
sem tveir eru í framboði, Bragi Ólafsson
og ljóðskáldið Kristian Guttesen. Davíð
A. Stefánsson býður sig svo einn fram
sem varamaður. Athygli
vekur að engin kona
gefur kost á sér til
stjórnarstarfa innan
sambandsins en það
er vitaskuld enginn
skortur á fram-
bærilegum
konum innan
vébanda
þess.
-fb/bg/þþ
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á síðu 8
1 Keflavík.
2 Ingimundur Sigurpálsson
3 23 milljónir evra eða 2,1 millj-
arð króna.
�������������������������������
�����������������
���������������