Fréttablaðið - 10.05.2006, Page 8

Fréttablaðið - 10.05.2006, Page 8
8 10. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR KOSNINGAR Meirihluti íbúa Fjarða- byggðar, Austurbyggðar, Fáskrúðs- fjarðarhrepps og Mjóafjarðar- hrepps samþykkti sameiningu síðastliðinn vetur. Íbúarnir ganga því að sameiginlegu kjörborði í komandi sveitarstjórnarkosning- um en sameinað sveitarfélag verð- ur það fjölmennasta á Austurlandi með um 5.000 íbúa. Fjórir framboðslistar komu fram: Á-listinn (Biðlistinn), B-list- inn (listi framsóknarfélaganna í bænum), D-listinn (Sjálfstæðis- flokkur) og L-listinn (Fjarðalist- inn). Allir listarnir buðu fram í Fjarðabyggð fyrir fjórum árum. Mikil endurnýjun hefur orðið á listunum síðan þá en margir reynd- ir sveitarstjórnarmenn gáfu ekki kost á sér að þessu sinni. Ekkert íslenskt sveitarfélag hefur gengið í gegnum jafn miklar breytingar á jafn stuttum tíma og Fjarðabyggð nú um stundir vegna byggingar álvers í Reyðarfirði. Álagið á stjórnsýsluna er við þol- mörk en íbúarnir fullir bjartsýni á eigin hag og sveitarfélagsins. Stórframkvæmdirnar hafa leitt til mikillar skuldsetningar sveitar- félagsins en tekjurnar af álverinu, og auknar tekjur í kjölfar íbúa- fjölgunar, munu leiða til þess að Fjarðabyggð verður eitt stöndug- asta sveitarfélag landsins í fram- tíðinni. Bættar samgöngur brenna mjög á íbúunum. Fáskrúðsfjarðargöng voru ein helsta forsenda samein- ingar en nú segja fulltrúar allra framboða tíma kominn á ný jarð- göng á milli Eskifjarðar og Reyð- arfjarðar. - kkNISSAN PATHFINDER Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16 PATHFINDER HEFUR VINNINGINN! Verðið á Nissan Pathfinder er frá 4.290.000 kr. Það hefur líklega aldrei verið hagstæðara að kaupa sér alvöru jeppa. Nissan Pathfinder blandar skemmtilega saman krafti fjallajeppa eins og þeir gerast bestir og lipurð flottustu götubíla. Útkoman hefur slegið eftirminnilega í gegn enda er sama hvaða samanburð þú gerir, Pathfinder hefur vinninginn! Líttu inn og reynsluaktu. E N N E M M / S ÍA / N M 2 16 3 7 Öllum Pathfinder sem keyptir eru fylgja auka 32" dekk, húddhlíf dráttarbeisli og olíukort frá EGO með 50.000 kr. inneign! 230.000 FRÁ REYÐARFIRÐI Miklar framkvæmdir hafa einkennt síðustu ár í Fjarðabyggð. Kosið í fyrsta sinn í nýju sveitarfélagi á Austfjörðum: Allir vilja fá ný jarðgöng Valdimar O. Hermannss. D-lista: Bættar samgöngur í bæjarfélaginu Valdimar O. Hermannsson, rekstrarstjóri Fjórð- ungssjúkrahússins í Neskaupstað, leiðir lista sjálfstæð- ismanna. Hann segir D-lista leggja áherslu á bættar samgöngur í bæjarfélagsinu. „Við viljum ný jarðgöng milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar og koma á almennings- samgöngum í sveitarfélaginu. Jafnframt viljum við gera stjórnsýsluna skilvirkari og aðgengilegri og til lengri tíma viljum við lækka fasteigna- og leikskólagjöld.” D-listi leggur líka áherslu á mark- aðs- og kynningarmál bæjarins og að skipulagsmálum verði komið í betra horf. „Vegna mikilla framkvæmda er búið að opna mörg sár. Ganga þarf vel frá þeim og bæta aðkomuna að bænum og umhverfið,” segir Valdimar. Guðmundur R. Gíslason L-lista: Uppbygging og ódýr þjónusta Norðfirðingurinn Guð- mundur R. Gíslason, starfsmannastjóri á Reyðarfirði, er efsti maður Fjarðalistans. Listinn leggur meginá- herslu á uppbyggingu bæjarfélagsins og að sameiningin gangi sem best. „Við höfum haft forystu um öll framfaramál. Kosningarnar snúast að hluta til um ánægju með störf okkar en reyndin er sú að einhugur hefur ríkt í bæjarstjórn um öll stærstu mál.” Guðmundur segir L-listann hafa staðið myndarlega að uppbyggingu svo sem skóla- og íþróttamannvirkja. „Fjarðabyggð er eitt sterkasta sveitar- félag landsins og býður upp á góða og ódýra þjónustu. Ný göng á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar eru ofarlega á blaði og bjartsýni og jákvæðni verður áfram okkar leiðarljós,” segir hann. Ásmundur Páll Hjalta- son, verkamaður í Neskaupstað, er efsti maður Biðlistans. Hann segir listann skipaðan almennum borgurum og beri því hag hins venjulega manns fyrir brjósti. „Fólk þarf ekki að eiga 15 pör af jakka- fötum eða hafa háskólagráðu til að komast að hjá okkur. Sveitarstjórnar- mál snúast ekki um rekstur heldur um fólk,” segir Ásmundur. Biðlistinn leggur áherslu á að þjónusta við bæjarbúa skerðist ekki við sameininguna og vill taka til hendinni í umhverfis- og skipulagsmálum, og málum eldri borgara. „Sérstaklega á Eskifirði en þrýsta þarf á ríkið um byggingu hjúkrunar- og dvalarheimilis þar. Við viljum ný Oddsskarðsgöng og teljum að öll nærþjónusta sé betur komin hjá sveitarfélögunum en ríkinu.” Ásmundur P. Hjaltason Á-lista: Sveitarstjórnarmál snúast um fólk Guðmundur Þorgrímss. B-lista: Jarðgöng sett í einkaframkvæmd Fáskrúðsfirðingur- inn Guðmundur Þorgrímsson er efstur á lista Framsókn- ar. Hann segir ný jarðgöng á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar efst á forgangslistanum. „Ef ríkið er ekki tilbúið að ráðast í fram- kvæmdina, viljum við að bærinn hafi forgöngu um stofnun félags um gerð og rekstur ganganna. Jafnframt viljum við koma á almenningssamgöngum og gera stjórnsýsluna skilvirkari.“ B-listinn leggur einnig áherslu á fjölskylduvænt samfélag; góða þjón- ustu og hóflega gjaldtöku. „Við viljum að sameiningin takist vel og koma upp umhverfisvakt með það að markmiði að gengið verði snyrtilega um öll framkvæmdasvæði í bæjarfélaginu og vel frá þeim gengið að framkvæmdum loknum,“ segir Guðmundur. Nýtt sveitarfélag verður til í sumar með sameiningu Fjarðabyggðar, Austurbyggðar, Fáskrúðsfjarðarhrepps og Mjóafjarðarhrepps. Nafn sveitarfélagsins verður Fjarðabyggð en samanlagður íbúafjöldi sveitarfélaganna þann 1. desember síðastliðinn var 4.844. KOSNINGAR 2006 Bæjarstjórn Fjarðabyggðar er nú skipuð níu bæjarfulltrúum og sami fjöldi verður í sam- einuðu sveitarfélagi. Fjarðalistinn, óháð framboð félagshyggju- fólks, og Framsóknarflokkur mynda núverandi meirihluta í Fjarðabyggð. Efstu menn Á-listans, Biðlistans: 1. Ásmundur P.Hjaltason, verkam. Neskaupst. 2. Kristinn Þór Jónasson, bílstjóri Eskifirði. 3. Magni Þór Harðarson , skrifstofumaður Fáskrúðsfirði. 4. Brynhildur Einarsd., ræstit. Fáskrúðsfirði. 5. Björgvin Valur Guðmundsson, leiðbeinandi Stöðvarfirði. Efstu menn B-lista, Framsóknarflokks: 1. Guðmundur Þorgrímsson, bílstjóri Fáskrúðsfirði. 2. Þorbergur N. Hauksson, slökkiliðsstjóri Eskifirði. 3. Líneik Anna Sævarsdóttir, kennari Fáskrúðsfirði. 4. Eiður Ragnarsson, sölufulltrúi Reyðarfirði 5. Jón Björn Hákonarson, sölustjóri Neskaupstað. Efstu menn D-lista, Sjálfstæðisflokks: 1. Valdimar Oddgeir Hermannsson, rekstrarstjóri Neskaupstað. 2. Jóhanna Hallgrímsdóttir, æskulýðs- og íþróttafulltrúi Reyðarfirði. 3. Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Eskifirði. 4. Pétur Gauti Hreinsson, pípulagningamaður Fáskrúðsfirði. 5. Kristín Ágústsdóttir, landfræðingur Neskaupstað. Efstu menn L-lista, Fjarðalista – Óháðs framboðs félagshyggjufólks: 1. Guðmundur R. Gíslason, starfsmannastjóri Neskaupstað. 2. Sigrún Birna Björnsdóttir, kennari Reyðarfirði. 3. Díana Mjöll Sveinsdóttir, ferðaþjónusturáðgjafi Eskifirði. 4. Smári Geirsson, kennari Neskaupstað. 5. Íris Valsdóttir, kennari Fáskrúðsfirði. FJARÐABYGGÐ Fjarðabyggð SVEITARSTJÓRNAR- KOSNINGAR 2006 VEISTU SVARIÐ 1 Hvaða þjóðarleiðtoga sendi Írans-forseti nýlega bréf? 2 Hver hefur verið ráðinn yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, CIA? 3 Konur frá hvaða Evrópulandi drekka mest áfengi á meðgöngutím- anum? SVÖRIN ERU Á BLS.38 VARNARLIÐIÐ, AP Vitnaleiðslur hóf- ust í gær á ný í herstöðinni á Keflavíkurflugvelli í máli her- manns sem á yfir höfði sér að vera stefnt fyrir herdómstól, ákærður fyrir morð, að hindra framgang réttvísinnar og fleiri sakargiftir. Sakborningurinn, Calvin Eug- ene Hill úr flughernum, er sakað- ur um að hafa ráðið hinni tvítugu Ashley Turner, sem einnig þjón- aði í varnarliðinu, bana í ágúst í fyrra, skömmu áður en hún átti að bera vitni vegna ofbeldisá- kæru sem Hill sætti þá. Hún fannst meðvitundarlaus, illa lemstruð, frammi á gangi í svefn- skálanum þar sem bæði hún og Hill bjuggu. Turner andaðist á sjúkrahúsi herstöðvarinnar. Hill hefur verið í varðhaldi í herstöð Bandaríkjahers í Mann- heim í Þýskalandi síðan síðasta haust. Mark Allred ofursti, sem stýrir vitnaleiðslunum sem nú fara fram í Keflavíkurstöðinni, mun þegar þeim lýkur síðar í vik- unni taka ákvörðun um það hvort Hill verði látinn svara til saka fyrir herrétti. Fari svo að herrétt- ur finni Hill sekan um morð á hann lífstíðarfangelsi eða dauða- dóm yfir höfði sér. - aa Vitnaleiðslur hafnar á ný í herstöðinni í Keflavík: Hermaður sætir morðákæru HARMLEIKUR Í HERSTÖÐ Ung kona úr flughernum dó eftir misþyrmingar í Keflavíkurstöð- inni í ágúst í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.