Fréttablaðið - 10.05.2006, Síða 10
10 10. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR
FASTEIGNAMARKAÐURINN Viðskipta-
bankarnir gefa lítið út á að það
geti reynt á félagslega ábyrgð
bankanna ef viðskiptavinir, sem
hafa tekið há íbúðalán, lenda í
greiðsluvandræðum með aukinni
verðbólgu og verra efnahags-
ástandi. Þeir hafa litlar áhyggjur
af því að til þessa geti komið og
hyggjast ekki bregðast við með
neinum sérstökum hætti.
Viðskiptabankarnir hafa mis-
munandi mat á því hverjar horf-
urnar eru á fasteignamarkaði.
Glitnir telur að fasteignaverð fari
heldur lækkandi og samdráttur í
einkaneyslu sé óhjákvæmilegur
meðan greiningardeild Kaupþings
gerir ráð fyrir að fasteignaverð
hækki enn frekar á þessu ári, að
sögn Jónasar Sigurgeirssonar,
framkvæmdastjóra hjá Kaup-
þingi.
Bankarnir ráðleggja viðskipta-
vinum sínum að fara varlega og
ætla sér ekki um of en þessar ráð-
leggingar eru ekkert meiri en í
venjulegu ári. Sigurjón Þ. Árna-
son, bankastjóri Landsbankans,
segir þó að bankinn hafi tekið þá
stefnu að ráðleggja lántakendum,
sem sækja um 80 prósenta lán, að
taka aðeins 70 prósent þar sem
verðbólga geti sett strik í reikn-
inginn.
„Við höfum lagt áherslu á að
fólk gæti að hagsmunum sínum og
fari varlega nú sem endranær en
það verður hver og einn að taka
sína ákvörðun með sínum ráðgjöf-
um eða einn og sér. Við höfum allt-
af reynt að ráðleggja okkar við-
skiptavinum á ábyrgan hátt, í
veðhlutföllum sem öðru,“ segir
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Glitnis.
Jónas Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Kaupþingi,
bendir á að bankinn hafi gefið út
10 þúsund íbúðalán og einungis tíu
þeirra séu í 90 daga vanskilum.
Greiningardeild bankans geri ráð
fyrir hækkandi íbúðaverði um allt
að 20 prósent á þessu ári.
„Hvað sem kann að gerast í
framtíðinni er allt önnur Ella. Ef
annað verður þá kemur í ljós hvað
verður gert,“ segir hann.
Umræða hefur verið um að
fasteignamarkaðurinn sé að breyt-
ast og íbúðir séu hættar að seljast.
Jónas telur að fjöldi kaupsamn-
inga í apríl í ár miðað við apríl í
fyrra sé ekki sambærilegur þar
sem páskarnir hafi verið í mars í
fyrra en í apríl í ár. Páskarnir
hægi á fasteignaviðskiptunum og
því sé ekki um raunverulega mæl-
ingu að ræða. „Þetta ruglar mynd-
ina,“ segir hann. ghs@frettabladid.is
Lítill hluti er
í vanskilum
Viðskiptabankarnir hafa litla trú á að viðskiptavinir
lendi í greiðsluerfiðleikum og að það geti reynt á
félagslega ábyrgð þeirra. Hjá Kaupþingi eru aðeins
tíu af 10 þúsund íbúðalánum í vanskilum.
FASTEIGNAMARKAÐURINN Talið er að teikn séu á lofti um að fasteignamarkaðurinn sé að
breytast. Bankarnir ráðleggja viðskiptavinum að fara varlega í fasteignaviðskiptum. Þessi
mynd tengist fréttinni ekki beint.
STAÐIÐ GEGN STRÍÐI Brian Haw, breskur
friðarsinni sem hefur í fimm ár mótmælt
stefnu ríkisstjórnarinnar við þinghúsið í
Lundúnum, talar við blaðamenn í rigning-
unni á mánudag í tilefni af því að áfrýjun-
ardómstóll dæmdi ríkisstjórninni í vil um
gildi laga sem gera eiga henni auðveldara
um vik að binda enda á mótmælastöðu
hans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Konu voru í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær dæmdar
25 milljónir króna vegna mistaka
sem gerð voru á lýtalækninga-
deild Landspítalans árið 1993.
Áður en konan fór í aðgerð,
árið 1993, hafði hún verið í tann-
réttingum og þar sem færsla á
neðri kjálka um einn sentímetra
fram á við, var undirbúin. Eftir
aðgerðina fann konan fyrir vax-
andi verkjum í hægri hluta and-
litsins og ákváðu læknar á lýta-
lækningadeild að framkvæma
aðra aðgerð átta dögum eftir fyrri
aðgerðina.
Kom þá í ljós mar á andlits-
taug sem olli lömun í hægri helm-
ingi andlitsins. Í fyrstu var talið
að andlitslömunin myndi ganga
til baka á nokkrum vikum en svo
reyndist ekki vera og hrjáir löm-
unin konuna enn í dag.
Í dómi héraðsdóms segir að
starfsfólk Landsspítala hefði ekki
fylgst nægilega vel með sjúkl-
ingnum eftir aðgerðina og ekki
sinnt kvörtunum hans. Konan
kvartaði undan miklum verkjum
eftir aðgerðina en aðgerðir lækna
dugðu til þess að vinna bug á
meini konunnar.
Héraðsdómur lítur svo á að
mistök læknanna hafi verið bóta-
skyld og þóttu 25 milljónir króna
eðlilegar í samhengi við þanna
skaða sem konan varð fyrir við
aðgerðina og eftirmeðferð henn-
ar. - mh
Landspítalinn dæmdur til þess að greiða konu bætur vegna læknamistaka:
Dæmdar 40 milljónir króna
DÓMSMÁL Karlmaður var dæmd-
ur til fjögurra mánaða fangels-
isvistar, þar af tvo mánuði skil-
orðsbundna, vegna líkamsárásar
á Ráðhústorginu á Akureyri síð-
astliðið sumar.
Með broti sínu rauf maðurinn
skilorð vegna fyrri dóma og er
dómur Héraðsdóms Norðurlands
eystra því harðari en gengur og
gerist. Var ákærði einnig sakað-
ur um aðra líkamsárás en þar
sem aðeins eitt vitni var til frá-
sagnar um þá árás stóð aðeins
orð gegn orði og var hann sýkn-
aður. Hefur maðurinn áður hlotið
dóma vegna þjófnaðar og umferð-
arlagabrota. - aöe
Dæmdur fyrir líkamsárás:
Fjögurra mán-
aða fangelsi
LANDSPÍTALI-HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
Mistök sem gerð voru á lýtalækningadeild
spítalans árið 1993 kostuðu spítalann 25
milljónir króna. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Félag járniðnaðarmanna og Vélstjórafélag Íslands hafa tekið ákvörðun um að
sameinast í eitt félag. Ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um nafn á nýja
félagið og er öllum heimil þátttaka. Félagsmenn eru sérstaklega hvattir til að taka
þátt. Nýtt félag verður lands- félag og verða félagsmenn þeir sem lokið hafa
vélstjórnarnámi, iðnnámi í málm - og véltæknigreinum og veiðarfæragerð, einnig
iðnnemar í greinunum og fleiri sem starfa í þessum eða skyldum greinum.
Vegleg verðlaun eru í boði og er skilafrestur til 1. júní 2006.
Allar nánari upplýsingar fást á heimasíðum félaganna velstjori.is og metalnet.is eða
í síma 562 9062 og 533 3044.
Félag járniðnaðarmanna / Vélstjórafélag Íslands
SAMKEPPNI UM NAFN