Fréttablaðið - 10.05.2006, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 10.05.2006, Qupperneq 22
[ ] Mikilvægt er að skipta um tímareim þegar bílar hafa náð vissum aldri en hvert er hlut- verk hennar? Auðunn Gunn- arsson á Bifreiðaverkstæði Kópavogs svarar því. „Tímareimin myndar samband á milli knastáss og sveifaráss vélar- innar og stundum knýr hún líka vatnsdælu bílsins. Það er þó mis- munandi eftir tegundum. Tíma- reimin sér um það að ventlarnir opnist á réttum tíma á móti stimpl- unum þannig að vélin gangi eðli- lega. Í sumum bílum eru tvær reimar og þá er önnur þeirra jafn- vægisreim sem vinnur móti titr- ingi í vélinni. Í flestum fólksbílum er miðað við að skipta eftir 90.000 kílómetra akstur, eða á 4-5 ára fresti en í sumum tegundum er markið sett við 60 kílómetra akst- ur eða 4 ár. Í jeppum er í flestum tilfellum miðað við 150 þúsund kílómetra. Ef tímareimin slitnar getur farið illa en þó fer það líka eftir tegundum. Í verstu tilfellum bogna ventlar og brotna stimplar, einkum í þeim vélum sem hafa tvo ofanáliggjandi knastása. Ef reimin fer í þeim fer allt í steik. Þá þarf að taka heddið af, skipta um ventla og fleira.“ En hversu mikil aðgerð er það að skipta um tímareim og hver er kostnaðurinn? „Í flestum bílum tekur það þrjá til fjóra tíma. Yfir- leitt er skipt um vatnsdælu um leið og við höfum það að reglu á mínu verkstæði þegar við skipt- um um tímareim að skipta líka um strekkjarahjól og stuðningshjól og í mörgum tilfellum pakkdósir líka á knastás, sveifarás og olíu- dælu. Í leiðinni er oft skipt um rafal- og stýrisreimar. Allar reim- ar eru orðnar sprungnar og slitn- ar eftir 4-5 ár. Kostnaðurinn er mismunandi eftir því hverrar gerðar bíllinn er. Það getur verið frá 40 og upp í 70 þúsund.“ Auðunn sýnir tímareim sem lítur út líkt og viftureim nema heldur breiðari og með tönnum. En hann fræðir okkur líka um að nú séu keðjur að leysa tímareim- arnar af hólmi í mörgum tegund- um bíla. „Keðjur voru algengar fyrir mörgum árum en reimarnar ruddu þeim út í mörgum tilfell- um. Það þótti gott því þá losnuðu menn við glamrið í keðjunum. Nú eru keðjurnar að koma aftur, ýmist úr léttmálmi eða plasti og því nánast hljóðlausar. Það hefur ekki þurft að skipta um þær ennþá enda eru ekki nema tvö til fjögur ár síðan þær fóru að sjást í nýjum bílum.“ gun@frettabladid.is Tifandi tíma- sprengja Svona er reimin í nærmynd. Auðunn bregður tímareim eins og geislabaug um höfuðið! FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sumarveðrið er tilvalið þegar bóna skal bílinn, nýttu veðurblíðuna meðan hún gefst. • SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR • BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA ALLT Á EINUM STAÐ SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066 �������������������������������� ���������������������������������� ������������������ � ������������� ���������������������� ��������������������������� Jeppadekk Vagnhöfða 6 • 110 Reykjavík • Sími 577 3080 Vortilboð! 31" heilsársdekk kr. 11.900 (31x10.50R15) Aðrar stærðir: 27" 215/75R15, kr. 7.900 28" 235/75R15, kr. 8.900 30" 245/75R16, kr. 10.900 32" 265/75R16, kr. 12.900 Sendum frítt um allt land! 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.