Fréttablaðið - 10.05.2006, Síða 29
Nýtt verðmat | Niðurstaða VBS
fjárfestingarbanka er að heildar-
virði Kögunar sé 20.204 milljónir
króna og heildarvirði eiginfjár sé
13.195 milljónir króna, sem gefur
gengið 69,45.
Mikil verðbólga | Tólf mánaða
verðbólga hér er með því mesta
sem gerist meðal ríkja OECD og
er 5,5 prósent samkvæmt síðustu
mælingum.
Nýr forstjóri | Þórólfur Árnason
er nýráðinn forstjóri Skýrr, dóttur-
félags Kögunar, sem er í meiri-
hlutaeigu Dagsbrúnar hf.
Traustur efnahagur | Í skýrslu
bandaríska hagfræðingsins
Frederics Mishkin kom fram að
íslenskt hagkerfi bæri engin ein-
kenni yfirvofandi fjármálakreppu.
Útlán minnkuð | Í tengslum við
nýja skýrslu Seðlabanka Íslands
sagðist Davíð Oddsson seðlabanka-
stjóri vilja sjá frekari merki um að
viðskiptabankarnir dragi úr útlán-
um sínum.
Slakt uppgjör | Hagnaður Marels á
fyrsta ársfjórðungi var 143 milljón-
ir íslenskra króna. Rekstrarhorfur
eru þó góðar fyrir seinni hluta
árs, meðal annars vegna veikingar
krónunnar.
Til Þýskalands | Dótturfélag Avion
Group, Star Europe, hefur hafið
starfsemi í Þýskalandi og verður
með þrjár Airbus 320 flugvélar í
rekstri í sumar.
Auknar tekjur | Tekjur LSR og
LH af fjárfestingum hafa numið 81
milljarði króna á síðustu þremur
árum og eignir sjóðanna hafa tvö-
faldast á undanförnum áratug.
HÍ og HR
Ólíkar áherslur í MBA-námi
22
Lífeyrissjóðirnir
Skiluðu
metávöxtun
10
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 10. maí 2006 – 17. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Fjármálaeftirlitið
Með nútímavæð-
ingu og skilvirkni
að leiðarljósi 12-13
Ávöxtun lífeyrissjóða var sú
besta sem um getur á síðasta
ári en hrein meðalraunávöxtun
er talin hafa verið um 13,5 pró-
sent. Tveir lífeyrissjóðir skáru
sig úr; Gildi og Lífeyrissjóður
Vestfirðinga sem skiluðu tæp-
lega átján prósenta raunávöxtun.
Mikill munur getur verið á líf-
eyrissjóðum þegar fimm ára með-
altal áranna 2001-2005 er skoðað.
Þannig er meðalraunávöxtun
Samvinnulífeyrissjóðsins og
Gildis um 8,6 prósent, sem er 2,8
prósentustigum fyrir ofan áætl-
að fimm ára meðal lífeyrissjóða-
kerfisins.
Lífeyrissjóður verkfræðinga
hefur hins vegar aðeins skilað
1,8 prósenta raunávöxtun á sama
tíma og Sameinaði lífeyrissjóð-
urinn 2,3 prósentum, sem er vel
undir 3,5 prósenta langtímamark-
miði lífeyrissjóðanna.
- eþa / Sjá bls. 10
Misjafn
árangur sjóða
Sigurður Valtýsson, fyrrum
framkvæmdastjóri MP fjárfest-
ingarbanka, hefur verið ráðinn
annar tveggja forstjóra fjár-
festingarfélagsins Exista ehf.
Munu þeir Erlendur Hjaltason,
núverandi forstjóri, framveg-
is deila forstjórastólnum. Exista
ehf. er fjárfestingarfélag í
eigu Bakkabræðra Holding,
Kaupþings banka og sjö spari-
sjóða. Heildareignir félagsins um
síðustu áramót námu rúmlega
160 milljörðum króna og félagið
stærsti hluthafinn í Kaupþingi
banka, Bakkavör Group, Flögu
Group og Símanum.
Í fréttatilkynningu frá Exista
segir að félagið hyggist sækja
fram af miklum krafti á nýja
markaði á næstu misserum.
Stefnt sé að skráningu félags-
ins í Kauphöll Íslands fyrir lok
árs 2006 og skrifstofa félagsins
í London muni stækka á næst-
unni. Erlendur Hjaltason vildi
ekki tjá sig frekar um málið að
svo stöddu að öðru leyti en því
að miklar breytingar væru fram
undan hjá félaginu. Nóg yrði að
starfa fyrir báða forstjórana við
að stýra því í gegnum það ferli.
Við starfi Sigurðar sem
framkvæmdastjóri MP Fjár-
festingarbanka tekur Styrmir
Þór Bragason og hefur hann
þegar hafið störf. Styrmir hefur
víðtæka reynslu af stjórnunar-
störfum. Að undanförnu hefur
hann unnið sem sérfræðingur á
fyrirtækjasviði Landsbankans og
var þar áður framkvæmdastjóri
Atorku Group hf. - hhs
Tveir deila forstjórastólnum
Fjárfestingarfélagið Exista hyggst sækja fram af krafti inn á nýja markaði á
næstu misserum. Sigurður Valtýsson hefur verið ráðinn annar tveggja for-
stjóra Exista og mun framvegis starfa við hlið Erlends Hjaltasonar.
SIGURÐUR
VALTÝSSON Mun
starfa við hlið
Erlends Hjaltasonar
sem annar tveggja
forstjóra fjárfesting-
arfélagsins Exista.
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Tölvuleikjaframleiðandinn CCP, sem rekur tölvu-
leikinn EVE Online, skilaði 110 milljóna króna
hagnaði fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi. Hilmar
V. Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, staðfestir að
afkoma félagsins á fyrsta ársfjórðungi sé sú besta
frá upphafi en rekstarhagnaður fyrir afskriftir
(EBITDA) var um 137 milljónir króna. Þetta er
meiri hagnaður en Kauphallarfélögin Marel (43),
Nýherji (54) og Össur (40) sýndu hvert um sig á
sama tíma.
Velta CCP var rétt tæplega 380 milljónir króna á
fyrsta ársfjórðungi og hefur hún ríflega tvöfaldast
frá sama tímabili í fyrra.
Hilmar segir að áskrifendur að EVE Online séu
nú orðnir 120.000 talsins en fjöldinn fór yfir eitt
hundrað þúsund í febrúar. „Á einu ári hefur áskrif-
endafjöldinn tvöfaldast,“ bendir Hilmar á.
Aukna veltu ber einnig að þakka veikingu krón-
unnar en langstærstur hluti tekna kemur frá útlönd-
um. Á síðasta ári nam velta CCP um 700 milljónum
króna og varð lítils háttar hagnaður af starfseminni.
Mikill skriður hefur verið á CCP að undan-
förnu eftir að samningar náðust við kínverskt
leikjafyrirtæki um að dreifa EVE online í Kína.
Leikurinn er nú í forprófunum og fer að öllum
líkindum í áframhaldandi prófanir (BETA-test) í
lok mánaðarins. Forsvarsmenn CCP eru nú staddir
á E3, stórri vörusýningu í Los Angeles. „Við erum
að kynna það sem fram undan er hjá EVE Online,“
segir Hilmar að lokum.
Stærsti eigandinn í CCP er fjárfestingar-
félagið Novator, sem er í eigu Björgólfs Thors
Björgólfssonar. Félagið fer með 38 prósenta hlut en
starfsmenn eiga um 30 prósent.
CCP með methagnað
á fyrsta ársfjórðungi
Framleiðandi EVE Online hagnaðist um 110 milljónir króna á
fyrsta ársfjórðungi, meira en hjá Marel, Nýherja og Össuri.
ÚR SÝNDARHEIMI EVE ONLINE
Verð á laxi hefur hækkað mikið
vegna aukinnar eftirspurn-
ar og takmarkaðs framboðs á
erlendum mörkuðum og er verð
á ferskum útfluttum laxi frá
Noregi 43 prósentum hærra nú
en um áramótin.
Að sögn greiningardeildar
Glitnis banka var meðalverð á
laxi í síðustu viku í hærri kant-
inum; 36,5 norskar krónur á kíló-
ið, jafnvirði rúmra 420 íslenskra
króna. Það hefur ekki verið jafn
hátt síðan í maí árið 2000.
Verðþróunin er óhagstæð
fyrir fullvinnslufyrirtæki á borð
við Alfesca þar sem dótturfyrir-
tæki þess eru stórir kaupendur
á laxi, meðal annars frá Noregi.
- jab
Hátt verð
á laxi
LAX ÚR BREIÐDALSÁ Verð á laxi hefur
hækkað um 43 prósent í Noregi frá ára-
mótum.
Gott til síðasta dropa