Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 32
MARKAÐURINN 10. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Gríðarlegar hækkanir hafa
orðið á olíu- og laxeldisfélög-
um í Noregi á árinu og fjölgar
mjög í hópi norskra auðmanna.
Fáir utan Noregs þekkja til Idars
Vollvik en nafn hans hefur borið
mikið á góma í norskum fjöl-
miðlum að undanförnu. Er þessi
37 ára gamli Norðmaður jafnan
kallaður ofurfjárfestir sökum
útsjónarsemi og áræðni í við-
skiptum.
Í úttekt norska viðskipta-
blaðsins Kapital á síðasta ári var
Vollvik í 155. sæti yfir ríkustu
menn Noregs og voru eignir hans
metnar á 600 milljónir norskra
króna, um sjö milljarða íslenskra
króna. Hefur hann án vafa hækk-
að um mörg sæti á síðustu mánuð-
um en nokkur fyrirtæki sem eru í
eigu hans hafa tekið gríðarlegum
hækkunum. Öryggisfyrirtækið
DynaPel Systems er hástökkvar-
inn á norska markaðnum í ár en
gengið hefur hækkað um tæp 300
prósent frá áramótum, þar af um
200 prósent í apríl. Þá hækkuðu
olíufyrirtækin DNO og Altinex
um helming í apríl en Vollvik er
meðal stærstu hluthafa í þessum
félögum. Hann hefur grætt um
1,2 milljarða króna á DNO en
félagið fann fyrir stuttu olíulind-
ir í Írak og hefur það margfaldað
virði þess.
Grunnurinn að veldi Vollviks
var lagður í farsímafyrirtækinu
Chess, sem var selt til TeliaSonera
í fyrra fyrir 1,8 milljarða norskra
króna. Sannaðist þá sú kenning
að til þess að græða verulega
þarf að taka áhættu. Vollvik veð-
setti nefnilega húsið sitt í topp
og fékk fjórar milljónir norskra
króna lánaðar til þess að geta
keypt Chess árið 2001 með full-
tingi annarra fjárfesta. „Þegar
ég fékk lánaðar fjórar milljónir
og keypti Chess héldu margir að
ég væri klikkaður,“ segir Vollvik
en Chess var þá nánast gjald-
þrota eftir netbóluævintýrið.
Nýjum eigendum tókst að snúa
rekstrinum við og þegar félagið
var selt voru yfir 300 þúsund
símanotendur hjá því.
Eitt það fyrsta sem hann
gerði við söluna á Chess var
að gera upp gamlar syndir eftir
að leigusali einn í Þrándheimi
krafði hann greiðslu á fimmtán
ára gamalli skuld. Vollvik rak
nefnilega módelskrifstofu og
stóð ekki skil á leigu þar sem
reksturinn stóð höllum fæti.
Auk þess að vera giftur fjög-
urra barna faðir er Vollvik mikill
áhugamaður um hraðskreiða bíla
og fótbolta en hann er meðal
helstu stuðningsmanna Brann í
Björgvin. Hann lætur sig ekki
dreyma um hlutina heldur fram-
kvæmir þá, jafnt í heimi viðskipt-
anna sem annars staðar. Vollvik
hefur komið sér upp glæsilegu
safni sportbifreiða og auðvitað
lúxusbáta eins og sönnum norsk-
um auðmanni sæmir.
IDAR VOLLVIK, 37 ÁRA NORSKUR MILLJARÐAMÆRINGUR Aðdáandi sportbíla og
knattspyrnuliðsins Brann.
Veðsetti húsið í topp
Idar Vollvik lagði allt í sölurnar til að verða auðmaður og það tókst. Allt varð að
gulli í höndum hans í apríl.
Gott meðalverð hefur fengist
fyrir fisk á mörkuðum lands-
ins þrátt fyrir drjúgt framboð
upp á síðkastið. Í síðustu viku
seldust tæplega 2.900 tonn af
fiski á fiskmörkuðum og var
meðalverðið 132,52 kr./kg. Á vef
Fiskifrétta segir ljóst að lækkun
á gengi íslensku krónunnar hafi
skilað sér í hækkun fiskverðs
því ekki sé langt síðan algengt
meðalverð á fiski hafi staðið í
110 til 120 kr./kg. Hafi verðið
lengst af verið mun hærra í
kjölfar lækkunar krónunnar.
Söluhæsta fisktegundin á
mörkuðum landsins er þorskur
en í síðustu viku seldust 1.287
tonn af
h o n u m .
Þar af voru
56 tonn
af undirmálsfiski. Fyrir slægð-
an þorsk fengust 192,47 kr./kg
en fyrir slægðan undirmáls-
þorsk fengust 115,20 kr./kg.
Samsvarandi verð fyrir óslægð-
an þorsk var 149,85 kr./kg og
90,44 kr./kg. Á eftir þorski kom
ýsa en í boði voru 857 tonn, þar
af 24 tonn af undirmálsfiski.
Meðalverð fyrir slægða ýsu var
105,82 kr./kg og 60,27 kr./kg fyrir
undirmálsfisk. Fyrir óslægða ýsu
fengust 112,03 kr./kg og 48,78 kr./
kg fyrir undirmálsfisk. - jab
Gott verð á fiski
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins (ESB) segir í nýrri spá
sinni fyrir aðildarríki ESB að
efnahagslífið muni jafna sig og
ná að nýju 2,3 prósenta hagvexti
á árinu, en hagvöxtur aðildar-
ríkja sambandsins var 1,6 pró-
sent í fyrra. Helstu ógnir við
hagvaxtarspána eru breytingar á
olíuverði en búist er við að verðið
standi að jafnaði í 68,90 dollurum
á olíutunnu á þessu ári og fari
í 71 dollara á því næsta. Hafa
aðildarríki ESB lítið þanþol gagn-
vart sveiflum á olíumarkaði, að
mati framkvæmdastjórnarinnar.
Hagvöxtur innan ESB var 1,6
prósent í fyrra og spáir fram-
kvæmdastjórnin að hann verði
2,2 prósent á næsta ári. Þá spáir
stjórnin 2,1 prósents hagvexti
á evrusvæðinu á þessu ári en
þremur prósentustigum minni
hagvexti að ári.
Þetta er ívið lægri hagvöxtur
en á heimsvísu, en spáð er 4,6
prósenta hagvexti á þessu ári.
Almennt virðist um samdrátt að
ræða fyrir næsta ár en 4,3 pró-
senta hagvexti er spáð á heims-
vísu á næsta ári. Á meðal þess
sem dregur úr hagvexti innan
aðildarríkja ESB á næsta ári
er hækkun á virðisaukaskatti í
Þýskalandi en búist er við að
vegna þessa aukist neysla í land-
inu á þessu ári. - jab
FRÁ HÖFUÐSTÖÐVUM ESB Framkvæmda-
stjórn ESB spáir því að efnahagslífið muni
jafna sig á þessu ári.
Spá efnahagsbata í
aðildarríkjum ESB
Hagnaður Orkubús Vestfjarðar
árið 2005 nam um sjötíu milljón-
um króna, sem var betri afkoma
en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Eignir Orkubússins voru rúmir
4,6 milljarðar króna í árslok og
eigið fé 4,15 milljarðar króna,
sem þýðir að eiginfjárhlutfall
var tæpt níutíu prósent í lok árs.
Framkvæmdir við
Tungudalsvirkjun voru stærsta
verkefni fyrirtækisins á síð-
asta ári en einnig var unnið
að endurnýjun og endurbót-
um Blævardalsárvirkjunar og
Mjólkárvirkjunar. - eþa
Afkoma um-
fram áætlanir
MJÓLKÁRVIRKJUN Orkubú Vestfjarða
skilaði 70 milljóna króna hagnaði í fyrra.
Michael Dell, stofnandi og stjórn-
arformaður tölvuframleiðandans
Dell, hvatti kollega sína á heims-
ráðstefnu um upplýsingatækni í
Austin í Texas í Bandaríkjunum í
lok síðustu viku til að gera ráða-
mönnum hinna ýmsu landa grein
fyrir mikilvægi upplýsingatækni
í tengslum við hagvöxt.
„Ríkisstjórnir heimsins ættu
að setja sér það mark-
mið að gefa almenn-
ingi kost á að nýta sér
upplýsingatækni og
tækninýjungar,“ sagði
hann í erindi sem fjall-
aði um bætt aðgengi að
upplýsingatækni. „Helstu þjóðir
heims þurfa íbúa með kunnáttu
nýrrar aldar og hæfni til að nýta
sér öll þau tól sem nútíminn hefur
uppá að bjóða,“ sagði hann.
Þá hvatti Dell ráðamenn til að
lækka skattaálögur á vörur og
fyrirtæki í upplýsingageiranum
til að gera almenningi kleift að
kaupa ódýrari tölvur en ella svo
hann gæti nýtt sér þá
tækni sem til er. - jab
MICHAEL DELL Hann sagði
á ráðstefnu í síðustu viku að
auka ætti aðgengi almennings
að upplýsingatækni.
Kunnátta nauðsyn
Hollenska olíufélagið Royal
Dutch Shell hagnaðist um 3,31
milljarð punda á fyrstu þremur
mánuðum ársins.
Hagnaðurinn jafngildir því að
olíufélagið hafi hagnast um 1,5
milljónir punda, rúmar 205 millj-
ónir íslenskra króna, á klukku-
stund frá janúar til marsloka.
Árásir skæruliða á olíuvinnslu-
stöðvar Shell í Nígeríu hafa dreg-
ið úr olíuframleiðslu þar í landi
og hefur heimsmarkaðsverð á
olíu hækkað mikið, meðal ann-
ars vegna þessa. Er búist við að
hagnaður Shell hefði verið meiri
hefði ekki komið til samdráttar á
olíuframleiðslu í Nígeríu. - jab
Shell græðir
Nánari uppl‡singar á kbbanki.is,
í síma 444 7000 e›a í næsta
útibúi KB banka.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
12
7
5
KB SPARIFÉ
REGLUBUNDINN
SPARNA‹UR
FYRIR N†JAN DAG
OG N† TÆKIFÆRI