Fréttablaðið - 10.05.2006, Qupperneq 46
MARKAÐURINN
A U R A S Á L I N
10. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR18
Á D Ö F I N N I
Í tilefni af þeim tímamótum að
hafa fyrst íslenskra lögfræði-
stofa opnað útibú í London
efndi LOGOS til ráðstefnu um
íslensku útrásina í húsakynnum
Kauphallarinnar í London síðasta
fimmtudag. Viðstaddir voru um
200 innlendir og erlendir gestir.
LOGOS er elsta og stærsta lög-
fræðistofa landsins, á rætur að
rekja til ársins 1907.
„Með þessari ráðstefnu vild-
um við kynna okkur til leiks,
eftir að hafa starfað hér í nokkra
mánuði,“ segir Guðmundur J.
Oddsson, forstöðumaður úti-
búsins, en hann stýrði stofnun
þess. Útibúið er sjálfstætt rekið
í samvinnu við þrjá skandin-
avískar lögfræðistofur. „Hér
voru í dag fulltrúar allra stærstu
banka og lögfræði- og endur-
skoðunarskrifstofa sem starfa
hér á hinum alþjóðlega markaði
í borginni og sinna viðskiptum
við íslensk fyrirtæki.“
Guðmundur segir að unnið sé
með þeim íslensku fyrirtækj-
um sem starfa í Bretlandi um
yfirtöku og fjármögnun á félög-
um þar og annars staðar. Einnig
vinni stofan fyrir Breta sem við-
skipti eigi á Íslandi. „Vinnan hér
er nokkuð flóknari en heima, þar
sem maður þekkir mann. Hér er
sérhæfingin líka meiri,“ segir
Guðmundur. Í upphafi var gert
ráð fyrir einum lögfræðingi á
skrifstofunni í London, en þörf-
in kallaði fljótlega á annan til
viðbótar, auk þess sem nýliðar í
stéttinni eru komnir þangað og
verða þar í tímabundnum störf-
um.
„Við njótum reynslu
Skandinavanna með því að vera
undir sama þaki og þeir, auk þess
sem LOGOS á aðild að tveimur
alþjóðlegum samtökum óháðra
lögfræðistofa. Þannig getum við
veitt viðskiptavinum okkar góða
þjónustu um allan heim,“ segir
Guðmundur.
FJÁRFESTINGAR Í ÚTLÖNDUM
Ráðstefna LOGOS á fimmtu-
daginn var troðfyllti einn af
fundarsölum Kauphallarinnar í
London.
Ármann Þorvaldsson, for-
stjóri Singer & Friedlander
Group, dótturfélags KB banka,
og Lýður Guðmundsson, for-
stjóri Bakkavarar Group, fluttu
þar framsöguerindi. Ármann
skýrði fyrst frá helstu kenni-
tölum íslensks efnahagslífs og
bar saman þróunina á Íslandi og
í löndum Evrópusambandsins á
undanförnum árum. Þá fjallaði
hann um fjárfestingar íslenskra
fyrirtækja erlendis og hvern-
ig ekki hefði allt gengið upp í
fyrstu umferð. Útrásarbylgjan
hefði síðan byrjað fyrir alvöru
um aldamótin og náð hæstum
hæðum í fyrra, þegar íslensk
fyrirtæki fjárfestu erlendis
fyrir 3.650 milljónir sterlings-
punda, sem er meira en saman-
lögð fjárfesting þeirra fjögur
árin þar á undan. Fjármunirnir
til kaupanna hafa komið með
ýmsum hætti - frá innlendum og
erlendum bönkum, frá íslenskum
fjárfestum, með skuldabréfaút-
gáfu eða erlendu hlutafé, eins og
Ármann nefndi dæmi um.
Útrásin hefur leitt til þess að
nú eru um eitt hundrað þúsund
manns starfandi hjá íslenskum
fyrirtækjum erlendis - þar af
um sjötíu þúsund í Bretlandi.
Þá fór hann yfir helstu fjár-
festingar íslenskra fyrirtækja á
undanförnum árum og benti á að
þær væru bæði mjög fjölbreytt-
ar og í ýmsum löndum. Hann
minnti einnig á að yfirleitt hefðu
þessi fyrirtæki byggt sig vel
upp á heimamarkaði, stjórnend-
ur væru ungir og athafnasamir
og eftir útrásina væri meirihluti
veltunnar erlendis.
Lýður Guðmundsson fór yfir
sögu Bakkavarar, úr þriggja
manna fyrirtæki árið 1986 og
upp í sextán þúsund manna
fyrirtæki í dag með 43 verk-
smiðjur í sjö löndum í þremur
heimsálfum. Sem dæmi kemur
grænmeti sem fyrirtækið notar
í rétti sína daglega með flugi frá
Suður-Afríku. Fyrirtækið er nú
leiðandi í sölu á heitum og köld-
um réttum í mörgum flokkum
í Bretlandi og framleiðir fyrir
stórmarkaði undir þeirra merkj-
um. Síðasta viðbótin var kaup á
ábætisréttafyrirtæki.
kj@frettabladid.is
STOLTIR Í LUNDÚNUM Guðmundur J.
Oddsson forstöðumaður ásamt Ármanni
Þorvaldssyni og Lýði Guðmundssyni, sem
fluttu fyrirlestra á ráðstefnunni.
Efndu til ráðstefnu eftir stofnun útibús
Lögfræðistofan LOGOS opnaði i byrjun ársins útibú í London, fyrst íslenskra stofa. Stofan efndi
nýverið til ráðstefnu um íslensku útrásina.
FRÁ LOGOS-RÁÐSTEFNUNNI Í BRETLANDI Einn fundarsala Kauphallarinnar í London
var þéttsetinn íslenskum og erlendum gestum síðasta fimmtudag, en þar var íslenska
útrásin til umræðu.
„Mjúk lending hagkerfisins er
langlíklegust,“ segir Leif Beck
Fallesen, ritstjóri og fram-
kvæmdastjóri danska viðskipta-
blaðsins Börsen. Fallesen var
einn þriggja aðalræðumanna á
ársfundi Útflutningsráðs Íslands
í Salnum í Kópavogi á föstudag.
Fallesen segir harkalega lend-
ingu hins vegar ekki útilokaða
en ólíklega vegna þess hve stað-
an í efnahagsmálum heimsins sé
góð. Hann segir nokk-
uð mikið gert úr fjár-
festingum Íslendinga
í Danmörku því þær
nemi ekki nema um
þremur prósentum af
heildarfjárfestingum
útlendinga í landinu.
Hann segir Íslendinga
hafa sett mismikið
mark á hin ýmsu svið
dansks viðskiptalífs en hrós-
ar þeim fyrir góðan árangur í
fyrirtækjarekstri ytra. „Eitthvað
kunna þeir, það er alveg ljóst,“
segir hann og vísar meðal ann-
ars til þess hvernig tekist hafi
með góðum árangri að snúa við
rekstri verslananna Magasin,
Illum og Merlin, en það hafi
Dönum ekki tekist að gera þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Í ræðu sinni talaði Fallesen
einnig um möguleika Íslands á
að ganga í Evrópusambandið og
taldi Þýskaland og Norðurlöndin,
auk Hollands, Belgíu og
Lúxemborgar, mundu fagna
aðildarumsókn héðan, þótt í sam-
bandinu væri ekki búist við slíkri
umsókn og engin sértilboð uppi á
borðinu fyrir Ísland. Hann segir
hins vegar viðbúið að Frakkland
og Miðjarðarhafslöndin muni
draga lappirnar þegar
komi að afgreiðslu
umsóknar. „Þau lönd
munu vilja tala málið
í hel,“ segir hann og
telur að ýmislegt
myndi vinnast með
aðild okkar að sam-
bandinu; aukinn stöð-
ugleiki í efnahagsmál-
um, lægri vextir og full
aðild að sameiginlegum markaði
Evrópusambandsins. Hann árétt-
ar þó að ekkert knýi sérstaklega
á umsókn landsins.
Hinir aðalfyrirlesararnir á
fundinum voru Þórdís Sigurðar-
dóttir, stjórnarformaður Dags-
brúnar, og Sigurjón Þ. Árnason,
bankastjóri Landsbankans.
Þórdís segir ljóst að mikið sé
í húfi að verja stöðu landsins á
erlendum mörkuðum. Hún vís-
aði til undangenginnar umræðu
erlendis um hagkerfið hér og
hótaði Fallesen samkeppni á dag-
blaðamarkaði.
Sigurjón segir ljóst að sér-
íslenskir þættir séu til trafala
þegar starfa eigi í alþjóðaum-
hverfi. Hann bendir meðal ann-
ars á sveiflur á gengi krónunnar,
auk viðskiptahalla og fleiri hluta.
„Til að vera fullgildur þátttak-
andi á alþjóðlegum fjármála-
markaði þarf að spila eftir þeim
leikreglum sem þar gilda,“ segir
hann og telur erlenda fjárfesta
ekki tilbúna að sætta sig við
hluti og sveiflur sem Íslendingar
þekki úr sinni efnahagssögu.
Hann segir stjórn ríkisfjármála
og peningamála verða að ganga
í takt og kallar eftir sýnilegri
og helst aukinni aðhaldssemi í
ríkisfjármálum.
Í SALNUM Í KÓPAVOGI Á aðalfundi Útflutningsráðs, sem haldinn var síðasta föstudag,
flutti Geir H. Haarde utanríkisráðherra ávarp og Sigrún Davíðsdóttir blaðamaður kynnti
skýrslu um aðferðir og árangur í útrás á Norðurlöndum. Þá voru flutt erindi sem með einum
eða öðrum hætti fjölluðu um tengsl orðspors og árangurs. MARKAÐURINN/GVA
Árangurinn getur ráðist af orðsporinu
Orðspor og árangur var yfirskrift ársfundar Útflutningsráðs Íslands sem haldinn var fyrir helgi.
Óli Kristján Ármannsson sat fundinn og fylgdist með.
LEIF BECK FALLESEN
Þá kom í ljós að ekki eru
allir útlendingar sem fjalla
um íslenskt efnahagslíf fífl.
Endurlausnari íslenska efnahags-
undursins er Friðrik Mishkin,
hagfræðiprófessor og hetja.
Maðurinn er eini erlendi sér-
fræðingurinn sem hefur réttan
skilning á kraftaverkamætti
íslenskra athafnaskálda og þar
af leiðandi sá eini sem mark
er á takandi. Aurasálin fagnar
Mishkin innilega.
Heill og heiður, Mishkin okkar góður!
Þú hjartans bestu óskum kvaddur sért.
Því þú ert vinur vorrar gömlu móður
og vilt ei sjá að henni neitt sé gert.
Lag væri nú þegar styttist í 17.
júní að að heiðra þennan besta
vin Íslands. Hann hlýtur að fá
fálkaorðuna - stórriddarakross-
inn, ekkert minna! Höldum
honum veglega veislu, veit-
um honum lykla að gullforða
Seðlabankans og sendum hann
héðan með tylft yngismeyja um
borð í snoturri snekkju eða í ein-
hverri af fjölmörgum einkaþot-
um athafnaskálda okkar.
Jafnframt er kominn tími til að
fjarlægja það lýti sem er danska
skjaldarmerkið á framhlið
Alþingis. Við verðum að svara
árásum danskra „frænda“ okkar.
Þeir þykjast hafa hér áhyggjur
af fjárhagslegum stöðugleika
meðan þær mættu ef til vill vera
meiri af andlegum stöðugleika
eigin greiningardeilda.
Þótt Aurasálin hafi enga hagsmuni
af gengi stórbokkanna í íslensku
efnahagslífi og hafi í langan tíma
beðið eftir kreppu getur hún
ekki annað en fagnað því þegar
Íslandsvinur á borð við Mishkin
löðrungar danska óvininn með
þessum hætti. Íslendingar eru
fámenn þjóð og við verðum að
standa saman, sérstaklega þegar
að okkur er sótt.
Þetta á sérstaklega við nú á þess-
um viðsjárverðu tímum. Gömlu
dönsku kúgararnir láta til skarar
skríða gegn okkur á nákvæmlega
sama tíma og bandaríski herinn
yfirgefur landið. Þetta getur ekki
verið tilviljun. Aurasálin hefur
fyrir því nokkuð áreiðanlegar
heimildir að Danske Bank vinni
að því ásamt danska hernum að
undirbúa innrás. Þáttur greining-
ardeildarinnar er að brjóta niður
baráttuþrek þjóðarinnar - en nú
hefur Mishkin snúið taflinu við.
Og ef fram heldur sem horfir
- og Íslendingar eignast fleiri
ráðuneyti í Kaupmannahöfn - þá
gætum við horft fram á þann dag
að við verðum herraþjóðin.
Mikið mun þá Aurasálin skemmta
sér við að selja fúinn fisk til
Danmerkur og fylgjast með því
þegar íslenska skjaldarmerkið
verður hengt upp á Folketinget.
Og þá kemur vart annað til
greina en að gera fæðingardag
Friðriks Mishkin, 11. janúar, að
almennum frídegi hér á landi og
reisa honum veglega styttu við
Kauphöllina.
Náð og
Mishkin