Fréttablaðið - 10.05.2006, Síða 50

Fréttablaðið - 10.05.2006, Síða 50
MARKAÐURINN 10. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR22 F Y R S T O G S Í Ð A S T Hversu mikilvægar eru alþjóð- legar áherslur í framhaldshá- skólanámi í dag? Við lifum í alþjóðlegu umhverfi, við keppum á alþjóð- legum markaði, hvort sem er um að ræða vörur, þjónustu eða menntun. Ef íslenskt samfélag ætlar að skara fram úr verður menntun íslenskra ungmenna á öllum skólastigum að standast ströngustu alþjóðlegu kröfur og viðmið. Það á hvergi betur við en um framhaldsnám á háskólastigi. Ætti kennslan í framhalds- háskólanámi að fara fram á íslensku eða á ensku? Það hlýtur að vera grund- vallarviðmið íslenskra skóla að kennsla þar fari fram á íslensku þó svo að kennsluefni sé hugsanlega erlent. Í ein- staka tilvikum, til dæmis ef um er að ræða nám í alþjóðlegri samkeppni þar sem ekki síður er verið að horfa til þess að laða að erlenda nemendur, tel ég réttlætanlegt að kennsla fari fram á öðru tungumáli. Það á einnig við ef um erlenda gestakennara er að ræða. Er mikilvægt að fá erlenda nemendur og kennara til liðs við íslenska háskóla? Tvímælalaust á að fá erlenda kennara til að kenna á Íslandi. Þúsundir íslenskra háskóla- nema stunda nám ár hvert við erlenda háskóla. Líklega er hlutfall þeirra sem sækja háskólamenntun sína að hluta eða öllu leyti til útlanda hvergi hærra en hér. Að sama skapi standa okkar háskólar erlend- um stúdentum opnir. Ég tel það vera æskilegt markmið að fjölga þeim. Það auðgar háskólaumhverfi okkar. Veltur samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs á því að Íslendingar sæki sér framhalds- menntun til útlanda? Ein helsta forsenda þess árangurs sem við höfum náð á margvíslegum sviðum er að Íslendingar hafa sótt fjöl- breytta menntun til erlendra háskóla. Fjölmargir Íslendingar hafa stundað nám við bestu háskóla veraldar, í Evrópu, Bandaríkjunum, Asíu og víðar. Þetta er ein af meginforsendum íslensku útrásarinnar og þetta er meginforsenda þess blómlega háskólasamfélags sem hér hefur byggst upp. Getur það á ein- hvern hátt verið slæmt að auka möguleika til framhaldsnáms á Íslandi, þar sem færri leita til útlanda? Það að hér á Íslandi byggist upp framhalds- nám þarf ekki að þýða að færri sæki nám til erlendra háskóla. Fjöldi þeirra sem stunda fram- haldsnám hefur aukist gífurlega og mun halda áfram að aukast. Við eigum áfram að ýta undir það að íslenskir háskólanemar sæki nám til annarra landa og styðja við bakið á þeim, til dæmis í gegnum Lánasjóð íslenskra námsmanna. Við megum hins vegar heldur ekki gleyma því að framhaldsnám - ekki síst með þeim rannsóknum er því fylgir - er forsenda þess að háskólar nái að dafna akadem- ískt. Ekki síst varðandi sérhæft doktorsnám tel ég aftur á móti mikilvægt að íslenskir háskólar einbeiti sér að þeim sviðum þar sem við skörum fram úr og höfum burði til að keppa við bestu erlendu háskólana. Alþjóðleg menntun forsenda útrásar T Ö L V U P Ó S T U R I N N Til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra Ein helsta forsenda þess árangurs sem við höfum náð á margvíslegum sviðum er að Íslendingar hafa sótt fjölbreytta menntun til erlendra háskóla ... ein af meginforsendum íslensku útrásarinnar ... H E L S T I Á H E R S L U M U N U R Á M B A - N Á M I H Í O G H R Háskóli Íslands Háskólinn í Reykjavík Hlutfall íslenskra kennara 100% 50% (þar af 20% búsettir erlendis) Tungumál við kennslu Íslenska Enska Nálgun á alþjóðavæðingu Áhersla á íslenskan veruleika Áhersla á alþjóðlegan veruleika Á Íslandi útskrifast árlega um 100 manns úr MBA- námi frá þeim tveimur háskólum sem bjóða upp á slíkt nám hér á landi, Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands. Til eru um 2.500 gerðir MBA-pró- gramma í heiminum og námið er kennt í 120 til 130 löndum. Helsta flokkunin er MBA-nám í dagskóla og svokallað Executive MBA. Í dagskóla eru nem- endur yfirleitt undir þrítugu, hafa lokið háskóla- gráðu en hafa litla sem enga starfsreynslu og eru í fullu námi. Executive MBA, það nám sem bæði Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands bjóða, er hins vegar yfirleitt skipulagt svo að nemendur geti unnið með náminu og gert ráð fyrir því að þeir hafi umtalsverða starfsreynslu. Þar er meðalaldurinn töluvert hærri, í kringum 35 ár. Nemendur í MBA-námi hér á landi hafa mjög mismunandi bakgrunn. Eitt af því sem gerir námið eins vinsælt og raun ber vitni er að nemendur læra ekki einungis af bókum og kennurunum heldur ekki síst hver af öðrum enda eru oftar en ekki mjög reynslumiklir og hæfir einstaklingar innan hvers hóps. Við þessar aðstæður skapast gríðarlega skemmtilegt og dýnamískt andrúmsloft. ÓLÍKAR HUGMYNDIR AÐ LEIÐARLJÓSI Háskólarnir tveir hafa afar mismunandi hug- myndir að leiðarljósi við uppbyggingu MBA-náms- ins þótt í báðum tilvikum hafi það verið byggt upp eftir viðurkenndum erlendum fyrirmyndum. Háskólinn í Reykjavík leitast eftir því að hafa námið alþjóðlegt og líkt því sem gerist í útlöndum. Námið fer að öllu leyti fram á ensku og helmingur kennar- anna er erlendur og kemur hingað frá mörgum af virtustu háskólum heims í stuttan tíma í senn. Hinn helmingurinn er íslenskir sérfræðingar og þar af hluti Íslendingar sem búsettir eru erlendis. „Í okkar MBA-námi viljum við veita fólki sem ekki kemst utan til náms það sama og það fengi ef það færi,“ segir Finnur Oddsson, forstöðumaður MBA-námsins við Háskólann í Reykjavík. Grunnhugmyndin geng- ur út á að viðfangsefni í íslensku efnahagslífi séu ekki einstök. Flest íslensk fyrirtæki horfi til ann- arra markaða en þess íslenska og íslenskt umhverfi sé sífellt að verða alþjóðlegra. „Það að sérsníða nám fyrir íslenskt atvinnulíf er nokkuð sem verð- ur að setja ákveðið spurningarmerki við,“ segir Finnur. „Við þurfum að gefa fólki öfluga alþjóðlega þekkingu til að takast á við ögrandi viðfangsefni í atvinnulífinu og það skiptir engu máli hvers lensk þau eru. Til að gera nemendum og íslensku atvinnu- lífi gott þurfum við að draga þekkingu hingað. Við gerum það með liðsinni erlendra kennara og nem- enda, en okkar ágætu íslensku nemendur eru sjálfir fullfærir um að sjá um staðfæringu slíkrar þekking- ar yfir á íslenskar aðstæður eftir þörfum.“ Innan Háskóla Íslands er hugmyndin önnur. Þar er talið mikilvægt að miða námið við íslenskar aðstæður, kennarar eru íslenskir og námið fer fram á íslensku. „Við lítum svo á að með því kennaraliði sem við höfum yfir að ráða þurfum við ekki endi- lega á útlenskum kennurum að halda. Við fáum inn erlenda kennara til að „krydda“ námið og allar helstu kennslubækurnar okkar eru útlendar,“ segir Snjólfur Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands. Hann segir nemendur fá skilning á alþjóðlegu umhverfi í gegnum námsbækur sínar og í reynd skorti efni um íslenskan raunveruleika. „Það sama á ekki við í öllum tilfellum hér og í útlöndum. Íslenskt atvinnulíf er að mörgu leyti öðruvísi en útlent og erlendir kennarar geta almennt ekki upplýst nem- endur um það sem er séríslenskt. Við gerum þær kröfur til kennara okkar að þeir geti bæði útskýrt það sem gerist í hinum stóra heimi og hér á landi. Eftir námið við HÍ verða nemendur vel færir til að heimfæra fræðin yfir á alþjóðleg viðskipti, ef svo ber undir, þrátt fyrir að þeir hafi ekki útlenska kennara. Enda fæst ávinningurinn af því að vera í námi erlendis ekki með því.“ NÁM Í ÚTLÖNDUM HLEYPUR Á TUGMILLJÓNUM Eitt af því sem kom fram í nýlegri skýrslu fram- tíðarhóps Viðskiptaráðs Íslands var að Íslendingum sem sækja nám erlendis hefur fækkað hlutfallslega á síðustu árum. Þetta kemur meðal annars til af því að námsframboð hefur aukist hér á landi. Mörgum þykir þetta hins vegar óheppilegt þróun þar sem íslenskt atvinnulíf er sífellt að verða alþjóðlegra. Þeir Snjólfur og Finnur taka báðir undir að mikill hagur sé af því fyrir þjóðfélagið að einstaklingar sæki sér menntun að utan. Þeir eru hins vegar ósam- mála um með hvaða aðferðum sé hægt að gera nám hér á landi sambærilegt því. Ekki geta þó allir farið til útlanda í framhaldshá- skólanám, ekki síst af fjárhagslegum ástæðum, enda getur slíkt hlaupið á tugum milljóna króna. Ekki er óalgengt að skólagjöld fyrir tveggja ára MBA-nám við virtan skóla í Evrópu séu um sex milljónir íslenskra króna. Við það bætist svo kostnaður við flutningana, við það að búa erlendis, vinnutap og annað. Flestir þurfa því að hugsa sig vel um, eins og gefur að skilja, enda ekki um smáar upphæðir að ræða. Ólíkar áherslur í HÍ og HR Árlega útskrifast hér á landi um hundrað nemendur úr MBA-námi, sem er eitt vinsælasta framhaldsnám á háskólastigi í heimi. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir komst að því að stjórnendur námsins í HÍ og HR hafa afar ólíkar hugmyndir um hvernig nálgun á alþjóðlega tengingu skuli háttað. HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK Þar er leitast við að hafa námið sem alþjóðlegast, stór hluti kennara kemur frá útlöndum og kennslan fer fram á ensku. HÁSKÓLI ÍSLANDS Þar er talið mikilvægt að miða námið að íslenskum aðstsæð- um, námið fer fram á íslensku og allir kennarar eru íslenskir. ������������������������������������������������������������������������� ���������������������������������������������������������������������������

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.