Fréttablaðið - 10.05.2006, Side 63
MIÐVIKUDAGUR 10. maí 2006 23
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.447 -0,32% Fjöldi viðskipta: 236
Velta: 2.053 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 62,00 +0,00% ... Alfesca 3,79 -0,79%... Atorka 5,75
-0,86% ... Bakkavör 49,00 -1,01% ... Dagsbrún 5,23 -0,76% ... FL Group 17,70 -2,21% ... Flaga
4,07 -0,73% ... Glitnir 16,70 +0,00% ... KB banki 737,00 -0,27% ... Kögun 74,50 +0,00%
... Landsbankinn 20,70 -0,48% ... Marel 70,30 +0,00% ... Mosaic Fashions 17,50 -0,57% ...
Straumur-Burðarás 16,80 +0,00% ... Össur 112,00 +0,00%
MESTA HÆKKUN MESTA LÆKKUN
FL Group -2,21%
Bakkavör -1,01%
Atorka -0,86%
Umsjón: nánar á visir.is
Gjaldeyrisstaða bankanna, eignir
að frádregnum skuldum í erlend-
um gjaldeyri, dróst saman um
tæpa nítján milljarða króna í apríl
og nam um mánaðamótin tæplega
áttatíu milljörðum króna.
Greiningardeild Glitnis banka
vitnar til nýlegra upplýsinga Seðla-
banka Íslands og segir þetta jafn-
gilda 14,6 prósentum af saman-
lögðu eigin fé bankanna. Hlutfallið
var nítján prósent í mars.
Þá segir deildin að samkvæmt
reglum Seðlabankans eigi hver
bankanna um sig að halda hlutfall-
inu innan við þrjátíu prósent hvort
sem um er að ræða jákvæða eða
neikvæða stöðu. Heimilt sé að víkja
frá reglunni til að verja eiginfjár-
hlutfall viðkomandi banka fyrir
gengisáhrifum. Ekki liggur fyrir
sundurliðun eftir einstökum bönk-
um.
Tölur um gjaldeyriseignir- og
skuldir bankanna endurspegla, að
mati Glitnis, þá grundvallarbreyt-
ingu sem orðin er á starfsemi
þeirra og umhverfi. Fyrir tíu árum
námu gjaldeyriseignir bankanna
að meðaltali 52 milljörðum króna
en skuldirnar 50 milljörðum. Fimm
árum síðar, árið 2001, voru eignirn-
ar að meðaltali 602 milljarðar
króna en skuldirnar 603 milljarðar,
tíföldun á fimm ára tímabili. - jab
HÖFUÐSTÖÐVAR GLITNIS Gjaldeyrisstaða
bankanna minnkaði á milli mánaða.
Grynnkar á gjaldeyri
Kynningarfundur Íslensk-kanad-
íska verslunarráðsins, Icelandic-
Canadian Chamber of Commerce
(ICCC), verður haldinn hjá
Útflutningsráði Íslands í Borgar-
túni á morgun fimmtudaginn 11.
maí. Fundurinn hefst klukkan
hálftíu að morgni.
Gordon J. Reykdal, formaður
verslunarráðsins og ræðismaður
Íslands í Edmonton og Walter
Sopher, varaformaður ráðsins og
eigandi fyrirtækisins Snorri - Ice-
landic Goods, gera grein fyrir
störfum og stefnumálum ICCC og
viðhorfum varðandi þróun við-
skipta milli landanna. „Fjallað
verður um samskipti landanna á
breiðum grundvelli og gerð grein
fyrir íslenskri bankastarfsemi,
sem er í þann veginn að hefjast í
Halifax,“ segir í tilkynningu.
Fundurinn er opinn öllum
áhugasömum um eflingu sam-
skipta landanna á sviði viðskipta,
verslunar og þjónustu.
Greint frá útrás til Halifax
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
10.000 manns
geta ekki haft
rangt fyrir sér
Fyrirtæki ársins er árleg könnun VR á aðbúnaði
og ánægju starfsfólks íslenskra fyrirtækja.
Niðurstöður byggðar á svörum um 10.000
þátttakenda verða kynntar 19. maí.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI