Fréttablaðið - 10.05.2006, Page 73
������������������������������
������ �������
�������
����������
����
������������������������������
��������������������
�������������������
����������
Hljómsveitin Ghostigital heldur
tónleika á Sirkus í kvöld. Þar mun
hún frumflytja nýja endurhljóð-
blandaða útgáfu Hairdoctor af
laginu Northern Lights af plötu
Ghostigital, In Cod We Trust.
Kínversk sendinefnd er stödd á
landinu um þessar mundir auk
þess sem franskir kvikmynda-
gerðarmenn eru að gera heimild-
armynd um næturlíf í Reykjavík.
Munu þessir Íslandsvinir kíkja á
tónleikana á Sirkus.
Tónleikarnir hefjast klukkan
21.30 og er frítt inn. Þórir sér um
upphitun og eftir tónleikana mun
Curver þeyta skífur. Tónleikarnir
eru hluti af Madchesterkvöldaser-
íu Sirkus.
Ghostigital á Sirkus
GHOSTIGITAL Dúettinn Ghostigital spilar á
Sirkus í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Madonna segist vera afleit móðir.
Söngkonan, sem á tvö börn, gaf
þetta upp í blaðinu E! Entertain-
ment og segist eiga erfitt með að
sameina móðurhlutverkið og vinn-
una. Madonna segist sakna barn-
anna sinna þegar hún er í vinnunni
en þegar hún er heima vilji hún
einbeita sér að vinnunni.
Einnig kemur fram í viðtalinu
að dóttir hennar Lourdes sem er á
níunda aldursári eigi mjög erfitt
með að sætta sig við frægð móður
sinnar, hún bannar henni að koma
með sér á viðburði í skólanum
vegna þess að hún vilji ekki að öll
athyglin dragist að söngkonunni
og einnig hefur Lourdes orðið fyrir
áreitni í skólanum vegna þess að
krakkarnir í skólanum vilji allir fá
að vita hvernig það er að vera dótt-
ir heimsfrægrar söngkonu.
Madonna er eins og flestir vita
gift kvikmyndaleikstjóranum Guy
Richie og hefur skrifað tvær
barnabækur.
Erfitt að sameina
fjölskyldu og vinnu
MADONNA Á TÓNLEIKUM Ekki sést á söng-
konunni síunglegu að hún sé að nálgast
fimmtugsaldurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
[UMFJÖLLUN]
TÓNLIST
Litla hryllingsbúðin er sígildur
rokksöngleikur sem hefur farið
sigurför um heiminn síðan hann
var frumsýndur fyrir 25 árum
Söngleikurinn nýtur alltaf jafn-
mikilla vinsælda hér á landi enda
eru í honum mörg stórskemmti-
legum lög.
Nýjasta útfærslan, sem hefur
gengið fyrir fullu húsi bæði á
Akureyri og í Íslensku óperunni,
skartar fínum söngvurum á borð
við Árdísi Ólöfu Víkingsdóttur,
fyrrum Idol-stjörnu, Andreu
Gylfadóttur, Esther Taliu Casey
og Vigdísi Hrefnu Pálsdóttur, auk
þess sem Guðjón Davíð Karlsson
kemst ágætlega frá sínu.
Eftirminnilegustu lögin á þess-
ari annars prýðilegu plötu voru
Bísinn, Þar sem allt grær, Snögg-
lega Baldur og Gemmér, þar sem
Andrea Gylfa fer á kostum í hlut-
verki plöntunnnar Auðar II. Einn-
ig er Andrea sérlega góð bæði í
Gogginum og í Svaf ekki dúr.
Að auki er alltaf jafngaman að
heyra Þú verður tannlæknir þó
svo að lagið nái ekki sömu hæðum
í meðferð Jóhannesar Hauks
Jóhannessonar og þeir Laddi og
Stefán Karl náðu á sínum tíma. Í
þetta sinn vantar aðeins meiri kar-
akter í tannlækninn.
Þýðingar Megasar á verkinu í
bundnu máli standa fyllilega fyrir
sínu þar sem nútíma slettum er
hrært á skemmtilegan hátt inn í
textann. Freyr Bjarnason
Góður hryllingur
ÝMSIR:
LITLA HRYLLINGSBÚÐIN
Niðurstaða: Skemmtileg plata þar sem hópur
sterkra söngvara stendur fyllilega fyrir sínu.
Andrea Gylfadóttir gnæfir þó upp úr sem
plantan Auður II.
Axl Rose, forsprakki hljómveitar-
innar Guns N´Roses, hefur lýst
því yfir að platan Chinese
Democracy komi út annað hvort
núna í vor eða í haust.
Platan hefur verið tíu ár í
vinnslu og hefur Rose margoft
svikið loforð síðustu árin um að
gefa plötuna út.
Rose sagðist í útvarpsviðtali
við Sebastian Bach, fyrrverandi
söngvara Skid Row, vera að fara í
tónleikaferð sem hefst í New York
á föstudag. Þetta er fyrsta langa
viðtalið sem Rose veitir síðan
hann fór í langþráða tónleikaferð
Guns N´Roses árið 2002. Lauk
henni mun fyrr en til stóð.
„Axl leit vel út og var virkilega
svalur. Það eina sem hann vildi
var að engar ljósmyndir væru
teknar af honum,“ sagði útvarps-
maðurinn Eddie Trunk sem stjórn-
aði útvarpsþættinum ásamt Bach.
Guns N’Roses með nýtt efni?
AXL ROSE
Forsprakki Guns N´Roses segir að Chinese
Democracy komi út á þessu ári.
Christina Aguilera er þekkt fyrir
allt annað en hefbundinn klæðnað
og þrátt fyrir aukin þroska segist
söngkonan ekki ætla að bæta á sig
flíkum af þeirri einföldu ástæðu
að hún kunni einfaldlega ekki við
sig alltof mikið klædd. „Mér
myndi líða eitthvað asnalega ef ég
væri í fötum sem myndu hylja
allan líkama minn,“ sagði söng-
konan en hún hefur hneykslað
margan siðprúðan samborgarar-
ann með ögrandi pínupjötlum sem
hylja aðeins það helgasta.
Fjölgar ekki
flíkunum
AGUILERA Er þekkt fyrir að vilja sýna bert
hold við hvert tækifæri
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
0
8
7
ER PABBI
DÍLERINN ÞINN?
Foreldrar og aðrir fullorðnir mega ekki
kaupa áfengi handa börnum yngri
en 20 ára. Það er lögbrot.