Fréttablaðið - 26.05.2006, Blaðsíða 6
6 26. maí 2006 FÖSTUDAGUR
����������
���������
��������������
����������������������������������������������������������
���������������������������
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
6
�������������
����������
��������������
���������������������������������������� �����������
�����������������������������������������������
������������������������������������������������
����������������������������� ������
������ ���������������������������������������
����������������������
���������������������������� ������������������������
������������� ��������������������������
FJÁRMÁL Árni Sigfússon, bæjar-
stjóri í Reykjanesbæ, er afar
ósáttur við niðurstöður Sigurðar
Björnssonar viðskiptafræðings
um skilvirkni í stjórnun sex sveit-
arfélaga. Í Fréttablaðinu í gær
kom fram að rekstur Reykjanes-
bæjar hefði staðið afar illa og
skuldasöfnun verið svo mikil að
jaðrað hefði við ábyrgðarleysi.
Þetta telur Árni rangt og segir
Sigurð hafa „föndrað með árs-
reikninginn“.
Árni segir að skuldir Reykja-
nesbæjar hafi verið greiddar niður
um 1,3 milljarða króna á árunum
2002-2006. Þar af sé ótvíræð hrein
skuldalækkun um 800 milljónir
króna. Ritgerð Sigurðar sé byggð á
misskilningi, hann hafi ekki í hönd-
um ársreikninginn 2005. Þá skoði
hann einungis A-hluta bæjarsjóðs,
ekki samstæðureikninginn. A-hlut-
inn segi ekki alla söguna um rekst-
ur sveitarfélagsins.
Sigurður segir í ritgerð sinni að
Reykjanesbær hafi síðustu árin
selt fasteignir inn í fasteignafélög
og gert leigusamninga til langs
tíma til að sýna lækkandi skuldir í
efnahagsreikningi. Þetta þýði
eignatilfærslu til að fegra rekstur
bæjarsjóðs. Á svipuðu máli er
Reynir Valbergsson, fyrrverandi
fjármálastjóri Reykjanesbæjar.
Hann segist hafa lýst því yfir á
sínum tíma að þetta væri vara-
samt, lántaka og ekkert annað.
Þessum peningum hafi meðal ann-
ars verið eytt í rekstur.
Árni segir að öll sveitarfélög
hafi átt að stofna eignasjóði sam-
kvæmt lögum 2002-2003. Reykja-
nesbær hafi ákveðið að stofna
fasteignafélag með Glitni og átta
öðrum sveitarfélögum og ná
þannig stærra félagi, hagstæðari
lánskjörum, lægri byggingar-
kostnaði og hagstæðara viðhaldi.
Reykjanesbær eigi 35 prósent í
þessu félagi og eignirnar nemi í
dag tólf milljörðum króna.
Árni Sigfússon segir Sigurð
„föndra“ með ársreikninginn.
Hann bæti við framtíðarleigu-
greiðslum vegna húsnæðis, „en
sleppir til dæmis eign bæjarins í
Hitaveitu Suðurnesja. Ekki að
furða að út komi dökk mynd þegar
málað er með svörtu.“
Harðlega er deilt á rekstur
Hafnarfjarðar í ritgerðinni. Lúð-
vík Geirsson bæjarstjóri segir að
fjárhagurinn hafi styrkst. Sam-
stæðan hafi skilað greiðsluafgangi
yfir milljarð króna síðustu tvö ár
og erlendar skuldir greiddar niður.
Algjör umbreyting hafi orðið og
veltufé þrefaldast á þremur árum.
Hafnarfjörður hafi verið verð-
launaður fyrir stjórnkerfisbreyt-
ingar. ghs@frettabladid.is
ÁRNI SIGFÚSSONLÚÐVÍK GEIRSSON
Dökk mynd þegar
málað er með svörtu
Ágreiningur magnast um það hvort rekstur Reykjanesbæjar sé jafn slæmur og hald-
ið hefur verið fram. Sjálfstæðismenn eru afar ósáttir við niðurstöður ritgerðar þar
sem fram kemur að skuldasöfnun hafi verið mikil síðustu ár og reksturinn slæmur.
REYKJANESBÆR Ágreiningur um það hvernig rekstur Reykjanesbæjar heldur áfram að magnast. Sjálfstæðismenn telja að reksturinn hafi
farið snarlega batnandi síðustu árin en ekki sé litið til þess. MPA-ritgerð í stjórnsýslufræðum sýnir að reksturinn standi illa.
SKIPULAGSMÁL Íbúar við Álafoss-
kvosina í Mosfellsbæ stóðu fyrir
mótmælum á fimmtudaginn vegna
fyrirhugaðrar tengibrautar sem á
að liggja gegnum kvosina. Tengi-
brautin á að liggja að nýju hverfi
sem stendur til að reisa á Helga-
fellslandi.
Að sögn Orra Páls Dýrasonar,
talsmanns hópsins, er mikil and-
staða við þessar framkvæmdir
meðal íbúa svæðisins. „Kvosin er
mjög fallegur staður og mikið af
fallegum trjám sem var plantað af
stofnendum Álafossverksmiðj-
unnar verða rifin upp ef af fram-
kvæmdinni verður.“ Orri segir að
tengibraut á þessum stað muni
skapa mikla mengun og er fyrir-
hugaður staður brautarinnar mjög
nálægt tveimur húsum.
„Brautin er hugsuð sem stysta
leiðin úr hverfinu í miðbæ Mos-
fellsbæjar. Það tekur hálfri mín-
útu lengur að fara Þingvallaleið-
ina, en menn vilja frekar
eyðileggja fallegasta hverfi bæj-
arins.“ Orri sagði að framkvæmd-
in yrði kærð á næstunni af íbúum
svæðisins.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar, segir
framkvæmdina hafa legið fyrir í
langan tíma og hafi verið sam-
þykkt í deiliskipulagi sem bíður
nú samþykktar Skipulagsstofnun-
ar. „Málið snýst um að Helgafells-
hverfið snýr að miðbænum og
alveg skilyrt að það sé tenging við
miðbæinn.“ - sdg
MÓTMÆLENDUR Búið er að stika út leiðina þar sem áætlað er að brautin liggi.
Fyrirhugað er að leggja veg gegnum Álafosskvosina í Mosfellsbæ:
Hópur íbúa mótmælir tengibraut
KJÖRKASSINN
Viltu að Íbúðalánasjóði verði
breytt í heildsölubanka?
Já 10%
Nei 90%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ertu spennt(ur) fyrir sveitar-
stjórnarkosningunum?
Segðu þína skoðun á visir.is
MATVARA Matvöruverð hefur lækk-
að um 7,4 prósent í lágvöruverð-
sversluninni Krónunni frá því í jan-
úar en lækkaði um 0,6 prósent á
sama tíma í Bónus. Verðmunur
milli verslananna tveggja nú í maí
nam 1,4 prósenti, Bónus bauð lægra
verð.
Verð hefur hækkað um tæp átta
prósent í Nóatúni frá því í janúar
og um tæp sex prósent í Hag-
kaupaum. Þetta er niðurstaða könn-
unar ASÍ á verði 25 algengra
neysluvara.
Gular melónur hækkuðu um 121
prósent á tímabilinu í Nóatúni, tæp
54 prósent í Krónunni, 51
prósent í Bónus en fimmt-
án prósent í Hagkaupum.
Tveggja kílóa gullauga
kartöflur hækkuðu um 94
prósent í Nóatúni á meðan
þær lækkuðu um helming
í Krónunni og um 22 pró-
sent í Bónus. Innfluttar
vörur eins og kex, morg-
unkorn, kaffi og ýmsar
pakkavörur hækka tals-
vert milli kannana en einn-
ig brauðmeti og drykkjar-
vörur auk grænmetis og ávaxta. Þá
hækkaði verð á osti víðast hvar
milli kannana.
Þrátt fyrir verðlækkan-
ir segir Halldór Ásgríms-
son forsætisráðherra mat-
arverð of hátt hér á landi.
Hann hefur skipað nefnd til
að leita leiða til að lækka
matvöruverð. Hún skoði
meðal annars af hverju
vörur sem njóti engrar
verndar eða skattlagningar
séu mun verðhærri hér en
annars staðar. Sporna þurfi
við fákeppninni. „Þar hljóta
samkeppnismál að koma við sögu.“
- gag
HALLDÓR ÁSGRÍMS-
SON Forsætisráð-
herra segir matar-
verð of hátt.
Karfan í Krónunni lækkar um 7,4 prósent en um 0,6 prósent í Bónus:
Ríflega prósents verðmunur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
Ö
R
Ð
U
R