Fréttablaðið - 26.05.2006, Side 74
26. maí 2006 FÖSTUDAGUR42
menning@frettabladid.is
!
Tilvalin bók fyrir konur á menntabraut
Fyrir 100 árum þurfti leyfi hjá danska
kónginum ef stúlka ætlaði í MR. Í dag
eru fleiri stelpur við nám en strákar (þær
eru að taka yfir skólana!).
Frábær bók um grýtta leið kvenna til
menntunar á Íslandi.
Valborg Sigurðardóttir fyrrum skólastjóri
Fósturskóla Íslands rekur sögu
menntunar kvenna á einfaldan og
læsilegan hátt.
„Fróðleg bók sem snertir ýmsa þætti þeirrar jafnfréttisumræðu sem verið
hefur ofarlega á baugi að undanförnu.“
Jón Þ. Þór Morgunblaðinu
„Bókin er einstök heimild um menntunarsögu íslenkra kvenna og ekki
spillir að Valborg hefur sjálf lifað þá sögu sem hún segir.“
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
„Áhugaverð og skemmtileg bók fyrir alla háskólanema.“
Droplaug Margrét Jónsdóttir verðandi MA í mannfræði frá H. Í.
„Bók Valborgar er vönduð og glæsileg í alla staði og prýdd fjölmörgum
athyglisverðum og skemmtilegum myndum.“
Inga Dóra Sigfúsdóttir Þjóðmálum
Tvær ungar konur úr
Reykjavík ætla að leggja
sitt af mörkum til að opna
augu almennings fyrir jafn-
réttismálum en þær munu
bregða sig fyrir gleraugum
femínista í sjónvarpsþætti á
NFS, enda segjast þær líta
á sig sem málsvara mark-
miðsins að ná fram fullu
jafnrétti kynjanna. Og enn
verður baráttunni sinnt,
launalaust.
Auður Alfífa Ketilsdóttir og Kristín
Tómasdóttir hafa báðar verið virkar
í Femínistafélagi Íslands og oftar en
einu sinni komið fram í fjölmiðlum
til að ræða málefni sem varða jafn-
rétti kynjanna. Stöllurnar eru því
ekki ókunnar sviðsljósinu en þær
eru umsjónarmenn nýs sjónvarps-
þáttar sem hóf göngu sína á NFS um
síðustu helgi.
Þátturinn fjallar um konur og
femínisma. „Það er náttúrulega
frábært að stjórna
þætti sem tekur á
viðfangsefni
sem lýtur að
meginhugð-
arefnum
okkar,“
segir Kristín en bætir við að þær
fái að vísu engin laun greidd fyrir
þáttinn og verði því að reiða sig á
frjáls framlög frá fyrirtækjum.
„Við erum enn ekkert farnar af
stað með þá vinnu að fá styrkveit-
ingar frá fyrirtækjum en erum
vongóðar um að okkur verði vel
tekið. Langflest fyrirtæki í land-
inu eru orðin meðvituð um hversu
miklu þátttaka þeirra skiptir í
umræðunni um kynjajafnrétti,“
heldur Kristín áfram.
„Það eru svo mörg mál í kvenna-
baráttunni sem enn eru óleyst en við
ætlum okkur að fjalla um þau í þátt-
unum með aðstoð sérfræðinga. Það
verður að leggja áherslu á að femín-
ismi kemur öllum við og á erindi inn
í svo margt í þjóðfélagsumræðunni.
Sumir líta þetta hugtak neikvæðum
augum og það verður að leiðrétta,“
segir Kristín með áherslu. Aðspurð
um titil þáttarins „Óþekkt“, segir
Kristín að hann hafi verið
hugsaður í þeirri tvíræðu
merkingu að vísa ann-
ars vegar í lýsingarorð-
ið „óþekktur“ og hins
vegar í nafnorðið
„óþekkt“. Þegar
Kristín er innt
eftir því hvort
þær stöllurn-
ar telji sig
vera óþekkar
með því að
fjalla um ýmis mál sem varða hags-
muni kvenna, svarar hún því ját-
andi. „Sérstaklega þar sem við verð-
um aðallega með konur sem
viðmælendur má segja að við séum í
einhverjum skilningi óþekkar og án
efa er það óþekkt fyrirbæri að tala
eingöngu við konur þegar kemur að
heitri samfélagsumræðu. Þetta er
þáttur sem stjórnað er af konum og
er um konur, en ætti að höfða til
allra sem láta sig málefnið varða af
einhverju viti,“ segir Kristín að
lokum.
Í fyrsta þættinum var talað við
frambjóðendur frá öllum listum í
Reykjavík um kynjapólitík í borg-
inni og jafnréttismál en þátturinn
verður framvegis á dagskrá NFS kl.
10 á laugardögum. - brb
Óþekkir femínistar á NFS
Kl. 20.00
Óperan La Pays eða Föðurlandið
verður flutt í Hafnarhúsinu af Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og þremur
af ástsælustu söngvurum landsins,
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Bergþóri
Pálssyni og Gunnari Guðbjörnssyni.
Leikstjóri er Stefán Baldursson en
hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky.
> Ekki missa af...
groovebox-kvöldi
á Pravda Bar, gestir
kvöldsins verða Hunk
of a Man, Shaft, Ingvi
og slagverksmeistarinn
Ýmir. Stuðið stendur frá
22-06.
leikritinu Viltu finna
milljón? í Borgarleikhús-
inu. Farsi af bestu gerð
og valinn grínari í hverju
rúmi.
meistaraverki Haydns,
Sköpuninnni, sem
Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands flytur í
Kirkju- og menningar-
miðstöðinni á Eskifirði á
annað kvöld kl. 20.
Félagið IBBY á Íslandi hefur frá
árinu 1987 veitt einstaklingum og
stofnunum viðurkenningar fyrir
framlag til barnamenningar á
Íslandi. Fimmtíu aðilar hafa hlotið
þessar viðurkenningar. Síðastlið-
inn þriðjudag voru verðlaunin
afhent við hátíðlega athöfn en þau
hlutu að þessu sinni myndlistar-
konan og rithöfundurinn Sigrún
Eldjárn, brúðumeistarinn Bernd
Ogrodnik og rithöfundurinn Björk
Bjarkadóttir.
Sigrún Eldjárn hefur gefið út 34
bækur og hlotið margvíslegar við-
urkenningar fyrir störf sín, hún
hefur meðal annars verið tilnefnd
til Norrænu barnabókaverðlaun-
anna og til H.C. Andersen verð-
launanna.
Bernd Ogrodnik hefur verið
mjög afkastamikill í leiksýningum
á Íslandi að undanförnu og gerði
meðal annars hinar fjölmörgu
brúður sem komu fram í sýning-
unni Klaufar og kóngsdætur en
hönnun þeirra og stjórnun var
alfarið í höndum Bernds. Sýningin
hlaut m.a. leiklistarverðlaun
Íslands, Grímuna, sem barnaleik-
sýning ársins 2005. Bernd býr til
allar sínar brúður sjálfur og hefur
heimsótt flesta leikskóla á Íslandi
með leikbrúðusýningar en með því
starfi telur hann að börnin fái að
kynnast listinni nógu snemma og
búi að því alla ævi.
Rithöfundurinn Björk Bjarka-
dóttir býr og starfar í Osló en hún
hefur meðal annars gert fimm
myndabækur fyrir yngstu börnin,
til dæmis er hún höfundur bókar-
innar Leyndarmálið hennar ömmu.
Við sama tilefni var goðsagna-
bókin „Heil brú“ kynnt en bókin sú
var unnin með þeim óvenjulega
hætti að fyrst voru myndirnar
teiknaðar en sagan skrifuð á eftir.
Myndlistarmenn völdu efni úr
goðafræðinni og teiknuðu út frá
því. Síðan fengu þeir rithöfunda í
lið með sér til að ljúka verkinu.
Bókin er gefin út í samvinnu IBBY
á Íslandi og Eddu útgáfu en meðal
höfunda bókarinnar eru Halldór
Baldursson og Sjón og Sigrún og
Þórarinn Eldjárn.
- khh
Verðlaunahafar IBBY
ÞRÍR HLUTU VERÐLAUN FYRIR FRAMLAG SITT TIL BARNAMENNINGAR Á ÍSLANDI Harpa
Þórsdóttir tók við verðlaunum fyrir hönd Bjarkar Bjarkadóttur, rithöfundurinn og myndlistar-
konan Sigrún Eldjárn og Sigurður Skúlason sem tók við verðlaununum fyrir hönd Bernds
Ogrodnik.
Félagsheimili Kópavogs
mun óma á sjálfan kosn-
ingadaginn því skólakórar
Kársness munu standa
fyrir maraþonsöng frá
morgni til kvölds. Þetta er
í sjötta sinn sem kórarnir
efna til slíkra tónleika og
að sögn stjórnandans
Þórunnar Björnsdóttur
hefur fyrirkomulagið
slegið í gegn hjá
bæjarbúum og öðrum
velunnurum kórsins.
„Þetta eru afskaplega
fjölskylduvænir tónleikar en 300 börn á aldrinum
8-16 ára koma fram og skipta með sér klukkutíma
dagskrám. Fólk getur síðan komið og farið að vild
en aðgöngumiðinn gildir allan daginn,“ útskýrir
Þórunn.
Meðal efnis á tónleikunum er dagskrá tileinkuð
Halldóri Laxness en hana
flytja elstu nemendurnir,
vinningshafar úr söngva-
keppnum grunnskólanna
árið 1996 og 2006 taka
lagið og Drengjakór Kárs-
ness stígur á stokk en þess
má geta að það er eini
drengjakór landsins sem
starfar við grunnskóla.
Það mæðir mikið á kór-
stjóranum og undirleikaran-
um Marteini H. Friðrikssyni
og Þórunn viðurkennir að
þetta sé dálítið strembinn
dagur enda er sungið frá klukkan níu um morg-
uninn til fimm síðdegis. „Þetta eru milli 150-160
lög sem maður þarf að hafa á hreinu en við erum
búin að undirbúa þetta vel,“ segir hún. Tónleikarnir
marka lok afmælisárs kóranna í Kársnesi sem
fagna 30 ára starfsafmæli um þessar mundir.
Maraþonsöngur á afmælisári
SUNGIÐ MEÐ HJARTANU Skólakórar Kársness
syngja maraþonsöng á laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nú stendur yfir samsýning leirlista-
kvennanna Guðnýjar Magnúsdótt-
ur, Koggu og Kristínar Sigfríðar
Garðarsdóttur í Hönnunarsafni
Íslands við Garðatorg. Sýningin ber
heitið „3X3“ en um er að ræða þriðju
samsýningu þessara virtu lista-
manna en þar gefur að líta bæði
skrautmuni og nytjagripi.
Kristín Sigfríður eða Subba
lauk námi við Myndlistar- og hand-
íðaskóla Íslands 1997. Hún nam
síðan við Danmarks Design Skole í
Kaupmannahöfn 1998-1999 með
aðaláherslu á leir og gler. Hún
rekur verslunina Kirsuberjatréð
ásamt níu íslenskum hönnuðum,
vinnustofuna Stúdíó Subbu í Kópa-
vogi og einnig gallery r-21 í Kaup-
mannahöfn ásamt listamönnum
frá Norðurlöndunum. Kristín Sig-
fríður hefur jafnframt kennt ker-
amik við Listaháskóla Íslands og
Myndlistaskólann í Reykjavík.
Kolbrún Björgólfsdóttir, Kogga,
á að baki fjölbreyttan feril í grein
sinni, og notar helstu aðferðir sem
nú tiðkast í leir- og postulíns-
brennslu og eru verk hennar þekkt
fyrir margslungnar skreytingar
þeirra, Verk hennar, bæði ílát og
skúlptúrar, virðast í senn efnismikil
og lauflétt, virðuleg og gáskafull.
Kogga rekur vinnustofu og verslun
á Vesturgötu 5 í Reykjavík.
Guðný hefur stundað nám og
störf bæði hérlendis og í Finnlandi
frá árinu 1970 og líkt og starfssyst-
ur sínar hefur hún haldið fjölda sýn-
inga og tekið þátt í samsýningum.
Verk hennar má sjá víða á opinber-
um stöðum og á söfnum bæði hér
heima og erlendis. Guðný rekur
Studio Umbra í Reykjavík.
Sýningin stendur til 18. júní.
- khh
KRISTÍN SIGFRÍÐUR GARÐARSDÓTTIR
Subba sýnir í Hönnunarsafni Íslands með
listakonunum Koggu og Guðnýju Magnús-
dóttur.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leirlistakonur í Hönnunarsafni
KRISTÍN TÓMASDÓTTIR OG
AUÐUR ALFÍFA KETILSDÓTTIR
Stjórnendur þáttarins Óþekkt
á NFS.