Fréttablaðið - 26.05.2006, Side 87
26. maí 2006 FÖSTUDAGUR 55
5.799
1.299 1.299
Tveggja diska
útgáfa!
Tveggja diska
útgáfa!
PC 3799 kr. • PS2 & Xbox 5799 kr. • Xbox 360 5999 kr.
PS2 verð
1.6 00
FYLGIR
FÓTBOLTI Crystal Palace hefur sam-
þykkt tvö tilboð í framherjann
Andy Johnson. 8,5 milljónir punda
hljóðar kaupverðið upp á en í
fyrradag samþykkti liðið boð
Wigan og í gær annað frá Bolton.
Johnson mun hefja viðræður
við bæði félög í dag, en hann er til
taks í landsliðshópi Englendinga ef
ske kynni að einhver meiddist.
Everton hefur einnig sýnt Johnson
áhuga en hann var meðal marka-
hæstu manna í 1. deildinni í Eng-
landi á nýafstöðnu tímabili. Fram-
herjinn skrifaði undir fimm ára
samning síðasta sumar en hann er
talinn hafa mun meiri áhuga á því
að fara til Bolton en Wigan. - hþh
Bolton og Wigan:
Berjast um
Andy Johnson
JOHNSON Var nálægt því að fara frá Palace
í fyrra en ákvað að vera um kyrrt. Sú verður
ekki raunin í sumar.NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Franski vængmaðurinn
Robert Pires er búinn að skrifa
undir tveggja ára samning við
spænska félagið Villarreal. Sex
ára ferill hans hjá Arsenal er þar
með á enda.
„Ég hef ákveðið að taka þessari
nýju áskorun og það verður mjög
spennandi að spila með liðinu sem
hefur verið á mikilli uppleið síð-
ustu ár,“ sagði Pires sem var
aðeins boðinn eins árs framleng-
ing hjá Arsenal en hann vildi fá
tveggja ára samning. Þar stóð
hnífurinn í kúnni. - hbg
Áfall fyrir Arsenal:
Pires samdi við
Villarreal
ROBERT PIRES Spilar á Spáni næstu tvö
árin. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FORMÚLA 1 Michael Schumacher
segir að það sé áætlunin sem komi
til með að skipta öllu máli í kapp-
akstri helgarinnar sem fram fer í
Mónakó. Framúrakstur er gríðar-
lega erfiður á brautinni en Schum-
acher á möguleika á því að jafna
met goðsagnarinnar Ayrton Senna,
sem vann sex sinnum í Mónakó.
„Ef maður er ekki á ráspól
getur maður áunnið margt með
réttri áætlun og taktík. Maður á
möguleika á að vinna þrátt fyrir
að vera aðeins þriðji, fjórði eða
fimmti í rásröðinni. Margir telja
að maður þurfi að vera á ráspól til
að sigra, en ég er ekki sammála,“
sagði Schumacher. - hþh
Michael Schumacher:
Taktíkin
skiptir öllu
FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson til-
kynnti stjórn elsta félagsliðs í
heimi í gær að hann væri hættur
sem knattspyrnustjóri liðsins.
„Ég tók þessa ákvörðun eftir að
ég átti fund með stjórninni og sá
þá stefnu sem hún tók. Ég taldi að
við ættum ekki samleið lengur og
taldi það ekki henta mínum metn-
að að vera hérna áfram,“ sagði
Guðjón við fréttastofu NFS í gær.
Guðjón byrjaði mjög vel með
liðið en fataðist svo flugið. Þegar
tímabilið var á enda hafði Notts
County rétt sloppið við að falla úr
neðstu deild í Englandi. Guðjón
lýsti því yfir fyrir skömmu að
hann hygðist halda áfram með
liðið, og ætlaði sér að koma því
upp innan þriggja ára. Það breytt-
ist þó eftir ákvarðanir forráða-
manna klúbbsins.
„Vonbrigðin felast fyrst og
fremst í ákvörðun manna hjá
félaginu en ekki hjá mér, ég hefði
viljað rétta klúbbinn við. Það var
til að mynda tekin ákvörðun um
það að leggja niður unglingastarf-
ið og eitt leiðir af öðru. Maður sér
alveg í hvaða stöðu klúbburinn
er,“ sagði Guðjón en félagið er
mjög illa statt fjárhagslega.
„Ég hef það í það minnsta alls
ekki í hyggju að hætta í fótbolta,
langt frá því. Ég veit ekkert hvað
ég tek mér fyrir hendur. Þetta
gerðist bara núna í þessari viku og
ég sé hvernig málin þróast. Ég
reikna með að koma heim fljót-
lega en hef ekkert gert það upp
við mig hvað ég geri,“ sagði Guð-
jón og útilokaði ekki að koma heim
til Íslands til að taka við liði hér,
„ef rétt er staðið að málunum,“
eins og hann orðaði það.
- hþh
Guðjón Þórðarson er hættur með enska félagið Notts County eftir eins árs veru hjá elsta félagsliði heims:
Starfið hefði ekki uppfyllt minn metnað
GUÐJÓN Situr hér fyrir daginn sem hann tók við Notts County. Hann hefur ákveðið að
halda ekki áfram með félagið. FRÉTTABLAÐIÐ/TOM LOAKES