Tíminn - 13.11.1977, Side 40

Tíminn - 13.11.1977, Side 40
lUf Sunnudagur 13. nóvember 1977 18-300 Auglýsingadeild Tímans. Harks og Spencer HEIMSÞEKKT GÆÐAMERKI mUFATNADUR Sýrð eik j|§8 er sigild eign 11 U&C.Q&W TRBSMiDJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 • SIMI: 86822 Rannsóknir og tilraunir á vegum raunvísindastofnunar: Rekja skyldleika bergteg- unda með kvikuna í höndunum SJ-Reykjavik. — Viö likjum eftir storknun hrauns mcð þvi að taka sýniaf þviog bræða það við þekkt hitastig. Út frá þvi fæst kristöllunarferill hraunsins, en við efnagreinum vökvann og kristallana við hvert hitastig. Til- gangurinn með þessu er að rekja skyidleika bergtegunda og auka skilning manna á uppruna þeirra. Svo fórust Sigurði Steinþórs- syni jarðfræðingi orð við Tima- menn, þegar þeim var kynnt að nokkru starfsemi jarövisinda- stofu raunvisindastofnunar há- skólans. Undanfarin ár hefur verið unn- ið að svonefndu „basaltverkefni” I Jaröfræðihúsi háskólans í sam- vinnu við sérfræðinga Norrænu eldfjallastöðvarinnar. Safnaö var um 600 sýnum, sem eiga að ná til allra helztu gosmyndana núver- andi segulskeiðs (þ.e. yngri en 700.000 ára), og þau flokkuð og könnuð — m.a. hafa yfir 300 berg- efnagreiningar verið gerðar, Rannsóknir þessar hafa beinzt að þvi að skilgreina og skýra mynztur útbreiðslu og efnasam- setningar blágrýtisins i gos- beltunum islenzku. í framhaldi þessa eru nú hafnar bræöslutil- raunir á bergi, en með slikum til- raunum erleitaztviö að líkja eftir ferli storknandi bergkviku við mismunandi þrýsting og öðlast þannig skilning á þeim ferlum, er ráða þróun bergtegundanna hverrar frá annarri, eða frá sam- eiginlegum uppruna. Innlendir bræðsluofnar — fleiri i smiðum Sumarið 1974 var Siguröur Steinþórsson i Kanada og kynnti sérslikartilraunir, en um haustið var hafizt handa um að hanna og smiða bræðsluofna fyrir tilraunir viö 1-atm (einnar loftþyngdar) heildarþrýsting og breytilegan hlutþrýsting ildis. Ævar Jó- hannesson tæknimaður á jarð- visindastofu hefur haft veg og vanda af smíðinni. Bræðsluofnar af þessu tagi kosta sennilega um 2-3 milljónir kr. smiðaðir hér, en væru tvöfalt til þrefalt dýrari, ef þeir væru keyptir erlendis, auk þess sem talið er heppilegra aö smiöa þessi og önnur áþekk tæki hér heima. Þá gera sömu mennirnir við þau og smiöuðu þau o.s.frv. Ævar Jóhannesson er einnig aö smíða háþrýstiofna, þar sem likt ereftir aðstæðum á 30 km dýpi og 150 km dýpi undir yfirborði jarð- ar, en næsta skrefið f þessari rannsókn er að gera sambærileg- ar tilraunir á ýmsum berggerð- um við hærri þrýsting. Þær niðurstöður, sem þegar liggja fyrir úr þessu rannsóknar- verkefni, eru eftirfarandi: 1) Efnasamsetning basaltsins breytist kerfibundið eftir gos- beltunum frá Reykjanesi i suð- vestri til Melrakkasléttu i norðaustri. Eitt mikilvægasta einkenni til greiningar basalt- gerða er magn svonefndra utangarðsefna (incompatable elements — þ.e. efna, sem vegna jóngeisla og annarra eiginleika eiga torgengt inn á þá kristalla, sem myndast i möttlinum). úthafsbasalt, þ.e. basalt af úthafshryggjum, er sneyttþessum efnum en i is- lenzka basaltinu eru þau i miklu meira magni. A Islandi og umhverfis breytist efna- samsetning hraunanna þann- ig, að á mið-íslandi má finna þau hraun, sem auðugust eru að utangarðsefnum, en hin snauðustu til endanna á gos- beltunum. 2) Gosbeltin eru gerð úr sprungu- sveimum, sem hver um sig sýnir kerfisbundna dreifingu berggerða — i hverjum sveim finnast hraun snauð og auðug (aö vissu hámarki, sem ræöst af fjarlægð hans frá mið-ls- landi) að utangarðsefnum. 3) Efnasamsetning hraunanna er kerfisbundin, þannig að öll efni, þ.á.m. utangarðsefni og isótópar, breytast saman eftir vissum lögmálum innan hvers sprungusveims. 4) Sumirgangasveimarnir þróazt upp I „megineldstöð”, þ.e. eld- stöð sem gýs aftur og aftur súru og isúru bergi auk basaltsins (t.d. Askja, Hekla, Katla, Kverkfjöll og Krafla). Of fá barna- heimili á Akureyri LJm 300 börn á biðlista Ævar Jóhannesson og Stuguröur Steinþórsson við einn bræösluofninn, þar sem þeir bræöa hraun og láta það kristallast á ný. — Tímamynd: Gunnar. Nýtizku hesthús ef st á óskalista Hólanefndar áþ-Reykjavik. Um þaö bil þrjú hundruö börn eru nú á biðlista eftir vist á barnaheimilum Akur- eyrar. 135 börn eru nú á leikskól- um, á dagheimili eru 49 börn, en þaö húsnæöi er ætlað 26 börnum. 25 börn eru á skóladagheimili. Fyrirhugaö er að byggja barna- heimili f Lundahverfi en þaö mun hvergi nærri geta fullnægt eftir- spurninni. Leikskólinn i Lundahverfi á að geta rúmað 80 börn, en allar áætlanir eru ennþá á frumstigi sagöi Jón Bjömsson félagsmála- stjóri á Akureyri. — Ef vel gengur má gera ráð fyrir að hann veröi tilbúinn siðast á næsta ári. Einstæðir foreldrar hafa for- gang að barnaheimilunum og kvað Jón þá þurfa að bíöa allt upp i ár eftir aö böm þeirra fái pláss. Aörir forgangshópar eru ekki til og munu foreldrar vera nær hætt- ir að láta skrá böm sin, enda er biötiminn fyrir þá orðinn allt að þvi tvö ár. — Þó svo að leikskólinn I Lundahverfi værí tilbúinn i dag, myndi hann ekki einu sinni tæma biölistann sem er fyrir hendi, sagöi Jón. — Það hefur hins vegar ekki veriö tekin nein ákvöröun um að gera neitt frekar af hálfu bæjaryrifvalda. En við gerð fjár- hagsáætlunar bæjarins veröur ákveðið hvort og hvað ver ður gert I þessum málum. áþ-Reykjavík — Vegna eitthundr- aö ára afmælis Hólaskóla er starfandi nefnd til undirbúnings afmælinu. Nefndarmenn hafa þegar gert tillögur um uppbygg- ingu Hóla, og i sambandi vib röö- un verkefna, taldi nefndin brýn- ast aö byrjaö yröi á hesthúsi. Á Hólum er eina rikisrekna hrossa- ræktarstööin á landinu og i fjár- lagafrumvarpi þvi sem nú liggur fyrir alþingi er gert ráö fyrir fjór- um milljónum til hússins. Hins vegar hefur landbúnaöarmáia- ráöherra gefið góö orö um aö fjárveitingin veröi hækkuö enda nauösynlegt ef eitthvaö á að gera aö gagni næsta sumar. — Þetta er verk sem við lögöum töluvert mikla áherzlu á og ósk- um að fái meiri fjárveitingu en i fjárlögum, sagði Páll Pétursson alþingismaður sem sæti á i Hóla- nefnd. — Það er i lausu lofti, hvernig byggingunni verður hátt- aö, en þegar hefur verið haft samband við hrossaræktarráðu- naut sem mun gera tillögur. Það er ærið margt sem þarf að gera á Hólum, fyrir hundrað ára afmælið. Páll sagði nauðsynlegt að reisa ný útihús, endurbæta skólahúsið og ef til vill að stækka það. Á óskalista nefndarinnar er einnig tekið fram að merkja þurfi sögustaði, enda er nóg af slikum á Hólum. Hins vegar er timi ennþá nægur þvi afmælið veröur ekki fyrr en eftir fjögur ár. — Þessi skóli hefur staðið i skugga Hvanneyrar á undanförn- um árum, sagði Páll, en okkur sýnist að það sé heppilegt, að skipta verkefninu á milli skól- anna. Slik verkaskipting gæti líka verið Hvanneyri til góðs. 1 dag eru aðeins tuttugu nem- endur á Hólum I Hjaltadal og eru þeir I einni deild en áður voru þær tvær. Hólar i Hjailadal, hið forna frægöarsetur Norö- lendinga.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.