Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 2
2 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR STJÓRNMÁL Stjórnarandstæðingar gagnrýndu ráðherra á Alþingi í gær fyrir að hafa ekki samráð við þingið og þingflokksformenn allra flokka um skipan nefndar sem heimilað verður að rannsaka gögn er varða öryggi þjóðarinn- ar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Samfylkingunni, kvaddi sér hljóðs um málið og spurði forseta Alþing- is hvort til stæði að hálfu þingsins að kalla til fulltrúa allra þingflokk- anna til þess að ná sátt um það hvernig fjallað yrði um upplýsing- ar sem Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur hefur lagt fram um símhlerun stjórnvalda á kalda- stríðsárunum. Hlerun náði ekki aðeins til stjórnmálaflokka og verkalýðs- hreyfingarinnar heldur einnig alþingismanna sem njóta frið- helgi. Steingrímur J. Sigfússon, vinstri grænum skoraði á forseta Alþingis að fara sömu leið og gert hefði verið í svipuðum tilvikum, meðal annars á vegum norska stórþingsins. Taldi Steingrímur þingsályktunartillögu forsætis- ráðherra um málið allt of tak- markaða. „Þetta snýst um að þing- helgi hafi verið rofin og þingmennirnir hafi sætt stórfelld- um pólitískum njósnum,“ sagði Steingrímur og taldi brýnt að fyr- irbyggja að njósnir af þessu tagi gætu endurtekið sig. Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra kvaðst gera ráð fyrir að farið yrði yfir málið í samræmi við þingsályktunartillöguna og nefnd sérfróðra mundi skila af sér fyrir árslok. Hann kvaðst ekki vilja verja símhleranir með nein- um hætti. Kanna yrði hvað satt og rétt væri í málinu og framhald þess réðist af því. „Hins vegar finnst mér að menn eigi að fara varlega í full- yrðingar sínar um þessi atriði, tala um að brotin hafi verið þinghelgi... Mér þætti eðlilegast að þingið sameinaðist um þessa tillögu,“ sagði Geir H. Haarde utanríkis- ráðherra í umræðunum. Mörður Árnason, Samfylkingunni, sagði að í orðum Geirs fælist sú afstaða að honum þætti í lagi að hann og dómsmálaráðherra mættu láta hlera síma án þess að það teldist rof á þinghelgi. „Það er algerlega nýr skilningur á lýðræðislegum vinnubrögðum í landinu, sagði Mörður. johannh@frettabladid.is ��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ ������� ��������������� ������������������������������������������������������������������ ���� ����� ����� � ��� ��� �� �������������� ��� �������������� ����� Einkunnir afhentar Einkunnir tíundu bekkinga í samræmdu prófunum voru afhentar í gær. Upplýsingar verða veittar í dag um hvernig prófin komu út. SAMRÆMDU PRÓFIN FORSETI Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í gær setn- ingarræðu á ársþingi evrópskra borga sem sameinast hafa í bar- áttunni gegn fíkniefnum. Forsetinn lagði áherslu á víð- tæka samvinnu til að skapa nauð- synlega vörn gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi tengdri fíkniefna- sölu. Forsetinn ræddi meðal ann- ars íslenskar rannsóknir um árangur í forvarnarstarfi og lýsti hugmynd um sérstakan forvarn- ardag þar sem sveitarfélög, æsku- lýðssamtök, íþróttafélög, fjölmiðl- ar, foreldrar og skólar ynnu saman að forvörnum. - sdg Forseti Íslands í Litháen: Baráttan gegn fíkniefnum ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON FORSETI Ársþingið er haldið í höfuðborg Litháen og sækja það fulltrúar frá 26 Evrópulöndum. DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir árás á leigubílstjóra og að hafa valdið honum meiðslum. Málið hefur verið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Það var aðfaranótt laugardags- ins 1. apríl 2005 sem maðurinn réðst á leigubílstjórann. Atvikið átti sér stað á gatnamótum Miklubrautar og Snorrabrautar. Maðurinn greip um vinstri framhandlegg leigubílstjór- ans, sló hann hnefahögg í andlitið og sparkaði í vinstra hné hans með þeim afleiðingum að bílstjórinn hlaut mar, roða og eymsli. -jss Sló leigubílstjóra í andlitið: Ákærður fyrir líkamsárás Neyðarlög í Basra Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, lýsti á mið- vikudag yfir neyðarástandi í Basra. Tilgangurinn er að reyna að binda enda á síversnandi skærur milli trúarhópa sjía- og súnnímúslima. ÍRAK Bíll valt Einn var fluttur á sjúkrahús með minni háttar meiðsl eftir veltu fólksbíls í Þrengslunum. Slysið varð klukkan þrjú í fyrrinótt. Tildrög þess eru ekki þekkt en aðstæður voru ekki með besta móti, þoka og rigning. LÖGREGLUFRÉTTIR Þingið annist rann- sókn hlerunargagna Stjórnarandstæðingar vilja að forræði yfir rannsókn á símhlerunum og öðrum gögnum frá kaldastríðsárunum verði ekki í höndum ráðherra heldur Alþingis. Þrír ráðherrar eiga að óbreyttu að hafa umsjón með rannsókninni. INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Stjórnar- andstaðan vill að Alþingi annist rannsókn hlerunargagna og annarra gagna er varða öryggi þjóðarinnar á kaldastríðsárunum. GEIR H. HAARDE „Hins vegar finnst mér að menn eigi að fara varlega í fullyrðingar sínar um þessi atriði, tala um að brotin hafi verið þinghelgi...“ SPURNING DAGSINS Ólafur, hefur þú komið í Laugardalsréttir? „Nei, ekki hef ég nú komið þangað en ég hef komið víða við þar sem fólk er að eyrnamerkja sér hjarðir.“ Ólafur Hannibalsson er talsmaður Þjóðr- hreyfingarinnar, sem hefur sakað Framsókn- armenn um að smala nýbúum í Reykjavík í Laugardalshöllina til að greiða atkvæði í utankjörfundarkosningu. LITHÁEN, AP Ríkisstjórnin í Litháen er fallin eftir að einn stjórnarflokk- anna sagði sig úr stjórninni. Algir- das Brazauskas forsætisráðherra sagði formlega af sér á miðvikudag, en Zigmantas Balcytis fjármálaráð- herra var fenginn til þess að stýra bráðabirgðastjórn þangað til ný rík- isstjórn tekur við. „Ég sé enga möguleika til þess að gegna skyldum mínum og segi því af mér ásamt ríkisstjórninni,“ sagði Brazauskas forsætisráðherra á miðvikudag eftir að ljóst var að Verkamannaflokkurinn væri geng- inn úr stjórnarsamstarfinu. Verkamannaflokkurinn hefur yfir 31 þingsæti að ráða á þinginu, sem er skipað 141 þingmanni. Stjórnina skorti þó nokkuð til þess að hafa meirihluta á þingi, þannig að Brazauskas átti engan kost annan en að segja af sér. Valdas Adamkus forseti hefur nú tveggja vikna frest til þess að gera tillögu um nýjan forsætisráð- herra, sem síðan verður borin undir þingið. Verkamannaflokkurinn sagði sig úr stjórnarsamstarfinu eftir að þrír af fimm ráðherrum flokksins höfðu verið ásakaðir um að hafa misnotað fjármuni bæði ríkis og flokks. Ríkisstjórnin hafði áður orðið fyrir áfalli í apríl síðastliðnum þegar annar stjórnarflokkur, Nýtt banda- lag, dró sig út úr stjórninni til þess að mótmæla því að leiðtogi þess flokks, Arturas Paulauskas, hafi verið rek- inn úr stöðu þingforseta. -gb BRAZAUSKAS Á RÍKISSTJÓRNARFUNDI Algirdas Brazauskas sagði af sér ásamt ríkisstjórninni í fyrradag. Zigmantas Balcytis stýrir bráðabirgðastjórn uns ný verður mynduð. Ríkisstjórnin í Litháen fallin eftir að einn stjórnarflokka sagði sig úr samstarfinu: Brazauskas hefur sagt af sér DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs- aldri hefur verið dæmdur í fimmt- án mánaða fangelsi í Hæstarétti fyrir nauðgun. Einn dómaranna skilaði sératkvæði. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa í samkvæmi á Akranesi haft kynmök við stúlku sem ekki gat spornað við því sökum ölvun- ar og svefndrunga. Maðurinn sagði samfarirnar hafa hafist með fullu samþykki stúlkunnar en í þeim miðjum hafi hún frosið og snúist hugur. Hann hafi þá klætt sig og yfirgefið herbergið. Stúlkan segist hafa lagst til svefns í rúmi í lokuðu herbergi og vaknað við það að maðurinn lá ofan á henni og hafði við hana samfarir. Eitthvað var um ósam- ræmi í framburði mannsins að því er fram kemur í dómnum. Maðurinn hafði verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi í Héraðs- dómi Vesturlands og til að greiða stúlkunni sjö hundruð þúsund krónur í bætur, en Hæstiréttur þyngdi dóminn um þrjá mánuði. Einn dómaranna, Ólafur Börk- ur Þorvaldsson, skilaði sér- atkvæði þar sem hann lagði til að ákærði yrði sýknaður af ákærunni. Benti hann aðallega á ósamræmi í framburði tveggja vitna og sagði meint ósamræmi í framburði ákærða ekki svo mikið að það ætti að hafa áhrif til sak- fellingar. - sh Karlmaður á þrítugsaldri dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í Hæstarétti: Nauðgunardómur þyngdur KOSNINGAR Framsóknarflokkurinn sleit í gær formlegum meirihluta- viðræðum sínum, Samfylkingar og Vinstri grænna í Mosfellsbæ. Ástæðan er sögð vera að tillaga framsóknarmanna um jafna skipt- ingu embætta og nefndarsæta hafi ekki hlotið hljómgrunn. Marteinn Magnússon, oddviti Framsóknarmanna, sendi hinum oddvitunum bréf í gærmorgun þar sem hann sagðist vilja slíta við- ræðum. Einhverjar frekari þreif- ingar áttu sér þó stað milli flokk- anna í gærkvöldi. Heimildir herma að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki rætt við neinn flokk um meiri- hlutasamstarf. - sh Óvissa í Mosfellsbæ: Framsókn sleit viðræðunum HÆSTIRÉTTUR Einn dómara skilaði séráliti og lagði til að maðurinn yrði sýknaður. ÞÝSKALAND, AP Sabine Hilschenz, fertug móðir í Þýskalandi, var í gær dæmd í 15 ára fangelsi fyrir að hafa myrt átta af börnum sínum þegar þau voru nýfædd. Hún hlaut þyngsta mögulega dóminn fyrir þessi verk, en að auki lék grunur á að hún hefði myrt níunda barnið sitt árið 1988. Það morð var hins vegar fyrnt og kom því ekki til kasta dómstólsins. Hilschenz átti þrjú börn fyrir, og bar hún að eiginmaður hennar hafi ekki viljað eignast fleiri. Þau voru bæði drykkjusjúk. ■ Fertug þýsk móðir dæmd: Myrti átta af börnum sínum SABINE HILSCHENZ Hin dæmda ásamt lög- manni sínum í réttarsal í Frankfurt an der Oder. FRÉTTABALÐIÐ/AP FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.