Fréttablaðið - 02.06.2006, Side 4

Fréttablaðið - 02.06.2006, Side 4
4 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR E N N E M M / S ÍA / N M 2 17 15 Enn enginn meirihluti Sjálfstæðis- menn á Dalvík hafa slitið viðræðum um meirihlutasamstarf með óháðum sem skipa J-lista. Svanfríður Jónasdóttir, fyrsti maður á J-listanum, sagði óháða bíða átekta eftir framhaldinu. Útskýringar á viðræðuslitunum hafi verið óljósar en óháðir útiloki engan og haldi enn öllum dyrum opnum. DALVÍK KOSNINGAR Sjálfstæðisflokkurinn og K-listinn í Sandgerði undirrit- uðu samning um áframhaldandi meirihlutasamstarf í bæjarstjórn á miðvikudag. Sigurður Valur Ásbjarnarson, efsti maður Sjálf- stæðisflokks mun áfram gegna starfi bæjarstjóra og Óskar Gunn- arsson, oddviti K-listans, verður forseti bæjarstjórnar. Áherslur listanna eru meðal annars að rekstur bæjarfélagsins verði jákvæður öll árin, fram- kvæmdir verði í samræmi við gefin loforð og skuldir standi í stað miðað við eignir. - sh Meirihluti í Sandgerði: K-listi og D-listi áfram saman ÁRBORG Gert var ráð fyrir að meirihlutamyndun sjálfstæðis- manna og framsóknarmanna í Árborg myndi skýrast eftir samn- ingafund flokkanna í gærkvöld. Ellert Tómasson, kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins, taldi í gær að þá myndi liggja fyrir hvort af meirihlutamyndun yrði eða ekki. „Það hefur ekki steytt á neinu ennþá,“ sagði Ellert í gær og stað- festi að skipting embætta hefði lauslega verið rædd en vildi ekki greina frá því. „Ég er í mjög góðu starfi og vil ekki sleppa því,“ sagði Þorvaldur Guðmundsson, oddviti B-lista, spurður um bæjarstjóra- Meirihlutamyndun í Árborg: Rætt um skipt- ingu embætta ÖRYGGISMÁL Gísli Gíslason, hafnar- stjóri Faxaflóahafna, segir örygg- isgæslu við hafnir í Reykjavík ekki hafa slaknað þó að mönnuð sólar- hringsgæsla við kaupskip við Voga- bakka, Ártúnshöfða, Korngarð og vesturhöfn í Reykjavík hafi verið hætt hinn 28. mars síðastliðinn. „Öryggisgæsla hefur verið efld við hafnirnar á undanförnum árum. Hafnarsvæðið er vaktað allan sól- arhringinn með myndavélum og þá er mjög vel fylgst með aðgengi að höfnum.“ Í Fréttablaðinu í gær lýsti Agnar Þór Agnarsson, verkefnisstjóri Öryggismiðstöðvarinnar, því yfir að sú ákvörðun að hætta með mann- aða öryggisgæslu væri ekki í takt við alþjóðlegar áherslur í öryggis- gæslu, þar sem víðast hvar erlend- is væri verið að efla öryggisgæslu. Í grein á vefsvæði Samtaka atvinnulífsins er frá því greint að kostnaður vegna laga sem sett voru til þess að tryggja vernd skipa, áhafna, farþega og farms fyrir hvers kyns ógn af hryðjuverkum, og öðrum ólögmætum aðgerðum væri um 500 milljónir króna á ári. Pétur Reimarsson, verkefnis- stjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, segir kostnaðinn leggjast á atvinnu- lífið. „Þessi kostnaður leggst á fyr- irtæki og neytendur í landinu og er innheimtur af höfnum og skipafé- lögum. Mikil óánægja hefur ríkt vegna þessa kostnaðar.“ - mh Öryggisgæsla við hafnirnar í Reykjavík er nógu góð segir hafnarstjóri: Myndavélar sjá um gæsluna FRÁ HAFNARBAKKANUM Deilt hefur verið um það að undanförnu hvort eðlilegt hafi verið að hætta að manna öryggisgæslu við kaupskip við höfnina í Reykjavík. GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 31.5.2006 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 72,1 72,44 Sterlingspund 134,38 135,04 Evra 91,99 92,51 Dönsk króna 12,335 12,407 Norsk króna 11,816 11,886 Sænsk króna 9,924 9,982 Japanskt jen 0,6375 0,6413 SDR 107,11 107,75 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 127,4115 DÓMSMÁL „Þetta er mikill léttir fyrir íslenska fjölmiðlun,“ sagði Sigurjón M. Egilsson, fréttarit- stjóri Fréttablaðsins, eftir að Hæstiréttur staðfesti sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn 365 prentmiðlum og Kára Jónassyni, ritstjóra Fréttablaðsins. Jónína Benediktsdóttir höfðaði mál eftir að hafa lagt fram kröfu hjá sýslumanninum í Reykjavík um staðfestingu á lögbanni sem hún fékk lagt á birtingu á hluta úr tölvupósti, sem verjandi Jónínu, Hróbjartur Jónatansson, hélt fram fyrir dómi að hefði verið fenginn með ólögmætum hætti úr tölvu- pósthólfi Jónínu. Í dómi Hæstaréttar segir að lög- bannskrafa Jónínu hafi verið of víðtæk. Jafnframt segir að umfjöll- un Fréttablaðsins um aðdraganda Baugsmálsins hafi ekki gengið of nærri einkalífi Jónínu, þó greint hafi verið frá fjárhagsmálefnum hennar, þar sem þau hafi verið samofin fréttaefn- inu, sem varðaði almenn- ing. Hróbjartur Jónatans- son, lögmaður Jónínu, sagði niðurstöðu Hæsta- réttar hafa komið sér verulega á óvart. „Ég hef ekki enn farið nákvæm- lega í gegnum dóminn og get því ekki tjáð mig um forsendur Hæstaréttar fyrir niður- stöðunni. Ég tel þetta vera mjög óheppilega niðurstöðu. Kjarni málsins finnst mér vera þessi; finnst fólki það í lagi að almenning- ur geti lesið einkatölvupóst sinn í fjölmiðlum? Ég held að flestir svari þeirri spurn- ingu neitandi.“ Jón Magnússon, lög- maður 365 prentmiðla og Kára Jónassonar, telur Hæstarétt hafa staðfest eðlileg vinnubrögð Frétta- blaðsins í stóru fréttamáli. „Hæstiréttur segir í dómi sínum að miðað við hvern- ig efnistök Fréttablaðsins voru í málinu þá sé ekkert óeðlilegt við það hvernig fréttirnar af mál- inu voru unnar. Það þýðir, að það var í lagi að birta hluta úr tölvu- póstunum sem um var rætt. Frétta- skrif um Baugsmálið voru eðlileg og réttmæt. Efni tölvupóstbréf- anna hafði fréttagildi. Hæstiréttur segir því, að sú blaðamennska sem var viðhöfð, hafi verið til sóma.“ Sigurjón M. Egilsson telur góð vinnubrögð Fréttablaðsins, við fréttaflutning á aðdraganda Baugs- málsins, hafa verið staðfest af Hæstarétti. „Ef lögbannið hefði verið staðfest hefðu blaðamenn átt það á hættu að vinnugögn þeirra yrðu sótt með ofbeldi, og það af þeim tekið. Það skiptir líka miklu máli að Hæstiréttur skuli staðfesta það að vinnubrögð okkar hafi verið góð, og að við röskuðum ekki frið- helgi Jónínu Benediktsdóttur.“ magnush@frettabladid.is Fréttablaðið sýknað af kröfum Jónínu Hæstiréttur staðfesti í gær sýknudóm héraðsdóms yfir 365 prentmiðlum og Kára Jónassyni, ritstjóra Fréttablaðsins. Ekki gengið of nærri einkalífi Jónínu, segir Hæstiréttur. Afar óheppileg niðurstaða, segir lögmaður Jónínu. SIGURJÓN OG HRÓBJARTUR TAKAST Í HENDUR Máli Jónínu Benediktsdóttur gegn 365 prentmiðlum og Kára Jónassyni lauk í gær. Sigurjón Magnús Egilsson og Hróbjartur Jónat- ansson, lögmaður Jónínu Benediktsdóttur, sjást hér takast í hendur eftir að dómur féll. Kári Jónasson og Jón Magnússon fylgjast með. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN JÓNÍNA BENEDIKTSDÓTTIR SANDGERÐI Sigurður Valur Ásbjarnarson mun áfram gegna starfi bæjarstjóra. KOSNINGAR Fulltrúar Þjóðarhreyf- ingarinnar ætla í dag að leggja fram kæru vegna framkvæmdar atkvæða- greiðslu utan kjörfundar í kosning- unum í Reykjavík síðastliðinn laug- ardag. Talsmenn hreyfingarinnar segja að óskað sé eftir því við yfirkjör- stjórn að engum gögnum varðandi kosningarnar verði eytt fyrr en kæran hafi hlotið löglega afgreiðslu. Beðið sé um aðgang að gögnum sem kunni að varða framkvæmd kosning- anna, svo sem nafnalista þeirra sem neyttu atkvæðisréttar síns utan kjör- fundar, en alls kusu um 9.200 manns fram að kjördegi í Reykjavík. Þá vilja fulltrúar Þjóðarhreyfing- arinnar fá upplýsingar sem nota megi til að kanna hvort hlutfall nýbúa, sem kusu utan kjörfundar, sé óeðlilega hátt. - jh Þjóðarhreyfingin kærir: Vilja aðgang að kjörgögnum Bjóðast til að fangelsa Taylor Sænska þingið samþykkti í gær lagafrumvarp sem heimilar sænskum yfirvöldum að bjóðast til að láta Charles Taylor, fyrrverandi forseta Líberíu sem nú svarar til saka fyrir stríðsglæpi, afplána í Svíþjóð fangelsisdóm þann sem hann kann að verða dæmdur til. SVÍÞJÓÐ STJÓRNMÁL Landstjórn Framsókn- arflokksins fundaði í gærkvöld og samþykkti að boða fund í miðstjórn flokksins á föstudaginn eftir rétta viku. Á miðstjórnarfundinum mun gengi flokksins í nýafstöðnum sveit- arstjórnarkosningum verða rætt. Miðstjórnin, sem í eru 150 manns, fundar að jafnaði tvisvar á ári, vor og haust. Síðasti fundur var haldinn í lok mars og fundurinn að viku liðinni verður því undantekn- ing á reglunni. - sh Framsókn fundaði í gær: Boðar fund í miðstjórninni EFTIR FUNDINN Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, að fundi loknum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.