Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 6
6 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR
DÓMSMÁL Hópur einstaklinga hefur
stefnt íslenskum stjórnvöldum og
Landsvirkjun vegna umhverfis-
mats- og úrskurðar setts umhverf-
isráðherra, Jóns Kristjánssonar,
við mat á umhverfisáhrifum Norð-
lingaölduveitu í Þjórsárverum.
Málið var tekið til aðalmeðferðar í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Hópurinn gerir þá kröfu að
úrskurður umhverfisráðherra frá
því í janúar 2003 og úrskurður
Skipulagsstofnunar frá því í ágúst
2002 verði ógiltir.
Katrín
Theodórsdóttir,
lögmaður ein-
staklinganna
sem að málinu
standa, fór í
gegnum liði sem
að mati einstakl-
inganna geta
hver fyrir sig
leitt til ógilding-
ar á úrskurðun-
um.
Katrín hélt
því fram við
aðalmeðferð
málsins að skipu-
lagsstjóri, Stef-
án Thors, hefði
verið vanhæfur
til þess að fjalla
hlutlaust um
málið þar sem
sonur hans, Stef-
án Gunnar
Thors, hefði verið einn helsti starfs-
maður Landsvirkjunar við gerð
skýrslu vegna Norðlingaölduveitu.
Stefán Gunnar, sem er fagstjóri
skipulags- og umhverfismála VSÓ
Ráðgjafar og hagfræðingur að
mennt, þvertekur fyrir það að
tengsl þeirra feðga hefðu haft áhrif
á vinnu þeirra. Stefán Gunnar kom
að gerð matsskýrslu vegna Norð-
lingaöldu ásamt fleirum. „Um þetta
mál var rætt fyrir fjórum árum og
þá var leitað til lögfræðinga og
umhverfisráðuneytisins, sem stað-
festu að tengsl okkar hefðu ekki
áhrif á vinnubrögð okkar.“
Stefán Thors, skipulagsstjóri,
tekur í sama streng. „Það var farið
aftur yfir þetta þegar Jón Kristj-
ánsson var settur umhverfisráð-
herra í þessu máli og hann komst
að þeirri niðurstöðu að tengsl okkar
hefðu ekki áhrif á vinnu við þetta
verkefni.“
Katrín gerði miklar athuga-
semdir við það að fallist hefði verið
á mótvægisaðgerðir, með úrskurði
setts umhverfisráðherra, sem gætu
valdið miklu umhverfistjóni einar
og sér, án þess að tjón af völdum
þeirra aðgerða hefði verið metið
sérstaklega. Einnig sagði Katrín
hagkvæmnisjónarmið hafa stýrt að
miklu leyti vinnu við umhverfis-
matið, án þess að gert sé grein fyrir
samfélagslegum ávinningi með
einum eða öðrum hætti. Að auki
gerði Katrín grein fyrir því að skort
hefði á lögbundna kynningu á
setlónum, haugsetningu og leiði- og
varnargörðum vegna mannvirkja
austan Arnarfells.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir
það rétt einstaklinga að leita réttar
síns fyrir dómi ef þeir telja á sér
Allar nánari upplýsingar í Þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6
Sími 585 5500 - www.hafnarfjordur.is
���������������� - Rativ - Tungur í leikhúsi - Míkróveröld og morgunstemningar
Ljóð í lauginni - Leikskólalist - Sumarlestur - Brynja og börnin
Aðgangur ókeypis á viðburði nema annað sé tekið fram
��
��
��
��
�
��
��
��
�
���
����� 1.-10. júní 20062. júní
�
Kl. 10:00 Söngurinn ómar um bæinn.
Samsöngur 4. bekkinga á Thorsplani.
Kl. 12:00 Bastien og Bastienne eftir W.A. Mozart. Óperusýning fyrir
börn í Hafnarfjarðarleikhúsinu í samvinnu við barnaóperuna
„Piccolino“ frá Vínarborg. Börnin eru virkir þátttakendur.
Kl. 13.30 Bastien og Bastienne.
Kl. 17:00 Brynja og börnin. Opnun myndlistarsýningar í gamla
Lækjarskóla. Brynja Árnadóttir sýnir verk barna í Lækjarskóla
frá 1985-2000 í bland við hennar eigin verk.
Kl. 19:00 Hljómsveitakeppni í Gamla bókasafninu.
Kl. 20:00 Agnes High Quality leiksýning í Jaðarleikhúsinu.
Athugið að sýningin er á ensku. ������������������������������
� ���������������������������������������
Kl. 19:00 Hljómsveitin Mogadon leikur á A. Hansen
fram eftir kvöldi.
Lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Gera kröfu um
ógildingu úrskurðar
Hópur einstaklinga krefst þess að úrskurðir vegna umhverfismats Norðlinga-
ölduveitu verði ógiltir, vegna mikilla annmarka. Lögmaður sagði tengsl for-
stjóra skipulagsstjóra við einn þeirra sem kom að matsskýrslu, óviðeigandi.
TILLAGA LANDSVIRKJUNAR UM 568 METRA HÁTT LÓN Virkjun í Þjórsárverum hefur verið
deilumál í langa tíma en sátt skapaðist, að minnsta kosti til skamms tíma, um úrskurð Jóns
Kristjánssonar, setts umhverfisráðherra, vegna Norðlingaölduveitu.
KATRÍN
THEODÓRSDÓTTIR
■ STEFNENDUR Í MÁLINU
■ Sigþrúður Jónsdóttir
■ Arnór Karlsson
■ Árdís Jónsdóttir
■ Erlingur Loftsson
■ Finnur Logi Jóhannsson
■ Gísli Már Gíslason
■ Guðmundur Arason
■ Halla Guðmundsdóttir
■ Magnús Hallgrímsson
■ Ólafur Jónsson
■ Ragnhildur Sigurðardóttir
■ Sigrún Helgadóttir
■ Sigrún Valbergsdóttir
■ Sigurður Steinþórsson
■ Svanborg Rannveig Jónsdóttir
■ Tryggvi Felixson
■ Valgerður Erlingsdóttir
■ Þorvaldur Örn Árnason
■ Örn Þorvaldsson
■ Hjörleifur Guttormsson
■ Áhugahópur um verndun Þjórsárvera
LANDSVIRKJUN Þorsteinn Hilmarsson upp-
lýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir það rétt
hvers og eins og leita réttar síns fyrir dómi.
ÞORSTEINN
HILMARSSON
brotið. „Það er lögbundinn réttur
fólks að leita réttar og það er ekk-
ert óeðlilegt þó stefnendur í þessu
máli vilji fara með málið fyrir dóm-
stóla, ef þeir telja á sér brotið.“
magnush@frettabladid.is
KJÖRKASSINN
Er nauðsynlegt að endurskoða
lög um nálgunarbann?
Já 92%
Nei 8%
SPURNING DAGSINS
Þarf að bæta öryggisgæslu við
hafnir landsins?
Segðu þína skoðun á visir.is
DANMÖRK, AP Margrét Þórhildur
Danadrottning gekkst í gær undir
aðgerð á vinstra hné á sjúkrahúsi í
Árósum.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá hirðinni gekk aðgerðin vel, en
í henni fékk hún gervilið í staðinn
fyrir slitinn hnjálið. Gert er ráð
fyrir að drottningin verði útskrif-
uð af sjúkrahúsinu eftir viku. Hún
mun ekki geta sinnt opinberum
embættisverkum næstu tvo mán-
uðina.
Margrét Þórhildur hefur lengi
þjáðst af slitgigt og hefur af þeim
sökum gengist á síðustu árum
undir aðgerðir á báðum hnjám og
baki. - aa
Danadrottning undir hnífinn:
Fékk gervihnjá-
lið í vinstra hné
FJÖLMIÐLAR Fróði hefur ráðið Mika-
el Torfason, fyrrverandi ritstjóra
DV, sem ritstjóra blaðsins Séð og
heyrt. Hann fær einnig það verk-
efni að koma að rekstri Vikunnar
næstu mánuði. Ritstjórum blað-
anna Séð og heyrt og Vikunnar var
sagt upp fyrir mánaðamót og rit-
stjórnarfulltrúa Séð og heyrt
sömuleiðis.
Elín Ragnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Fróða, segir að
ástæða uppsagnanna sé rekstrar-
leg og mikil vinna sé framundan,
verið sé að endurskipuleggja Vik-
una og komi Mikael að þeirri
vinnu. Hann sé þegar mættur til
starfa. Ekki standi til að selja nein
af tímaritum Fróða.
Páll Baldvin Baldvinsson, rit-
stjóri DV, hefur sagt upp Breka
Logasyni, ritstjóra tímaritsins Hér
og nú, og nokkrum blaðamönnum
DV hefur einnig verið sagt upp
starfi. Einn þeirra verður, að sögn
Páls Baldvins, endurráðinn á annað
blað 365 prentmiðla.
Páll Baldvin segir að breyting-
arnar nú séu framhald á þeim
breytingum sem urðu fyrir mán-
uði þegar hætt var að gefa út DV
sem dagblað og farið að gefa það
út sem helgarblað. DV hafi fylgt
tvö undirblöð, Sirkus og Hér og nú.
Ekki náðist í Mikael Torfason í
gær. - ghs
MIKAEL TORFASON Hinn nýi ritstjóri viku-
ritsins Séð og heyrt.
Mikael Torfason er nýr ritstjóri Séð og heyrt hjá Fróða:
Kemur að rekstri Vikunnar