Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 8
8 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR
Plúsferðir · Lágmúla 4 · 105 Reykjavík · Sími 535 2100
www.plusferdir.is
2 fyrir 1
TILBOÐ
Bókaðu strax besta
Plúsferðaverðið
13. júní
6.og 13. júní
5.og 12. jú
ní
6.og 13. jú
ní
29.950kr.
29.950kr.
29.980kr.
33.055kr.
Tyrkland-Marmaris
Netverð á mann miðað við
að 2-4 fullorðnir ferðist saman.
Brottför 6. og 13. júní.
Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á OZAY eða Club Iilayta,
flugvallarskattar og íslensk fararstjórn.
Krít
Netverð á mann miðað við að 2-4 fullorðnir
ferðist saman. Brottför 5. og 12.júní.
Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á Helios, flugvallarskattar og
íslensk fararstjórn.
Portúgal-Albufeira
Netverð á mann miðað við
að 2-4 fullorðnir ferðist saman.
Brottför 13. júní.
Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á Mirachoro, flugvallarskatt-
ar og íslensk fararstjórn.
Mallorca
Netverð á mann miðað við
að 2-4 fullorðnir ferðist saman.
Brottför 6. og 13. júní.
Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur
á Pil Lari Playa, flugvallarskatt-
ar og íslensk fararstjórn.
VEISTU SVARIÐ
1 Hver er borgarlistamaður Reykjavík-ur árið 2006?
2 Hvað eru mörg ár síðan Þorskastríð-inu lauk?
3 Hvað heitir leikstjórnandi NBA-liðs-ins Phoenix Suns?
SVÖR Á SÍÐU 62
STÓRIÐJA „Frumniðurstöður úr
umhverfismati eru jákvæðar og
góðar líkur eru á að við fáum þá
orku sem til þarf svo ég er afar
bjartsýnn og sannfærður um að
hér rísi okkar næsta álver,“ sagði
Logan W. Kruger, forstjóri Cent-
ury Aluminum, móðurfyrirtækis
Norðuráls, sem vill reisa 150 þús-
und tonna álver í Helguvík árið
2010 og stækka það í 250 þúsund
tonna álver þegar fram líða stund-
ir.
Í gær var undirrituð viljayfir-
lýsing milli Norðuráls annars
vegar og Hitaveitu Suðurnesja og
Orkuveitu Reykjavíkur hins vegar
um raforkusölu til fyrsta áfanga
fyrirhugaðs álvers í Helguvík en
það hefur hingað til verið einn
mesti þrándur í götu þessa verk-
efnis. Hafði Orkuveitan áður hafn-
að aðild að málinu en með frekari
rannsóknum og borunum þykir nú
sýnt að fyrirtækið geti mögulega
afgreitt allt að hundrað megawött-
um fyrir fyrsta áfanga álversins
að fjórum árum liðnum.
Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
ítrekar þó að um viljayfirlýsingu
sé að ræða og í henni felist engin
skuldbinding. „Hitaveita Suður-
nesja hefði annars ekki getað
afgreitt þá orku sem á þarf að
halda til að taka fyrsta áfanga
álversins í notkun á þeim tíma
sem um er rætt. Að því leyti er um
mikilvægt skref að ræða. Þetta er
ekki skuldbindandi yfirlýsing
heldur aðeins ákvörðun um að
fara í ákveðin verkefni til að reyna
að verða við beiðnum um orku en
við getum ekki ábyrgst afhend-
ingu og erum ekki að skuldbinda
okkur á nokkurn hátt.“
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, sagði að með
yfirlýsingunni væri mestu hindr-
uninni við byggingu álvers rutt úr
vegi. „Ríkisstjórnin hefur sagt að
þetta sé sá þrándur sem þurft hafi
að ryðja úr vegi en hér eru menn
að finna lausn á því. Hvað Norður-
ál varðar hafa þeir verið að bíða
þess að þetta liggi fyrir og að
gengið verði frá umhverfismati.
En þeir hafa sagt og lýst yfir að að
uppfylltum þessum skilyrðum séu
þeir reiðubúnir og ég dreg ekki í
efa að það sé rétt.“
Forstjóri Century Aluminum
segir að fyrirtækið muni gæta
þess að bygging álversins reynist
efnahagskerfi landsins ekki erfið.
„Við erum að horfa til uppbygg-
ingar þessa álvers eins og annarra
slíkra í litlum skrefum svo áhrifin
á efnahagskerfi landsins verði
minniháttar. Við byrjum á að
byggja 150 þúsund tonna álver og
stækkum það svo í áföngum þegar
fram líða stundir svo að afkasta-
getan verði 250 þúsund tonn á síð-
ari stigum.“ albert@frettabladid.is
FYRIRHUGAÐ ÁLVER NORÐURÁLS Í HELGU-
VÍK Nú eru öll púsl að falla saman og
líkurnar á að 150 þúsund tonna álver verði
að veruleika í Helguvík árið 2010 mjög
góðar að mati framkvæmdaraðila.
Skrefi nær álveri
Forstjóri Century Aluminum er sannfærður um að bygging álvers í Helguvík
verði að veruleika árið 2010 enda sé nánast búið að tryggja þá orku sem til þarf.
FRÁ UNDIRRITUN YFIRLÝSINGARINNAR
Mikil bjartsýni um framhaldið ríkti bæði
hjá forstjóri Century Aluminum, Logan
W. Kruger og ekki síður Árna Sigfússyni,
bæjarstjóra, enda mun álverið skapa fleiri
hundruð störf. MYND/VÍKURFRÉTTIR
INDÓNESÍA, AP Alþjóðlegt neyðar-
hjálparlið hafði í gær ekki náð til
afskekktari staða á svæðinu sem
verst varð úti í jarðskjálftanum á
Jövu um síðustu helgi. Indónesísk
yfirvöld sögðu í gær að staðfest-
ur fjöldi fólks sem fórst af völd-
um skjálftans væri kominn í 6.200
manns.
Um hálf milljón manna er á
vergangi eftir skjálftann, enda
eyðilagði hann híbýli fólks á stóru
svæði. Alþjóðleg aðstoð barst til-
tölulega fljótt, enda er enn unnið
að uppbyggingu eftir fyrri ham-
farir í landinu, ekki síst flóð-
bylgjuna miklu um jólin 2004. En
fólk í afskekktari þorpum kvart-
ar yfir því að engin hjálp hafi bor-
ist því. Mikil úrkoma þessa dag-
ana bætir heldur ekki úr skák
fyrir heimilislaust fólkið.
Staðfest mannfall af völdum
skjálftans hækkaði í 6.234 manns
eftir að tilkynnt var um fund 388
líka til viðbótar í afskekktari
byggðum Bantúl-héraðs, sem
varð verst úti í hamförunum.
Talsmaður indónesíska félags-
málaráðuneytisins greindi frá
þessu.
- aa
Staðfest mannfall í jarðskjálftanum á Jövu hækkar stöðugt:
Mikill fjöldi þarf neyðarhjálp
ALLT Í RÚST Þorpsbúi í Yogyakarta á Jövu í rústum keramikverslunar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMKEPPNI Félag íslenskra bifreiða-
eigenda segir tölur Olíuverslunar
Íslands, Olís, um tæplega hundrað
milljóna kostnaðarauka vegna olíu-
gjaldsins ýta undir málstað þeirra.
FÍB telur olíufélögin bæta sér upp
herta samkeppni á díselmarkaði og
lægri álagningu með hærri
álagningu á bensínið.
„Stóru olíufélögin hafa
lýst því yfir að stóraukinn
kostnaður hafi fylgt olíu-
gjaldinu. Við mælum það
hins vegar öfugt í okkar
útreikningum, því álagn-
ingin á díselolíu lækkaði í
kjölfarið. Það rennir stoð-
um undir okkar ábending-
ar sem byggja á þeim gögn-
um sem öll systurfélög okkar í
nágrannalöndunum byggja á og eru
sú viðmiðun sem heimsmarkaður-
inn horfir á,“ segir Runólfur Ólafs-
son, framkvæmdastjóri samtak-
anna.
Samúel Guðmundsson,
framkvæmdastjóri vöru-
stýringarsviðs Olís, segir
álagningartölurnar sem
FÍB styðjist við ekki réttar.
„Við skiljum ekki hvaða
tölur samtökin horfa á. Þær
standast ekki samkvæmt
okkar bókum.“ Beðin um að
birta réttu tölurnar svarar
Samúel: „Eðli málsins sam-
kvæmt birtum við ekki
framlegðartölur okkar, enda veit ég
ekki um neitt fyrirtæki sem gerir
slíkt. Ég vil hins vegar ítreka að
álagning er frjáls og Olís býður við-
skiptavinum upp á samkeppnishæft
verð og góða þjónustu.“ - gag
RUNÓLFUR ÓLAFS-
SON Framkvæmda-
stjóri FÍB.
BENSÍNIÐ AFGREITT FÍB segir bensínkaup-
endur borga fyrir samkeppni.
FÍB stendur við fullyrðingar sínar um álagningu stóru olíufélaganna:
Olís segir tölurnar rangar
DÓMSMÁL Maður hefur verið dæmd-
ur til að greiða öðrum ríflega 220
þúsund krónur í miskabætur og 120
þúsund í málskostnað vegna líkams-
árásar. Farið hafði verið fram á
tæpar 780 þúsund krónur.
Mennirnir voru í áhöfn Sunnu-
tinds frá Djúpavogi fyrir rúmum
tveimur árum. Skipið var í höfn á
Seyðisfirði og sátu mennirnir ölvað-
ir á kaffihúsi í bænum er árásin var
gerð. Hinn dæmdi segir hinn hafa
manað sig upp í að kýla sig, því
engum hefði tekist að rota sig í boxi
sem hann stundaði. Hinn segist hafa
verið sleginn án fyrirvara. Við
höggið höfuðkúpubrotnaði hann.
- gag
Höfuðkúpubrotnaði við högg:
Dæmdar 220
þúsund krónur