Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 12
12 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR
���������������������
�������������������
��������������������������������������������������������������������������������������
���� �������������������������������������������������������� ���������������������
�
����������������� ��������� ��������� �������������������������������������
����������������������������������������������������������������� ������������
�����������������������
SVÍÞJÓÐ Hörð gagnrýni hefur
komið fram í kjölfarið á sjón-
varpsþættinum Uppdrag Gransk-
ning í Svíþjóð síðustu daga þar
sem sýnt er myndband með
nöktum hermönnum á skotæfing-
um með sprengjuvörpu. Hermenn-
irnir liggja í grasinu með sprengju-
vörpuna í fanginu og svo heyrist
þegar þeir brenna sig á henni.
Myndbandið var tekið árið 2004
af hermönnunum sjálfum. Yfir-
menn hersins hafa ekki gefið neinar
skýringar á því af hverju her-
mennirnir, sem gegna herskyldu,
þurfa að vera naktir á heræfing-
unni, að sögn vefútgáfu Afton-
bladet. - ghs
Sjónvarpsþáttur gagnrýndur:
Berir hermenn
á skotæfingu
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær konu í sex
mánaða fangelsi, skilorðsbundið í
þrjú ár, fyrir margþætt skjala-
fals. Ákæruliðir sem voru níu
talsins vörðuðu fölsun á undir-
skriftum á skuldabréfum, víxlum
og fleiru upp á ríflega 7,2 milljónir
króna.
Konan var í sambúð til ársins
2002. Í marsmánuði 2001 komst
sambýlismaðurinn að því að fast-
eign sem hann átti hafði verið aug-
lýst á framhaldsuppboði. Komst
hann enn fremur að raun um að
það væri vegna skulda sem hann
kannaðist ekki við að hafa sam-
þykkt eða heimilað að fasteignin
yrði sett að veði fyrir. Konan hafði
áður reynt að leysa skuldamál sín
með því að falsa nafn sambýlis-
mannsins, en nú var mælirinn
fullur. Sambýlismaðurinn kærði
meintar falsanir til sýslumannsins
í Kópavogi og fór fram á opinbera
rannsókn á því hvort konan hefði
falsað nafn hans á ýmis skjöl.
Konan neitaði sök og var því
leitað álits sænsks rithandar-
sérfræðings, sem kvað upp úr með
að sambýlismaðurinn hefði ekki
undirritað umrædd skjöl.
Dómurinn kvað liggja fyrir að
konan hefði framvísað þeim skjöl-
um sem ákæran varðaði og notið
góðs af því. Auk fangelsisdómsins
var henni gert að greiða allan
sakarkostnað, ríflega 460 þúsund
krónur. -jss
SKJALAFALS Sambýlismaðurinn kannaðist
ekki við að hafa undirritað skuldabréf, víxla
og fleiri skjöl.
Kona fékk skilorðsbundinn dóm í Héraðsdómi Reykjaness:
Sex mánuðir fyrir skjalafals
FJÖR Í ÍRAK Tveir írakskir piltar stinga sér
til sunds í fljótið Efrat. Miklir hitar eru nú í
Írak og leita börn og unglingar allra leiða
til að kæla sig niður. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MOSKVA, AP Sergei Lavrov,
utanríkisráðherra Rúss-
lands, ítrekaði á mánudag
gagnrýni Rússlands-
stjórnar á Evrópuráðið,
nú er Rússar eru í fyrsta
sinn að taka við for-
mennsku í ráðinu.
Evrópuráðið, sem 46
Evrópuþjóðir eiga aðild
að og hefur fremur öðru
því hlutverki að gegna að
standa vörð um Mann-
réttindasáttmála Evrópu,
er fyrsta samevrópska
stofnunin sem Rússar veita for-
ystu. Búist er við að rússneskir
ráðamenn muni notfæra sér
formennskumisserið til að koma
böndum á gagnrýni þá sem ráðið
hefur ítrekað beint gegn Rússum
frá því þeir fengu aðild að ráðinu
fyrir áratug.
Lavrov sakar ráðið um
tvískinnung, að það beiti
tvöföldum mælikvarða
er það gagnrýnir Rússa
fyrir hluti sem látnir
væru óátaldir hjá öðrum
aðildarþjóðum. Ráðið
hefur einkum gagnrýnt
rússnesk stjórnvöld fyrir
gerðir þeirra í Tsjetsjeníu,
fyrir meint mannréttinda-
brot af hálfu rússnesku
lögreglunnar, svo og
fyrir brot gegn prent-,
félaga- og trúfrelsi sem
og réttindum minnihluta-
hópa.
Rene van der Linden, formaður
þingmannasamkomu Evrópu-
ráðsins, sagði í yfirlýsingu að
formennskumisseri Rússa gæfi
þeim tækifæri til að „sýna að
Rússland sé hluti af lýðræðis-
legri Evrópu, á jafnræðisgrund-
velli.“ - aa
SERGEI LAVROV
Rússar taka við formennsku í Evrópuráðinu:
Vilja slá á gagnrýni
DÓMSMÁL Kona var fundin sek um
ölvunarakstur fyrir Héraðsdómi
Vesturlands í gær og var henni
gert að greiða tæpar 300 þúsund
krónur í sekt auk þess sem hún
missir ökuréttindi sín í þrjú ár.
Var konan dæmd fyrir tvö brot
vegna ölvunaraksturs. Í báðum
tilvikum mældist áfengismagn í
blóði hennar vel yfir tveimur
prómillum sem þýðir umtalsverða
ölvun. Hún hefur ekki áður gerst
brotleg við lög svo vitað sé. - aöe
Fundin sek um ölvunarakstur:
Sektuð og svipt
ökuleyfinu
Meirihluti M og O-lista Samkomu-
lag hefur náðst um myndun meirihluta
M-lista xmotor og O-lista Samstarfs
til sóknar í sameinuðu sveitarfélagi
Skeggjastaða -og Þórshafnarhrepps á
komandi kjörtímabili. Farið verður þess
á leit að Björn Ingimarsson gegni starfi
sveitarstjóra. Málefnasamningur verður
undirritaður á næstunni.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
AUSTUR-TÍMOR, AP Mikill þrýstingur
er á Mari Alkatiri, forsætis-
ráðherra Austur-Tímor, um að
segja af sér vegna ástandsins í
landinu, þar sem hundruð
óánægðra hermanna hafa efnt til
óeirða. Forsætisráðherranum
hefur ekki tekist að hafa neina
stjórn á ástandinu og meira en
tvö þúsund erlendum friðar-
gæsluliðum, sem komnir eru til
Austur-Tímor, hefur ekki tekist
að stilla til friðar.
„Lít ég út fyrir að vera
uppreisnarmaður?“ spyr Alfredo
Reinado, leiðtogi uppreisnar-
sveitanna úr hernum, sem segist
ekki ætla að láta af baráttu sinni
fyrr en forsætisráðherrann segi
af sér. „Ég vil bara vera góður
borgari og vil að landið mitt eigi
góða framtíð.“
Reinado var herforingi þangað
til hann var rekinn í apríl síðast-
liðnum ásamt um það bil sex
hundruð hermönnum, sem höfðu
kvartað undan því að þeim væri
mismunað innan hersins.
Átök milli hinna reknu her-
manna og þeirra sem eftir voru
hafa þróast yfir í almennar óeirðir
þar sem fólk fer um ruplandi og
rænandi, setur eld að húsum og
tugir þúsunda hafa ekki séð sér
annað fært en að flýja höfuðborg-
ina Dili þar sem ástandið hefur
verið hvað verst.
Hátt í þrjátíu manns hafa týnt
lífi í þessum átökum, þar á meðal
fimm manns í átökum þann 28.
apríl sem Reinado segir að hafi
byrjað sem friðsamlegur mót-
mælafundur óánægðra hermanna
en snúist upp í óeirðir þegar
stjórnarherinn hóf skothríð.
Reinado kennir forsætisráð-
herranum alfarið um ástandið og
Xanana Gusmao forseti hefur
einnig lýst sökinni á hendur Alka-
tiri, sem þó lætur þessar ásakanir
sem vind um eyru þjóta og segist
ekki ætla að segja af sér, þrátt
fyrir sívaxandi þrýsting.
„Alkatiri verður að segja af sér
og fara fyrir dóm vegna allra
þeirra glæpa sem hann hefur
fyrirskipað,“ segir Reinado.
Reinado hafði barist lengi gegn
hernámi Indónesíu og lítur á sig
sem mann fólksins, og þar með
lítur hann sjálfkrafa á sig sem
samherja forsetans, sem var helsti
leiðtogi sjálfstæðisbaráttunnar.
gudsteinn@frettabladid.is
ALFREDO REINADO Leiðtogi uppreisnarsveita hersins segist ekki vera sökudólgurinn, heldur
sé ástandið Alkatiri forsætisráðherra að kenna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ráðherrann
þarf að víkja
Leiðtogi uppreisnarmanna úr hernum á Austur-Tímor
krefst þess að Alkatiri forsætisráðherra víki áður en
friður getur orðið að veruleika.
FINNLAND, AP Finnar töluðu meira í
farsíma en fastlínusíma á síðasta
ári, en það er í fyrsta sinn sem það
gerist frá því farsímabyltingin
hófst. Þetta kemur fram í nýjum
tölum frá finnsku hagstofunni.
Í heimalandi Nokia, stærsta far-
símaframleiðanda heims, töluðu
farsímanotendur alls í 10,8 milljón-
ir mínútna í síma sína í fyrra. Í
finnska símakerfinu voru fastlínu-
símtöl hins vegar aðeins 7,6 millj-
ónir mínútna á árinu 2005, en voru
11,4 milljónir mínútna árið áður.
- aa
Farsímabyltingin í Finnlandi:
Færri nota fastlínu
FINNSKUR FARSÍMI Finnar töluðu mun
meira í far- en fastlínusíma í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP