Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 13
FÖSTUDAGUR 2. júní 2006 13
KJARAMÁL Laun ófaglærðra starfs-
manna í fullu starfi við Sjúkrahús-
ið á Akranesi hækka um allt að
átján þúsund krónur á mánuði frá
1. maí.
Ásgeir Ásgeirsson, skrifstofu-
stjóri hjá sjúkrahúsinu, segir
launamun milli starfsmanna ríkis
og bæja hafi verið jafnaðan: „Það
er af hinu góða,“ segir hann, þó
hann efist um að margir starfs-
mannanna nái átján þúsund króna
hækkuninni.
Formaður Verkalýðsfélags
Akraness, Vilhjálmur Birgisson,
telur starfsmennina nokkuð vel
mega við una sé miðað við verka-
fólk sem starfi við sambærileg
störf á almennum vinnumarkaði,
því tekist hafi að jafna launamun-
inn sem ríkt hafi á milli starfs-
manna sem starfa hjá ríkinu á við
starfsmenn sveitarfélaganna sem
starfa við sambærileg störf.
„Núna verður það skýlaus
krafa að laun verkafólks á hinum
almenna vinnumarkaði verði lag-
færð til fulls á við þær hækkanir
sem hafa orðið hjá sveitarfélögun-
um og ríkinu. Ef það ekki gerist þá
er ekkert annað í stöðunni en að
sækja þær lagfæringar fyrir
verkafólk á hinum almenna vinnu-
markaði með fullu afli,“ ritar for-
maðurinn á vef félagsins.
- gag
Laun ófaglærðra á sjúkrahúsinu á Akranesi hækka:
Allt að 18.000 króna hækkun
VILHJÁLMUR BIRGISSON Formaður
Verkalýðsfélags Akraness segir næst að
jafna muninn milli sambærilegra starfa
á almenna vinnumarkaðnum og þeim
opinbera.
STYRKVEITING Alnæmissamtökin á
Íslandi hafa fengið fjárstyrk frá
Kaupangi en fyrirtækið hefur áður
veitt slíka styrki.
Alnæmissamtökin hafa tvö verk-
efni í sigtinu og er áætlað að nota
styrkinn í annað hvort þeirra. Ann-
ars vegar er um að ræða fræðslu-
fundi og forvarnir til nemenda í
níunda og tíunda bekk grunnskóla
en það verður í þriðja skiptið sem
þeir verða haldnir.
Hitt verkefnið er langþráður
draumur samtakanna en það er að
efna til ráðstefnu til stuðnings HIV-
jákvæðum á Íslandi. - gþg
Alnæmissamtökin fá styrk:
Með tvö verk-
efni í sigtinu
FRÁ STYRKVEITINGUNNI. Á myndinni
eru Ingi Hans Ágústsson varaformaður
Alnæmissamtakanna, Jóhannes Sigurðsson
frá Kaupangi og Birna Þórðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Alnæmissamtakanna.
SAMTÖK Ásdís Halla Bragadóttir,
forstjóri Byko, hefur tekið að sér
hlutverk verndara UNIFEM, þró-
unarsjóðs Sam-
einuðu þjóðanna
í þágu kvenna, á
Íslandi. Í því felst
meðal annars að
koma fram fyrir
hönd félagsins og
vekja almenning
til vitundar um
starfsemina.
Í tilkynningu
frá UNIFEM
kemur fram að
Ásdís Halla hafi um árabil verið
málsvari málefna sem tengjast
starfsáherslum UNIFEM, til
dæmis hvatt konur til stjórnmála-
þátttöku. Ásdís mun gegna þessu
hlutverki næstu tvö árin hið
minnsta. - sh
Ásdís Halla Bragadóttir:
Verður verndari
UNIFEM í tvö ár
ÁSDÍS HALLA
BRAGADÓTTIR
PENINGAR Seðlabanki Íslands hefur
veitt frest til 1. júní 2007 til að inn-
leysa gamla 10, 50 og 100 króna
seðla. Að þeim fresti liðnum verða
seðlarnir ekki lengur gjaldgengir
í viðskiptum.
Í lok apríl á þessu ári voru um
119 milljónir króna af þessum
gömlu seðlum í umferð. Árið 1984
var útgáfu 10 króna seðla hætt,
þremur árum seinna var útgáfu 50
króna seðla hætt og árið 1995 var
útgáfu 100 króna seðla hætt. Mynt
með sömu verðgildum var slegin í
staðinn. Árið 2005 var ákveðið að
þessir seðlar skyldu innkallaðir og
þar til 1. júní 2007 ber bönkum
skylda til að taka við þeim. - sh
Gömlu seðlarnir innkallaðir:
119 milljónir
króna í umferð
NEYÐARHJÁLP Hjálparstarf kirkj-
unnar hefur í kjölfar jarðskjálft-
anna á Jövu ákveðið að senda eina
milljón króna til neyðaraðstoðar.
Fyrsta beiðni Alþjóðaneyðarhjálp-
ar kirkna nam rúmum 200 milljón-
um króna. Félags- og áfallahjálp
verður veitt fórnarlömbum
skjálftans. Forvarnir, meðal ann-
ars vegna alnæmis, eru fléttaðar
inn í starfið og stuðlað verður að
skjótri aðhlynningu slasaðra.
Tekið er við framlögum í söfn-
unarsíma Hjálparstofnunar kirkj-
unnar 907-2002 og hjá Rauða
krossinum dragast 1000 krónur af
símreikningnum sé hringt í 907-
2020. - sgj
Hörmungarnar á Jövu:
Kirkjan sendir
eina milljón
FJALLABYGGÐ Ákvörðun um mynd-
un meirihluta Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks í Fjallabyggð,
hinu nýsameinaða sveitarfélagi
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, var
tekin á sameiginlegum fundi flokk-
anna í gærkvöldi.
Staða bæjarstjóra verður aug-
lýst og málefnaáherslur meirihlut-
ans kynntar á næstu dögum. Birkir
J. Jónsson, bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokks, segir það markmið
meirihlutans að sjá til þess að íbúar
beggja bæja hins nýsameinaða
sveitarfélags finni samhug sín á
milli og á von á farsælu samstarfi
innan nýrrar bæjarstjórnar. -sgj
Meirihluti í Fjallabyggð:
Auglýst eftir
bæjarstjóra