Fréttablaðið - 02.06.2006, Page 20

Fréttablaðið - 02.06.2006, Page 20
20 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR Metsala í Þýskalandi! edda.is „Æsispennandi glæpasaga sem gefur lesandanum færi á að taka þátt í að leysa flókna morðgátu“ – Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljósið „Góð glæpasaga ... þessi lesandi hérna var eldfljótur að gleypa í sig Aftureldingu og naut lestursins í hvívetna.“ – Ingvi Þór Kormáksson, bokmenntir.is „Viktor grípur lesandann traustataki, tekur á rás og gerir sig ekki líklegan til að sleppa.“ – Bergsteinn Sigurðsson, Fbl. Nýjasta bók Viktors Arnars Ingólfssonar, Afturelding fór beint á metsölulistann í Þýskalandi eftir nokkra daga í sölu. Komin í kilju RÍKISÚTVARPIÐ Breytingartillögur við frumvarp menntamálaráð- herra um Ríkisútvarpið hafa verið lagðar fram á Alþingi ásamt við- bótarnefndaráliti meirihluta menntamálanefndar. Inn í frumvarpið er búið að fella ákvæði sem bannar RÚV að eiga hlut í öðru fyrirtæki sem gefur út dagblað eða rekur útvarpsstöð. Þá er gert ráð fyrir því að mál- efni RÚV heyri undir upplýsinga- lög, en sæti ekki ákvæðum um hlutafélög. Á þetta lagði stjórnar- andstaðan ríka áherslu. Í lögunum er nú einnig gert ráð fyrir að Ríkisútvarpinu sé óheimilt að selja frá sér verðmæti sem hafi menningarleg og söguleg gildi fyrir íslensku þjóðina og varðveitt eru hjá fyrirtækinu. Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar, fylgdi úr hlaði viðbót við meiri- hlutaálit á Alþingi í vikunni. Hann sagði að hlutafélagið yrði að geta selt eignir, til dæmis vegna endur- nýjunar tækjabúnaðar, rétt eins og önnur félög. Mörður Árnason, Samfylking- unni, mælti fyrir minnihlutaáliti og sagði meðal annars að engin til- raun væri enn gerð til þess að tempra vald ráðherra yfir Ríkisút- varpinu hf. Stjórnarandstaðan leggur enn til að frumvarpinu verði vísað frá. - jh Breytingar á frumvarpi um Ríkisútvarpið breyta ekki afstöðu stjórnarandstöðu: Vilja enn vísa frumvarpinu frá RÍKISÚTVARPIÐ Frumvarp um RÚV var rætt á Alþingi í vikunni. Minnihlutin leggur enn til að frumvarpinu verði vísað frá þrátt fyrir breytingar sem gerðar hafa verið á því. Alnæmisfaraldurinn stöðvaður Í fyrsta sinn í sögunni hefur náðst árangur gegn útbreiðslu alnæmis í heiminum en fjöldi nýrra tilvika hefur ekki aukist sam- kvæmt nýrri skýrslu. Enn er þó mikið óunnið ennþá. Einhverfa og málmar Franskir vísindamenn kanna nú hvort tengsl geti verið milli einhverfu og þungmálma, en reynist tilgáta þeirra rétt verður mögu- lega hægt að finna lyf sem hreinsað gæti slíka þungmálma úr líkamanum. TÆKNI OG VÍSINDI SLÖKKVILIÐ Landssamband slökkvi- liðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti ályktun um öryggis- mál á þingi sínu sem haldið var nýverið. Þar segir meðal annars að sam- eina þurfi slökkviliðin á Suðvesturlandi í eitt öflugt björgunarlið. Í ályktuninni segir að orðið slökkvilið sé rangnefni fyrir það alhliða björg- unarlið sem slökkvilið eru orðin. Slökkvilið sinni margháttaðri björgunarstarfsemi langt umfram það sem almenningi er kunnugt um. Þar megi nefna sjúkraflutninga og margháttaða starfsemi sem er af þeim meiði, svo sem björgun og meðhöndlun bráðveikra og slasaðra sem séu í eðli sínu björgunarstörf þar sem kappkostað sé fyrst og fremst að bjarga mannslífum. Einnig megi nefna viðbrögð við eiturefnaslys- um. Það myndi hafa mikil samlegð- aráhrif að efla og stækka slökkvi- liðin á suðvesturhorninu og ætti ríkisstjórnin og sveitarfélögin án tafar að semja um sameiningu þeirra. Í ályktuninni er einnig óskað eftir að virðisaukaskattur og vörugjald af tækjum og búnaði fyrir slökkvilið verði afnuminn og Brunamálaskólinn verði efldur með auknum fárveitingum. Þá er lagt til að gerð verði rannsókn á lífaldri slökkviliðsmanna og að þeim verði gert kleift að hætta störfum um 55 ára aldur án skerð- ingar lífeyrissjóðsgreiðslna. Vernharð Guðnason var ein- róma endurkjörinn formaður sam- bandsins til tveggja ára og Sverr- ir Björn Björnsson var endurkjörinn í embætti varafor- manns. - sh Ályktun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna: Vilja frekari sameiningu slökkviliða SLÖKKVISTARFI LOKIÐ Slökkviliðsmenn hvíla sig eftir að hafa lokið slökkvistarfi á Fiskislóð fyrir nokkru. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR VERNHARÐ GUÐNASON DANMÖRK Danskir karlmenn fela sig á klósettum en bandarískir karlar fela sig í skúrum og fata- skápum. Þetta kemur fram á fréttavef danska blaðsins Politik- en. Fyrr í vikunni birti danska blaðið niðurstöður viðamikillar rannsóknar sem sýndi fram á að danskir karlmenn eyða nú tveim- ur tímum meira á klósettinu í viku hverri en fyrir fjórum árum. Blaðamaður bandaríska blaðsins New York Times rakst á greinina, og komst að því að bandarískir karlar nota jafnframt fataskápa, kjallara, háaloft og skúra sem felustaði. Felustaðirnir uppfylla karl- mannlega þörf, að sögn James B. Twitchell, bandarísks höfundar bókarinnar „Where Men Hide,“ eða „Þar sem karlar fela sig“. -smk Danir og Bandaríkjamenn: Karlmenn fela sig á klósettum FRAKKLAND, AP Af litlum neista – í þessu tilviki handtöku – blossuðu aftur upp óeirðir í einu af úthverf- um Parísar aðfaranótt þriðjudags og endurtóku þær sig næstu nótt á eftir. Ungmenni gengu berserks- gang með hornaboltakylfum og bensínsprengjum. Bílar, opinber- ar byggingar og lögreglumenn urðu helst fyrir barðinu á reiði ungmennanna. Rólegt var þó í fyrrinótt, en óspektirnar minna óþægilega á þá hamslausu öldu óeirða sem gekk yfir úthverfi Parísar og annarra franskra borga síðla síðasta árs og sýndu að óánægjan kraumar enn í þessum hverfum innflytjenda þrátt fyrir margvíslegar aðgerðir stjórnvalda til þess að ná tökum á vandamálum eins og atvinnuleysi ungmenna og kynþáttamisrétti. - aa Óspektir í úthverfum Parísar: Óánægjan kraumar enn RÁÐHERRA Á VETTVANGI Nicolas Sarkozy innanríkisráðherra á vettvangi í einu hverfa Parísar þar sem til óspekta hefur komið. NORDICPHOTOS/AFP ÖÐRUVÍSI HLAUPAHJÓL Þótt þetta sérkennilega rafknúna farartæki hafi ekki notið þeirra vinsælda á almennum mark- aði sem framleiðendur þess áttu von á fyrir fimm árum, þá nýtur það æ meiri vinsælda meðal lögreglumanna og öryggisvarða víða um heim. Þessi öryggisvörður starfar í Los Angeles í Bandaríkjunum, og virðist alsæll með farartækið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LANDHELGISGÆSLAN Lagt var í leið- angur í vikunni eftir að Landhelg- isgæslunni hafði borist tilkynning um að hvalshræ væri á reki við Gróttu. Kom í ljós að þarna var á ferð 6 metra löng hrefna sem skapaði hættu fyrir smærri báta. Einnig var hætta á að hræið ræki á fjörur þar sem rotnun með til- heyrandi ólykt gæti orðið til ama. Áhöfn björgunarskips Lands- bjargar og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar hófu leit að hræinu. Þegar það fannst komu sprengjusérfræðingar Landhelg- isgæslunnar sprengiefni fyrir ofan á því og sökktu því. - jss Hrefna á reki: Gæslan eyddi hvalshræi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.