Fréttablaðið - 02.06.2006, Page 24
2. júní 2006 FÖSTUDAGUR24
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
> Fjöldi útvarpsstöðva
Margir karlar híma einir
í herbergi úti í bæ, eru
hættir að hafa samband við
börnin, hlaða upp skuldum
og missa öll tengsl. Tveggja
mánaða atvinnuleysi dugar
til að rugla svefnvenjum
fólks og smám saman hætta
þeir að vakna á morgnana.
Eftir því sem lengra líður
þeim mun meiri verður
kvíðinn og skömmin og
stöðugt verður erfiðara að
koma sér af stað. Karla-
smiðjan miðar að því að
efla karlkyns einstæðinga
þannig að þeir geti tekist á
við sitt eigið líf.
Karlkyns einstæðingum fer ört
fjölgandi í hópi viðskiptavina
Þjónustumiðstöðva Reykjavíkur-
borgar. Þessir menn eiga það sam-
eiginlegt að hafa misst fótanna í
lífinu. Þeir hafa verið atvinnulausir
og margir þeirra hafa átt við veik-
indi og stundum neyslu að stríða.
Margir þeirra skulda mikið. Þeir
geta ekki staðið í skilum og sjá
ekki fram á að komast út á vinnu-
markaðinn því að heimilt er að
taka 75 prósent af tekjum þeirra
upp í meðlagsskuldir. Af 25
prósentunum geta þeir ekki lifað.
Erfitt að komast af stað
Guðmundur Fjalar Ísfeld er einn
af þeim sem sækja Karlasmiðjuna,
samstarfsverkefni á vegum
Tryggingastofnunar og Velferðar-
sviðs Reykjavíkurborgar. Hann
hefur átt við langtíma atvinnu-
leysi og veikindi að stríða og átt í
erfiðleikum með að koma sér í
gang aftur. „Karlasmiðjan hjálpar
manni að vakna á morgnana. Ég
var alltaf að stökkva inn í vinnu og
datt svo út úr henni strax aftur
þannig að mig vantaði eitthvað
sem væri hnitmiðað og
einstaklingsmiðað þar sem ekki
væru gerðar sömu kröfur og á
vinnustað,“ segir Guðmundur.
Guðmundur hefur unnið fyrir
sér frá tólf ára aldri. Hann var
langt kominn með matreiðslunám
þegar hann uppgötvaði að kokka-
starfið hentaði honum ekki. Áður
hafði hann unnið ýmis almenn
störf, til dæmis hjá Landspítalanum.
„Þegar maður hefur dottið út úr
vinnu er ofboðslega erfitt að
komast af stað aftur. Það tekur
alltaf meira og meira á eftir því
sem tíminn líður,“ segir hann.
Viljum meiri hópavinnu
Karlasmiðjan er kennd í þremur
sex mánaða tímabilum og stendur
fyrsti hlutinn í Karlasmiðju 2 nú
yfir. Þátttakendur eru tæplega
tuttugu. Þeir eru misduglegir að
mæta en nú hefur myndast kjarni
sem mætir reglulega. Guðmundur
segir að andinn sé góður þó að
þátttakendurnir komi úr mismun-
andi áttum. Í Karlasmiðjunni fer
fram kennsla í hefðbundnum
fögum eins og íslensku, stærð-
fræði, ensku og félagsfræði. Til
viðbótar er kennsla í sjálfseflingu,
fjármálum, námstækni, næringar-
fræði og tölvum svo að dæmi séu
nefnd. Eftir því sem á líður þyngist
námið og um leið kröfurnar.
Þátttakendurnir fá punkta sem
þeir geta nýtt sér til stúdents-
prófs. „Við viljum meiri hópvinnu
og verkefni af einhverju tagi til að
þjappa okkur saman,“ segir
Guðmundur sem stefnir að því að
ljúka stúdentsprófi.
„Við erum flestallir með fjár-
málin í hönk þannig að fjármála-
námskeiðið hefur reynst vel. Þar
er kennt hvernig á að halda utan
um fjármálin okkar. Við fáum að
vita hver staða okkar er og lærum
að vinna okkur út úr því svo að við
getum komist á beina braut í fjár-
málunum,“ segir hann.
Ræðum alla hluti
Stefanía Sörheller er verkefnis-
stjóri hjá Velferðarsviði Reykja-
víkurborgar og Eymundur Garðar
Hannesson er félagsráðgjafi og
situr jafnframt í stýrihópi Karla-
smiðjunnar. Þau láta vel af reynsl-
unni með Karlasmiðjuna og benda
á að verkefnið sé í mótun, þátttak-
endur geti komið með hugmyndir
og tillögur að því sem betur má
fara. Í upphafi gera þátttakendurnir
samning við félagsráðgjafann sinn
og eru síðan í reglulegu sambandi
við hann. Eymundur segir að reynt
sé að vanda valið á þátttakendum
þannig brottfall verði minna.
Þannig hefur hann þrjá þátttak-
endur á sínum vegum og reynir að
hitta þá tvisvar í mánuði.
„Hvað erfiðasta hópinn varðar
er mikilvægast að fá mennina til að
mæta reglulega klukkan níu á
morgnana, taka þátt í félagslífinu,
tengjast hópnum og vera í sam-
bandi við félagsráðgjafa eða sér-
fræðing þannig að hægt sé að meta
þörfina fyrir aðra aðstoð. Við
reynum að skoða alla hluti, ræðum
meðal annars samskipti við
fjölskylduna sem oft eru mjög
brotin,“ segir Eymundur.
LÁTA VEL AF KARLASMIÐJUNNI
Stefanía Sörheller, verkefnisstjóri hjá
Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, og
Eymundur Garðar Hannesson félagsráðgjafi
og fulltrúi í stýrihópi Karlasmiðjunnar. Þau
láta vel af reynslunni með Karlasmiðjuna.
GUÐMUNDUR FJALAR ÍSFELD Þátttakendur
í Karlasmiðjunni eru tæplega tuttugu og
hefur nú myndast fastur kjarni sem alltaf
mætir. Guðmundur Fjalar Ísfeld er þátttak-
andi í Karlasmiðjunni en hann vantar ekki
mikið til að ljúka stúdentsprófi. Námið í
Karlasmiðjunni getur hann fengið metið til
stúdentsprófs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hjálpar manni að vakna
VILJUM MEIRI HÓPAVINNU Guðmundur Fjalar Ísfeld er einn af körlunum sem sækja Karlasmiðjuna núna. Hann hefur átt við veikindi og
langtíma atvinnuleysi að stríða og telur að Karlasmiðjan hafi hjálpað sér í gang aftur. „Þegar maður hefur dottið út úr vinnu er ofboðslega
erfitt að komast af stað aftur,“ segir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ísland hefur boðið sig fram til setu í öryggis-
ráðinu árin 2009 til 2010, en þar sem önnur
Vestur-Evrópuríki hafa jafnframt boðið sig fram
mun koma til kosninga. Öryggisráðið hefur
mikið verið í fréttum undanfarið vegna afskipta
þess af kjarnorkuáætlun Írans.
Hvað er öryggisráð Sameinuðu þjóðanna?
Meginhlutverk öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna er að viðhalda friði og efla öryggi í
heiminum öllum. Ráðið tekur á öllum þeim
málum sem lögð eru fyrir það og hætta þykir á
að geti grafið undan friði þjóða í milli. Yfirleitt
reynir öryggisráðið fyrst að koma á viðræðum
milli deiluaðila til að miðla málum. Í einstaka
tilfellum getur ráðið sent eftirlitssveit á vettvang
til að rannsaka ástandið.
Komi til átaka vegna deilna sem ekki hefur
tekist að leysa með friðsamlegum hætti reynir
öryggisráðið að stöðva átökin eins fljótt og
mögulegt er. Getur það verið með skipunum
um vopnahlé milli stríðandi aðila eða með
beinu inngripi friðargæsluliða SÞ. Einnig getur
ráðið í sérstökum tilfellum sett viðskiptabann á
þjóðir sem ekki hlíta skipunum ráðsins.
Öryggisráðið hefur starfað síðan árið 1946
og eiga fimmtán þjóðir sæti í því. Stórveldin
Bandaríkin, Kína, Bretland, Frakkland og Rúss-
land eiga varanleg sæti og hafa þau jafnframt
neitunarvald.
Auk þessara fimm eru svo tíu aðildarríki
kosin til tveggja ára í senn og er þess gætt að
jafnvægi sé milli heimshluta. Hver þjóð hefur
eitt atkvæði en níu slík þarf til að fá niðurstöðu
í smærri málum. Við allar stærri ákvarðanatökur
þarf einnig níu atkvæði en þá þurfa einnig allir
fimm fastafulltrúarnir í ráðinu að vera meðal
þeirra.
Hví ætti Ísland að hafa fastafulltrúa þar?
Mikil aðsókn smærri ríkja heims er í aðild að
öryggisráðinu og stjórnmálaskýrendur segja að
fái smærra ríki fulltrúa kosinn til tveggja ára,
sé það mikil traustsyfirlýsing við viðkomandi
þjóð. Seta Íslands í ráðinu myndi gefa Íslendingum
tækifæri til að stuðla „að friði, frelsi og efnahags-
legri velferð í heiminum,“ sagði Geir H. Haarde
utanríkisráðherra nýverið.
FBL-GREINING: ÖRYGGISRÁÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
Ein valdamesta stofnun heims
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
FRÉTTAVIÐTAL
GUÐRÚN HELGA SIGURÐARD.
ghs@frettabladid.is
Alnæmissamtökin fengu nýlega
veglegan styrk frá Kaupangi en hann
kemur sér vel í starfi félagsins. Sam-
tökin voru stofnuð árið 1988 og for-
maður stjórnar er Birna Þórðardóttir.
Hvert er hlutverk samtakanna?
Það er að styðja við bakið á þeim sem
hafa smitast sem og aðstandendum
þeirra. Í húsnæði samtakanna að
Hverfisgötu 69 geta HIV jákvæðir og
aðstandendur þeirra hist og boðið er
upp á þjónustu hjá félagsráðgjafa einu
sinni í viku. Hlutverk þeirra er einnig
að fræða almenning um HIV sjúkdóm-
inn og vinna gegn fordómum.
Hvaðan koma tekjurnar?
Samtökin eru ekki á fjárlögum og hafa
því ekki fastar tekjur en reiða sig á
styrki frá hinu opinbera og fyrirtækjum.
Öryrkjabandalagið og Heilbrigðis-
ráðuneytið hafa veitt samtökunum
styrki undanfarin ár en einnig hafa
þau notið framlaga frá fyrirtækjum og
Landlæknisembættinu.
Að hverjum beinast forvarnirnar?
Samtökin hafa tvívegis farið í
fræðsluferð í kringum landið til þess
að fræða unglinga í efstu bekkjum
grunnskólans en það er gert í samráði
við Landlækni. Áætlanir eru uppi um
að fara í þriðju ferðina núna í haust en
enn hefur ekki verið tekin endanleg
ákvörðun um það.
SPURT & SVARAÐ
ALNÆMISSAMTÖKIN
Forvarnir
mikilvægar
BIRNA ÞÓRÐARDÓTTIR
Formaður stjórnar Alnæmissamtakanna
24 2316
1995
2000 2005
Heimild: Hagstofa Íslands