Fréttablaðið - 02.06.2006, Side 29
FÖSTUDAGUR 2. júní 2006 29
Þegar Finnur Ingólfsson kom til
starfa hjá VÍS seint árið 2002 var
félagið metið á tólf milljarða
króna. Virði VÍS eignarhaldsfé-
lags í dag er tæpir 66 milljarðar
króna eftir að greint var frá því að
Exista hefði eignast félagið að
fullu.
„Við settum okkur tíu ára mark-
mið þegar við skipulögðum fyrir-
tækið árið 2003. Á um það bil
tveimur árum höfðum við náð
flestum markmiðunum. Vöxturinn
og árangurinn fór langt fram úr
því sem björtustu vonir stóðu til,“
segir Finnur. Hann lætur nú af
störfum sem forstjóri VÍS eignar-
haldsfélags en verður starfandi
stjórnarformaður Vátryggingafé-
lags Íslands. Hann er bæði sáttur
við eigendaskiptin og eigin vista-
skipti en Ásgeir Baldursson tekur
við starfi framkvæmdastjóra VÍS.
Þegar flestar stærðir eru born-
ar saman má segja að félagið hafi
sexfaldast. Heildareignir félags-
ins hafa vaxið úr tuttugu milljörð-
um króna í 110 milljarða og eigið
fé farið úr 4,9 milljörðum í þrjátíu.
Markaðshlutdeild VÍS hefur einnig
vaxið jafnt og þétt á þessum tæpu
fjórum árum, farið úr 32 prósent-
um í tæp 40 prósent.
Finnur lýsir betur þeim breyt-
ingum sem urðu eftir að hann koma
til starfa. „Við skipulögðum fyrir-
tækið út frá því að það væri trygg-
ingafélag en víkkuðum út hlutverk
þess þannig að það væri jafnframt
öryggis- og fjármálaþjónustufyrir-
tæki.“ Frá þeim tíma hefur VÍS
bætt við sig hlutabréfum í Öryggis-
miðstöð Íslands, keypt Lýsingu og
tryggingafélögin Vörð og Ísland-
stryggingu. Jafnframt er VÍS braut-
ryðjandi í útrás íslenskra trygg-
ingafélaga með fjárfestingum í
Englandi og Noregi. Telur Finnur
að vöxtur tryggingafélaganna liggi
á erlendum miðum á næstu árum.
„Samkeppnin hér heima er mikil og
tryggingamarkaðurinn vex lítið. Þú
verður í vextinum að leita út fyrir
landsteinanna. Við höfum skilgreint
okkar markað sem Norðurlöndin og
Bretland.“
En til þess að ná árangri þurfa
ýmsir þættir að vera til staðar að
mati Finns. Fyrirtækið þarf að
vera fjárhagslega öflugt til þess
að geta tekið áhættu sem snýr að
kraftmiklum vexti. Finnur nefnir
einnig að fyrirtæki verði að eiga
trausta og ánægða viðskiptavini
og síðast en ekki síst ánægt og gott
starfsfólk. „Allt þetta hefur verið
til staðar hjá okkur.“
Finnur er spurður um kaup VÍS
á hlutabréfum ríkisins í Búnaðar-
bankanum í ársbyrjun 2003 en
þessi hlutur hefur margfaldast að
virði. „Það hefur verið afskaplega
vel spilað úr þeirri fjárfestingu og
þar skipti höfuðmáli sameining
Búnaðarbankans á sínum tíma við
Kaupþing.“ Hann bætir við að tölu-
verð áhætta hafi legið í þessum
kaupum fyrir þá aðila sem komu
að kaupunum.
eggert@frettabladid.is
Laun knattspyrnumanna í ensku
úrvalsdeildinni lækkuðu í fyrsta
skipti milli ára, samkvæmt árlegri
knattspyrnuskýrslu endurskoðun-
arfyrirtækisins Deloitte & Touche.
Lækkunin nam þrem-
ur prósentum en
áður höfðu laun
hækkað um
tuttugu prósent
á ári að meðaltali
frá stofnun deild-
arinnar. Skýrslan
tók til tímabilsins
2004 til 2005.
Enska úrvals-
deildin ber sem
fyrr höfuð og
herðar yfir aðrar
knattspyrnudeildir
Evrópu. Tekjur
úrvalsdeildarliðanna
námu alls tæpum 180
milljörðum íslenskra króna.
Manchester United var tekjuhæsta
liðið með tæplega 22 milljarða
króna tekjur.
Tekjur liða í ítölsku Serie-A
deildinni námu alls tæpum 124
milljörðum króna. Tekjur af þýsku
Bundesligunni voru tæplega
110 milljarðar
króna og um 96
milljarðar af
spænsku fyrstu
deildinni.
Athygli vakti
að næstefsta
deild á Englandi,
Championship-
deildin svokallaða,
var sú sjötta stærsta í
Evrópu miðað við tekj-
ur. Samtals námu tekjur
liðanna 42 milljörðum
króna. - jsk
Ákveðið hefur verið að Skýrr hf.
og Teymi ehf. verði sameinuð
undir nafni Skýrr hf. Formlegur
sameiningardagur hefur ekki enn
verið ákveðinn. Skýrr og Teymi
eru dótturfélög Kögunar hf. sem
er í meirihlutaeigu Dagsbrúnar
hf., en Dagsbrún er skráð í Kaup-
höll Íslands.
Sigþór Samúelsson, frakvæmda-
stjóri Teymis, segir í tilkynningu
að fyrirtækin hafi átt samstarf um
árabil, verið lengi í eigu sömu aðila
og deilt húsnæði. Samlegðaráhrif
séu því mikil. Þá segir Þórólfur
Árnason að með samrunanum fái
Skýrr frábært fólk til liðs við fyrir-
tækið sem mikill fengur sé í. - jab
Í FORSTJÓRATÍÐ FINNS INGÓLFSSONAR HEFUR VÍS-SAMSTÆÐAN SEXFALDAST AÐ STÆRÐ
Finnur tekur við starfi starfandi stjórnarformanns Vátryggingafélags Íslands eftir að Exista
eignaðist VÍS eignarhaldsfélag að öllu leyti.
Tíu ára áætlun VÍS lauk á
tæpum tveimur árum
Félagið hefur nálega sexfaldast að stærð í forstjóratíð Finns Ingólfssonar.
Skýrr og Teymi sameinast
Laun knattspyrnu-
manna lækka
Enska úrvalsdeildin ber höfuð og herðar yfir aðrar
deildir Evrópu samkvæmt skýrslu Deloitte.
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON Forstjóri Skýrr segir
mikinn feng í starfsfólki Teymis. Mynd/GVA
VÍS SEXFALDAST *
Ár Eignir Eigið fé
2002 24 4,6
2003 28,9 6
2004 43,1 14,4
2005 92,1 27,7
2006 ** 110 30
* Upphæðir í milljörðum króna
** Miðað við 31.03.2006
Nú nærðu SKJÁEINUM í gegnum Digital Ísland
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
2
10
6
Á SKJÁEINUM í kvöld kl. 21.00
Bachelorette