Fréttablaðið - 02.06.2006, Page 34

Fréttablaðið - 02.06.2006, Page 34
[ ] Ananas er uppruninn í Brasil- íu og Paragvæ en sætt bragð hans og erfiðleikar við að koma honum til Evrópu gerðu hann að ávexti konunga á end- urreisnartímabilinu. Ananasplantan samanstendur af rót og 30 til 40 safaríkum blöðum sem raðast í rósettulaga krans kringum stífan stöngul. Efst á stönglinum myndast þyrping blóma sem með tímanum renna saman og umbreytast í ananas- ávöxtinn. Harði parturinn í miðju ananas er því í raun stöngullinn. Kólumbus og menn hans voru fyrstir Vesturlandabúa til að smakka ananas. Frumbyggjar Karíbahafsins höfðu flutt hann með sér frá meginlandinu en þeir kölluðu hann „anana,“ sem þýðir „frábæri ávöxturinn“. Þar sem ananas er mjög sætur, og sykur var munaðarvara í Evr- ópu á þessum tíma, sáu Portúgalir strax að þarna var verðmæt afurð á ferð. Vegna fjarlægðarinnar og lélegra aðstæðna um borð í nýlenduskipum var hins vegar sjaldgæft að ananasávextir kæm- ust alla leið til Evrópu og því var hann mjög dýr í gamala heimin- um. Hann varð fljótlega stöðutákn og væri hann á boðstólum í veislu sýndi það ekki aðeins fjárhagsleg- an styrk gestgjafa heldur einnig útsjónarsemi. Nú er ananas ræktaður í hita- belti Asíu, Afríku og Suður-Amer- íku. Mesta ræktunarlandið er Taí- land en þaðan eru tuttugu prósent allra ananasávaxta í búðarhillum upprunnin. Þrátt fyrir að vera mjög sætur getur ananasávöxturinn brennt tungu og munn. Sé borðað mikið af ferskum ananas getur hann kallað fram sviða í munni sem hverfur fljótlega eftir að neyslu er hætt. MALAYA SVÍNAKÓTILETTUR MEÐ ANANAS 1,2 kg svínakótilettur 400 g tómatar, niðursoðnir, 1 dós um 400 g 2½ dl vatn 2½ dl rjómi 100 g kókosmassi 2 msk. olía 2 stk. hvítlauksrif, pressuð 1 stk. laukur ½ stk. ananas, niðursoðinn, í dós salt kryddlögur 2 msk. olía 2 msk. sítrónusafi 2 tsk. indversk kryddblanda, garam masala 1 tsk. kóríander, malað 1 tsk. broddkúmen, malað ½ stk. delhi-karrísósa, dós Kótiletturnar eru látnar liggja í kryddleginum í 2 klst. Því næst eru þær látnar brúnast á báðum hliðum á pönnu við vægan hita áður en þær eru settar í ofn- fast mót. Ananasinn er settur ofan á. Saxaður laukurinn og hvítlaukurinn er steiktur á sömu pönnu og kókómassanum, tómötunum, og afganginum af krydd- leginum er bætt út í. Þetta er látið krauma í 2 mín- útur en að því loknu er vatni og rjóma hellt út á eins og þurfa þykir. Þetta er látið malla í tvær mín- útur í viðbót en til að fá meiri sósu má hella ananas- safanum út í. Sósunni er hellt á kótiletturnar og rétturinn er bakaður í ofni í 25 mínútur við 180°C hita. Með réttinum er gott að hafa hrísgrjón og naan-brauð. GRILLAÐUR ANANAS 1 stykki stór ananas dökkt romm eða kanill smjör Ananasinn er skorinn í sneiðar og penslaður með smjöri. Sneið- arnar eru lagðar á vel heitt grill í stutta stund og grillaðar báðu megin. Þegar ananasinn er kom- inn af grillinu er örlitlu rommi dreypt á sneiðarnar. Einnig er hægt að nota kanil í stað romms. (Uppskriftirnar eru fengnar af uppskriftir.is) tryggvi@frettabladid.is Ananas: ávöxtur konunga Ferskur ananas er ekki það sama og niðursoðinn ananas. Smakkaðu og finndu muninn. NORDICPHOTO/GETTY IMAGES Epli er 87% vatn en í 100 g eru einnig 0,3 g af fitu, 0,3 g af prótíni, 10,9 g af kolvetni og ekkert kólesteról. Enn fremur færðu 48 kílókaloríur úr grömmunum hundrað. Kaffi er kannski ekki vinsæl- asti drykkurinn á heitum sumardögum en kaffið má auðveld- lega gera að svala- drykk með lítilli fyrirhöfn. Þegar sumarhitinn rýkur upp úr öllu valdi eru kaffidrykkir ekki það sem kemur fyrst upp í sumarhuga manna. En það er ekki erfitt að umbreyta kaffinu í góðan svalandi drykk á heitum sumar- degi. Hellið upp á gott könnukaffi og passið að hafa það ekki of sterkt. Hellið kaffinu í hátt glas og bætið við einni til tveimur vanilluískúl- um. Ekkert er því til fyrirstöðu að setja þeyttan rjóma á toppinn með smá sósu til að gera drykkinn sætari. Einnig má setja klaka í glas- ið til að kæla kaffið en þá er mælt með sterkari uppáhellingu. - jóa Ískaffi Ver› fyrir einrétta Ver› fyrir tvírétta Okkar róma›a humarsúpa 990 Steiktur skötuselur 3.390 4.390 me› hvítvínssósu Kjúklingabringa 2.950 3.890 ,,a la Italiana“ Lambafillet 3.390 4.390 me› sherrybættri sveppasósu Nautalundir me› Chateubriandsósu 3.700 4.690 Súkkula›ifrau› 790 Einnig úrval annarra rétta á ,,a la Cartse›li“ ~ ~ ~ ~ ~ Þriggja rétta matseðill Veitingahúsið Madonna / Rauðarárstíg 27-29 Borðapantanir í síma 562 1988 • Madonna síðan 1987 • www.madonna.is www.aman.is S. 533 1020 Fluttir á Háteigsveg 1 (gamla Austurbæjarapótek) OPNUNARTILBOÐ MIKILL AFSLÁTTUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.