Fréttablaðið - 02.06.2006, Side 51

Fréttablaðið - 02.06.2006, Side 51
FÖSTUDAGUR 2. júní 2006 Þú missir aldrei af HM marki Fáðu frítt prufumark: Sendu HMPRUFA á 1900. Skráðu þig: Sendu HM2006 á 1900. Öll HM mörkin á 990 kr. Smelltu þér á www.ogvodafone.is, komdu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 og fáðu nánari upplýsingar. HM 2006 Sú hefð hófst fyrir löngu að hafa lukkudýr á HM. Í Þýska- landi heitur lukkudýrið Goleo VI en hann er ljón sem ekki bítur og öllum líkar vel við. Hann er lif- andi, talar og hugsar. Þar að auki hefur hann sínar eigin skoðanir þar sem enginn er fæddur ein- göngu til að vera lukkudýr. Goleo hefur sett sér það göf- uga takmark fyrir HM að keppn- in verði ein stór skemmtun þar sem allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Hann ætlar síðan að vera aðalmaðurinn í teitunum á HM enda konungur teitanna. Annað sem á að einkenna Goleo er að hann er svakalega svalur og hann mun dansa við knattspyrnu- aðdáendur frá öllum heimshorn- um á götunum jafnt sem á leik- vöngunum. Goleo er ekki einn á ferð því hann fer hvergi án félaga síns Pille, talandi fótboltans. Þeir eru dýnamískt dúó. Pille hefur mikinn áhuga á knattspyrnu rétt eins og Goleo og þeir tala í raun ekki um neitt annað. Það er sam- eiginlegur áhugi þeirra og ást á fótbolta sem sameinar þá. Lukkudýr HM er gríðarsterkt ljón: Konungur teitanna HM 2006 Fáir leikvangar í heimin- um standa jafnhliða hinum stór- brotna Maracana-velli í Rio de Janeiro í Brasilíu. Völlurinn var byggður fyrir HM 1950 í Brasil- íu og hýsti mörg ótrúleg augna- blik í sögu heimsmeistarakeppn- innar. Hann er oft nefndur tákn brasilíska fótboltans og það með réttu. 10.000 verkamenn byggðu völlinn á tæpum tveimur árum. Brasilíumönnum, þar sem knattspyrnan er öllum í blóð borin, fannst vanta leikvang á borð við Maracana til að leggja áherslu á hverjir væru bestir fyrir HM 1950. Brasilíumenn spiluðu sex af sjö leikjum sínum á HM á Mara- cana-vellinum, þar á meðal æsi- spennandi úrslitaleik gegn Úrúgvæ. Bæði lið höfðu á frá- bærum leikmönnum á að skipa, 199.854 áhorfendur troðfylltu leikvanginn og stemmningin átti sér enga hliðstæðu. Opinberar áhorfendatölur segja töluna vera 174.000 en margir vilja meina að skarinn hafi verið yfir 200 þúsundin. Flestir halda sig þó við uppruna- legu töluna. Allt í sambandi við leikvanginn fór á réttan veg en eitt atriði fór þó úrskeiðis - Bras- ilía tapaði í síðasta leiknum og Úrugvæ varð heimsmeistari. Í dag hefur leikvangurinn verið minnkaður til muna af öryggisástæðum en litlu mátti muna að hann yrði rifinn og nýr byggður á sama stað. Vegna ótrú- legra mótmælta var þeim áætl- unum þó rutt af teikniborðinu en í dag tekur leikvangurinn um 80.000 manns í sæti. „Maracana-völlurinn á sér- stakan stað í hjörtum allra Brasilíumanna, en sérstaklega fyrir mig. Þar skoraði ég mitt fyrsta mark fyrir landsliðið, gegn Argentínu, og þar skoraði ég einnig 1.000 markið mitt á ferlinum. Andrúmsloftið á þess- um velli er engu líkt,“ segir knattspyrnugoðsögnin Pele um Maracana-leikvanginn. Maracana-leikvangurinn í Rio de Janeiro: Tákn brasilísku knattspyrnunnar MAGNAÐ MANNVIRKI Allt í kringum völlinn er stórglæsilegt, en hann er þó kominn til ára sinna. Þó kemur alls ekki til greina að rífa hann og byggja nýjan vegna sögulegs gildis. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.